Wednesday, November 22, 2006

Vínsmökkun

Létum loks verða af því að fara í vínsmökkun í mjög skemmtilegri búð/bar hér í hverfinu okkar. Fórum þarna eitthvert helgarkvöldið fyrir nokkru, áttum þá góða kvöldstund og skráðum netfangið okkar á einhvern lista. Höfum síðan verið að fá tölvupósta um vínsmökkunarkvöld á þriðjudögum en létum ekki verða að því að fara fyrr en í gær. Þetta er mjög skemmtilega útfærð sérverslun með vín sem er opin allan daginn og eitthvað frameftir eða þar til fólk hættir að drekka. Í búðinni er mikið og gott úrval léttvína og osta. Hægt að mæta á kvöldin og fá sér eðalvín á barnum eða bara verslað góða flösku á daginn. Svo bjóða þau manni að velja osta og ýmislegt góðgæti í kælinum og herlegheitin eru svo sett á disk svo hægt sé að gæða sér á því með víninu. Heima myndi svona búð ekki geta starfað vegna hinna súrrealísku einokunar ríkisisins á sölu áfengis. Hvenær ætlar annars hinn "frjálslyndi" Sjálfstæðisflokkur að breyta því fyrirkomulagi og leyfa fólki að kaupa vín og bjór annarsstaðar en hjá ríkinu?

Nema hvað þarna hittum við ansi skemmtilegt fólk. Spjölluðum m.a. við konu sem hafði búið í San Fransisco og gaf hún okkur ýmis góð ráð varðandi hvað væri gaman að gera þar. Erum nefnilega að spá í ferðalag þangað í janúar. Lungað úr kvöldinu fór svo í spjall við c.a. fimmtug hjón, Lindu og John, sem búa hér í hverfinu. Þau reka fyrirtæki sem semur lög fyrir ýmar aulýsingar svo sem City Furniture og fleiri fyrirtæki. Ákaflega áhugavert fólk. Við ræddum m.a. við þau um stjórnmál í Bandaríkjunum, norræna goðafræði, Ísland og margt fleira. Þau sögðu okkur að þegar þau fluttu hingað til Hollywood fyrir 20 árum hafi ástandið verið allt annað en það er í dag. Það var víst þannig að hægt hefði verið að stunda bowling á Hollywood Boulevard án mikilla vandræða, svo dauður var þessi bær þá. Engin umferð og lítið af fólki. Núna er hverfið hinsvegar allt að lifna við og þau reikna með að sú þróun haldi áfram. Núverandi borgarstjórnarmeirihluti sé að taka allt í gegn hér í hverfinu og liður í því var t.d. að loka Greyhound stoppistöð sem var hér áður. Slíkum stoppistöðum fylgir víst oft útigangsfólk og annar "ruslaralýður". Þessi aðgerð borgaryfirvalda undirstrikar annars hversu mikil skipting er hér í US. Ríka fólkið vill helst ekki sjá fátæktina og ömurlegheitin og beitir ýmsum leiðum til að bægja því frá sér. Þessi aðgerð varðandi Greyhoundstöðina er ansi lýsandi fyrir það hvernig vandamálunum er ýtt eitthvert annað. Fólk vill ekki sjá eymdina og heldur sig bara í sínu fínu hverfum og hættir sér aldrei inní hverfi þar sem ástandið er slæmt.

Við erum náttúrulega hluti af þessari "firringu" því við höfum bara búið í mjög flottum og vernduðum hverfum. Fólk hugsar náttúrulega fyrst og fremst um öryggi sitt og það er einfaldlega staðreynd að sum hverfi eru hreinlega stórhættuleg, þar er há glæpatíðni og mikil fátækt. Eitt hverfi í Miami er kallað "Dauðaþríhyrningurinn" en þar eru morð ansi algeng. Okkur langar ekkert sérstaklega mikið að fara þangað. Lái manni hver sem vill........

Fengum nafnspjald hjá þeim hjónum og er stefnt á að fara út að borða saman einhverntíman á næstunni. Svo er John víst að spila í jazzbandi á írskum pöbb hér handan við götuna þriðja hvern föstudag og aldrei að vita nema maður skelli sér þangað næst og sjái hversu fær hann er.

P.S. Báðar myndirnar eru teknar í vínbúðinni góðu. Á neðri myndinni eru Cyndy (barþjónn), John og Linda.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Maður verður nú bara alltaf grænni og grænni af að lesa bloggið ykkar. sól og sumar, kajakferðir meðal krókódíla, vínsmökkun á þriðjudagskvöldi, fullt af áhugaverðu fólki. Sei sei lífið leikur við ykkur þarna vestur frá.
Og frábært að lesa um það.
kv
Rúna

1:48 PM  
Blogger Embla Kristjánsdóttir said...

hejan... happy thanksgiving :) komst hér inná fyrir tilviljun að ég held... stórefast að þetta verði viðvarandi ástand að kína ætli að leyfa blogspot.com aftur :) en læt sko heyra í mér ef það verður svo! kveðjur frá hefta landinu :)

3:57 AM  

Post a Comment

<< Home