Hitabeltisstormur í aðsigi......

Við erum víst stödd á miðju "hitabeltisstormstímabili" hér í Miami. Öfgarnar eru miklar í veðrinu. Stundum er sólskinsblíða að degi til og svo rigning og þrumur og eldingar að kvöldi til. Svo eru það þessir hitabeltisstormar. Þeir koma víst nokkrir á hverju "seasoni" og nú vorum við að fá tilkynningu frá háskólanum um að von sé á hitabeltisstorminum Katrínu. Í tilkynningunni stóð eftirfarandi:
"University Monitoring Tropical Storm Katrina
The University continues to monitor the progress of Tropical Storm Katrina. The Crisis Decision Team (CDT) met this afternoon to assess the situation. The University will be open for business as usual tomorrow, Thursday. The CDT will meet again Thursday morning to determine if additional preparation or actions are warranted. You will receive a Storm Alert update following that meeting.
A reminder that the most recent storm-related information can always be found at the University’s Emergency Preparedness Web site at http://www.miami.edu/prepare/.
Additionally, now is a good time to review your school, college, or unit’s emergency preparedness plan, as well as your personal emergency preparedness plan. More information can be found on the Web."
Það er s.s. teymi hér við skólann sem sér um þessi mál og sérstakt upplýsinganúmer sem hægt er að hringja í ef skæðir stormar eru í aðsigi. Hún Katrín blessuð á nú ekki að vera af stærri gerðinni (stig eitt eða tvö) en kennari Ernu sá samt ástæðu til þess að aflýsa föstudagstímanum vegna þessa storms. Það kemur svo í ljós á morgun hvort allur skólinn verði lokaður fram að helgi vegna þessa.Póstum inn frekari upplýsingum þegar ljóst verður hvort að Katrín ákveður að koma í heimsókn eða hvort hún tekur sveigju framhjá.........

5 Comments:
Úff, gjörið svo vel að halda ykkur innandyra ef Katrín kemur í heimsókn. Þetta eru nú meiri ævintýrin! Fylgist grannt með.
kv
Rúna
HallÓ!!!!!! Passið ykkur að vera örugglega úti til þess að taka myyyyndir! Gaman að sjá hvað Kaninn kallar Hurricane - sbr. þessa æææægilegu storma sem gengur stundum yfir L.A. ... það alveg fauk eitt laufblað fram hjá glugganum hjá mér.
Stefán :)
Sigfús og Erna, getiði ekki meldað ykkur með í Crisis Team-ið og hagað ykkur einsog sannar hetjur af víkingaættum.
kveðja ofan af jökli þar sem eru 5°frost og blindbylur í lok ágúst, bara svona til að halda ykkur við efnið!
Solveig
Haldið ykkur innandyra, neglið fyrir glugga, farið undir borð í fósturstellinguna, sjúgið þumalinn og fylgist með fréttum! ÉG sendi Hjálparsveit skáta til ykkar! Verið alveg róleg! Ég elska ykkur! kiss kiss og knús frá fróni!
Gott að fá smá frí..
Post a Comment
<< Home