Stormur sem breyttist í fellibyl.....

Jæja, Katrín reyndist heldur skæðari en búist var við. Þegar hún nálgaðist Miami-Dade var hún talin vera hitabeltisstormur af stærðinni 10 af 12 en hann efldist töluvert áður en hann kom yfir Miami og var þá orðinn fellibylur af 1. gráðu af 5. Til samanburðar var Andrew (sá stærsti hingað til) talinn vera allt að 5 af 5 mögulegum á þessum fellibylakvarða. Talið er að Katrín eflist nú þegar hún er úti á Mexíco-flóa og geti orðið allt að 4 að styrkleika þegar hún skellur á Lousiana og norðurhluta Flórida á sunnudagskvöld eða eða aðfararnótt mánudags.
Ekki langar okkur til þess að kynnast fellibylum sem ná ofar á þessum kvarða eftir þessa lífsreynslu. Katrín kom öllum hér gjörsamlega í opna skjöldu. Hún gerði meiri usla en nokkur hafði búist við og í öllum fjölmiðlum er nú talað um að lærdómurinn af þessum fellibyl sé sá að allur sé varinn góður, fellibylir af gráðu 1 geti valdið gífurlegu tjóni líka.
Reiknað var með að Katrín myndi koma mun norðar inn að landi en hún tók óvæntan sveig í suðurátt sem varð m.a. þess valdandi að okkar hverfi lenti í mestu stormhviðunum. Við höfðum undirbúið okkur ágætlega, búin að kaupa nóg af vatni og mat, vasaljós, kerti, fylla bílin af bensíni og taka út nægt reiðufé. Þetta eru allt hlutir sem mælt er með að fólk geri áður en svona veður skellur á. Maður skilur ekki alveg af hverju fyrr en núna tveimur sólarhringum eftir skellinn, það er nefnilega allt rafmagnslaust hér í Miami nema á nokkrum svæðum. Þetta þýðir m.a. það að mjög fáar búðir eru opnar og þær fáu sem eru opnar taka bara reiðufé.Mjög fá umferðarljós eru komin í gagnið núna tæpum tveimur sólarhringum eftir bylinn og um 1,4 milljón heimila eru enn án rafmagns. Ekki er reiknað með að rafmagn komist á hjá flestum þessara heimila fyrr en á þriðjudag!!!!!! Jibbí cola eða þannig....
Eftir að hafa verið rafmagnslaus í tæpa tvo sólarhringa erum við að átta okkur á því hversu háð við erum því. Maturinn í frystinum er skemmdur, engin loftkæling er í íbúðinni sem þýðir með öðrum orðum það að það er rúmlega 30 stiga hiti inni auk gífurlegs raka, höfum ekkert getað eldað mat, höfum ekkert símasamband auk þess sem báðir símarnir okkar eru rafmagnslausir, engin internettenging, ekki er hægt að horfa á sjónvarpið o.s.frv... Og til þess að toppa þetta allt þá er nú ekki hægt að sturta niður á klósettinu lengur!!!!!!!! Frábært eða þannig. Væntanlega vegna þess að holræsin eru öll full af vatni en við sáum dælubíl fyrir utan áðan sem er vonandi að kippa þessu í lagið.....
Allt rafmagn hér í Miami er lagt ofan jarðar og línur hanga á milli staura. Þetta skapar mjög mikla hættu í svona veðri. Línurnar slitna víða í sundur með þeim afleiðingum að þær fara t.d. ofan í pollana sem myndast og það eru víst ein af algengustu dánarorsökunum eftir svona storma þegar fólk veður í pollum þar sem slitnar rafagnslínur leynast undir yfirborðinu. Eftir flesta fellibylina er svo rafagnslaust í marga daga með þeim afleiðingum að heilu hverfin og borgirnar lamast. Ég skil ekki af hverju er ekki löngu búið að leggja rafmagnið hér í jörð, en væntanlega er kostnaðurinn við það miklu meiri. Kannski að einhver geti frætt mig um það...
Heilu hverfin eru nú einn stór pollur og flæðir inn í mörg hús. Við erum þó blessunarlega laus við slíkt. Slíkt ástand er eitthvað sem við kynnumst sem betur fer afar sjaldan heima á Íslandi ef þá nokkurntíman, þ.e. í slíku mæli sem gerist hér. Það einkenndi Katrínu víst umfram Andrew að henni fylgdi miklu meiri úrkoma með þeim afleiðingum að flæðir inní mörg hús. Ástæðan liggur víst í því hversu hægt fellibylurinn fór yfir (um 9 mílur á klukkustund) en þá náði hann að safna í sig mikilli vætu á leið yfir Atlantshafið og gerir það þá væntanlega líka núna þegar hann silast eftir Mexícoflóa.
