Thursday, August 25, 2005

Öllu skólahaldi aflýst

Í götunni heima fyrir 20 mínútum, enginn vindur en mikil úrkoma:


Nú er búið að aflýsa öllu skólahaldi frá kl:18 í kvöld fram til 10:00 á laugardag.

Erna var að fá þessa tilkynningu frá lagaskólanum:

"Due to Tropical Storm Katrina, the University is closing as of 6:00 p.m. this evening and will reopen at 10:00 a.m. on Saturday August 27. All students must be completely out of the Law School buildings as of 6:00 because the university will be sandbagging the buildings at that time. Once the sandbags are in place, do not move them. For your convenience, the shuttles will continue to run until 8:00 p.m. this evening."

Það á sem sagt að hlaða sandpokum við byggingar skólans.... humm.. annaðhvort er Kaninn að gera svona mikið úr þessu eða þetta er alvöru stormur nema hvorutveggja sé.

Skólinn sendi svo þessa almennu tilkynningu:

"University of Miami to Close at 6 p.m. Thursday and Remain Closed Through Friday
The University of Miami will close at 6 p.m. today, Thursday, and will remain closed through Friday. All classes, clinical activities, and events are canceled for that time period; however, essential personnel should report to work according to their unit’s emergency plan.
All academic buildings, the libraries, the UM Bookstore, the Lowe Art Museum, and the Wellness Center, will close promptly at 6 p.m. Thursday, and will be secured at that time. The University will reopen on Saturday morning for normal operations; however, some buildings and activities will be on adjusted schedules (see exceptions below)."

Ég hjólaði heim úr skólanum í dag og varð gegnvotur eins og sést á myndinni hér til hliðar. Á leiðinni sá ég búðareigendur festa hlera fyrir gluggana. Nú veit maður ekki hvort verið sé að gera mikið úr hlutunum en það verður forvitnilegt að sjá hvað verður úr þessu. Ætlum allavegana að halda okkur inni og bíða átekta. Sumir sem við höfum talað við segja að þetta eigi ekki að vera neitt neitt. En við sjáum til.

8 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Keyptuð þið dósamat

11:27 AM  
Anonymous Anonymous said...

Keyptuð þið dósamat?

11:29 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hver spyr?
Eigum dósamat á lager, það er eitt af því sem mælt er með að fólk eigi alltaf á þessu stormatímabili. Svo þarf náttúrulega að eiga nóg af vatni. En ég held þetta sé nú ekki svo alvarlegur stormur.......maður veit samt aldrei.

12:54 PM  
Anonymous Anonymous said...

Já að öllu gamni slepptu held ég að það sé nú bara best að falla inn í hópinn og herma eftir innfæddum. Ekki vera með neina víkingastæla Sigfús!

2:26 PM  
Anonymous Anonymous said...

já svo er það bara að rifja upp almannavarnasíðurnar úr símaskránni....

kk

dst

2:39 AM  
Anonymous Anonymous said...

uss, miklu betra ad vera i hinu svala loftslagi edinborgar en i hitabeltisstemmningunni... eh! annars er eg fullkomlega ordlaus yfir vankunnattu Fusa A. Natturan thegar kemur ad fuglum Florida, fuglakortid hlytur ad hafa gleymst heima!! muhahahh! bestu kvedjur fra landi skota, Audur Ran.

10:25 AM  
Anonymous Anonymous said...

Akkuru heitir engin fellibylur: "Benedikt" . . .
Það væri töff.

2:34 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ég stökk í búð í fyrsta skipti þegar spáð var fellibyli og keypti allt það sama og hinir. Kom síðan heim og spáði í afhverju klór væri nauðsynlegur. Guess why?
Nú styttist í það að ég og stórfjölskyldan leggjumst upp á ykkur;) Hlökkum mikið til og munið að senda mér listann yfir það sem ég á að koma með, fyrir utan þetta týpiska, Orabaunir, harðfisk og slátrið.

12:34 AM  

Post a Comment

<< Home