Tuesday, August 23, 2005

Getraun dagsins.......

Var að stússast í "kúrsamálum" í dag og rölti aðeins um skólalóðina. Rakst þá á þennan fugl sem ég veit ekki hvað heitir. Ætla hér með að leita í smiðju lesenda (ef einhverjir eru enn að lesa þetta) og spyrja ykkur hvað þessi fugl heitir. Kannski er einhver ykkar sérfróð(ur) um fugla eða bara hafið séð þessa fuglategund áður. Svo treysti ég líka á Erlu og Guðrúnu Birgis sem hafa búið hér, þær ættu nú að geta sagt mér hvaða tegund þetta er. Er það ekki? Sá sem er með þetta fær bjór í verðlaun, annaðhvort hér úti í Miami (þegar þið komið í heimsókn) eða heima þegar ég kem til baka ;) Engin smá verðlaun þetta..........

Skrapp seinnipartinn á svokallað Cane-Festival sem er alltaf í upphafi hvers skólaárs. Þarna er verið að kynna öll félög í skólanum (t.d. eru klappstýrurnar með sér bás) og boðið uppá fullt af ókeypis dóti. Einhver matvælafyrirtæki eins og SubWays o.fl. gefa mat o.s.frv.. Tónlistarfólk að spila á sviðinu og svona. Þarna var gríðarlegur fjöldi og þar sem ég var einn (Erna heima, verkefnaskil hjá henni á morgun) var ég ekki lengi að þvælast þarna. Fékk mér ókeypis mat og lét mig svo hverfa.......

Sigfús A. Getraunan

6 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Þetta er afbrigði af Dúdú fuglinum og er oft nefdur langháls sterlingsen snitzelstæn! Nei nei, allt í plati! Ég veit ekki hverslags kvikindi þetta er en þetta er furðufugl allavega!

2:13 PM  
Anonymous Anonymous said...

Sælinú
Enginn sérfræðingur í þessu, en nokkuð pottþéttur á að þetta sé Great Egret. Hefi séð þá hér í Suður Karólínuríki, og eru þeir ógnvænlegir að sjá þegar maður mætir þeim á þeirra heimavelli, í fenjunum ;-)
Vona annars að veðrið hafi ekki verið of slæmt hjá ykkur í kvöld.
Kveðja
B.

7:44 PM  
Anonymous Anonymous said...

Fuglinn heitir Ibis, þaðan er Ibis news dregið. Þetta er lukkudýr skólans. Ibis fuglinn er síðastur til að fara þegar fellibylur kemur og fyrstur til að snúa aftur. Hvernig hafið þið það annars, eruð þið tengd og finnst ykkur þið vera örugg??

Erla.

3:05 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ohhh ætlaði einmitt að segja það..

2:25 PM  
Anonymous Anonymous said...

Jaeja Erla faer bjorinn. Nu er bara spurning hvort hun taki hann ut her i Miami eda heima eftir ar eda svo....

1:55 PM  
Anonymous Anonymous said...

kv., Sigfus

1:55 PM  

Post a Comment

<< Home