Óveðrið skall á á fimmtudaginn, rúmlega 18 að staðartíma en rafmagnið fór ekki fyrr en rúmlega 20. Áður en bylurinn skall á höfðum við fjárfest í grilluðum kjúkling og meðlæti og snæddum góða máltíð með birtu frá kertum og vasaljósum. Opnuðum hvítvín og færðum borðið inn í miðja íbúð þar sem okkur var ekki farið að lítast á veðurhaminn en vindur og rigning lamdi gluggana að utan auk þess sem heyrðust brak og brestir.
Sjö manns hafa látist í nágrenninu vegna Katrínar. Tveir voru í bátum sínum niður við höfn og nokkrir urðu fyrir trjám sem féllu vegna vindsins. Ég fór út morguninn eftir til að sjá vegsumerkin og það kom mér á óvart að sjá afleiðingarnar. Stærðarinnar tré höfðu rifnað frá rótum út um allt hverfið og heilu göturnar voru lokaðar vegna trjáa sem lágu yfir götunum.Var þá hugsað til Stefáns mágs sem hafði póstað hér inn kommenti um að það sem kaninn kallaði storm væri bara eitt og eitt laufblað sem fyki framhjá rúðunni. Get sannfært Stefán um að þetta var ekki af þeim toga........
En okkur líður sem sagt bara vel og erum hér í bókasafni lagadeildar háskólans þar sem nóg er af rafmagni (sem er mjööög gooooottt). Ætlum að læra, hlaða símanna og njóta loftkælingarinanr þar til safninu lokar.Set inn fullt af myndum af afleiðingum Katrínar á myndabloggið sem hægt er að skoða ef smellt er á linkinn hér hægra megin á síðunni.
kk.,Sigfús A. Bylan

9 Comments:
Baráttu og samúðarkveðjur frá Haraldi og fjölskyldu! Vonandi flæðir ekki upp úr klósettinu ykkar HOHOHOHO nei nei ástandið fer nú vonandi að skána er það ekki? Kiss kiss og knús frá Haraldi og fjölskyldu :*
Ég var nú bara í smá sjokki eftir að hafa séð myndirnar og vita að þið eruð rafmagnslaus!!! Hjalp. Mér finnst þið nú bara alveg ótrúleg dugleg og brött. Annars allt gott héðan, farið að kólna og verður sjálfsagt bráðum grátt....
Erla.
Já bjórinn sem ég vann mér í síðasta bloggi,, hmhm. Verður að sjálfsögðu drukkinn í Miami.
Erla.
uss uss uss þetta er rosalegt.
Helling af fólki í sumarfríinu sínu þarna. Veit um eitt fólk, ekki skemmtilegt sumarfrí hjá þeim.
Þetta er lífsreynsla fyrir ykkur.
Ja, ekki vildi eg vera i New Orleans nuna. Katrin var 1 a fellibylakvarda thegar hun kom hingad en haesta stig er 5. Talad er um ad hun se nu ordin 5 ad styrkleika og stefnir beint a New Orleans sem er NB undir sjavarmali. Katrinu fylgir gifurleg urkoma og flaeddi vida inn i hus her, hvernig verdur thad tha i borg sem er 2 metrum undir sjavarmali....
Gott að þið eruð heil á húfi. Flottar myndir.
Bragi
Halló halló!
Maður þarf sko ekki að hlusta á fréttir hér heima eftir að hafa lesið afar ítarlega umfjöllun ykkar um Katrínu og er það vel :) Til hamingju með flotta vefsíðu. Hlakka til að fylgjast með ykkur í vetur. Leiðinlegt að ná ekki að kveðja ykkur áður en þið hélduð á vit ævintýranna og sendi ég því rafræna kossa og knús. Bið að heilsa og hafið það gott.
Ákvað að athuga hvernig Katrina hefði farið með ykkur. Sýnist áhrifin aðallega lærdómshvetjandi.
Fyrirmyndarblogg hjá þér Sigfús! Gaman að geta fylgst svona vel með ykkur.
Eva
Fegin að heyra og sjá frá ykkur. Maður var nú bara pínu stressaður að vita af henni Katrínu þarna hjá ykkur. Vonandi verður þetta allt á uppleið núna. Eftir á að hyggja er þetta auðvitað þvílíkt ævintýri!!
bestu kveðjur Rúna
Post a Comment
<< Home