Grannar
Frá því við fluttum hingað í blokkina hafa okkur nokkrum sinnum borist auglýsingar um samkundur á vegum skemmtinefndar hússins. Það eru þá yfirleitt "happy hour" á einhverjum barnum í nágrenninu þar sem blokkarbúar hittast, drekka, borða og spjalla saman. Við höfum ekki komist hingað til á slíkan "hitting" en í gær ákváðum við að skella okkur og sjáum ekki eftir því. Náðum að mæta fyrst allra og fara síðust eins og okkur einum er lagið.Það virtist vera sem annar hvor maður og kona á svæðinu væru í fasteignabransanum en fólk var annars að bralla ýmislegt. T.d. spjölluðum við mikið við augnlækni sem var í eldri kantinum, karlhjúkku o.fl. En við fíluðum samt best tvo samkynhneygða karla sem eru frá NY og eru í tískubransanum. David og Anthony heita þeir. David vinnur í NY fyrir GAP við að koma af stað fjórðu línunni frá þeim. Hann býr í NY en á hús hér í nágrenninu. Anthony vinnur fyrir Perry Ellis hér í S-Florida og hann á íbúð hér í blokkinni. Þeir félagar entust jafn lengi og við og undir lokin var ákveðið að hittast við sundlaugina á laugardaginn en þá ætla þeir félagar að bjóða okkur uppá kokteila. Anthony ku ansi góður í gerð slíkra göróttra drykkja.
Komumst svo að því hjá skemmtinefndinni að það verður haldið jólapartý í desember og þá ætlar Anthony að bjóða liðinu í fordrykk á undan. Við erum því komin í einskonar Melrose place stemningu hér í Holly. Skál fyrir því!
P.S. Höfðum ekki myndavélina með og því leitaði ég að "neighbors" og "funny" í google image og fann þessa ágætu mynd. Fannst hún ansi skondin ;)

2 Comments:
ohh þið eruð nú meiri lukkunarpamfílarnir!!!!!! ekki nóg með að vera í sól og sumaryl heldur er hellt ofan í ykkur kokteilum í tíma og ótíma.Þetta er nú farið að hljóma eins og endalaus skemmtan. Bara eins góðum amerískum sápum. Skál!!
Farin að óttast ískyggilega að þið viljið ekki koma heim aftur...
kv rúna
Kjartan ýtti á takkan áður en ég gat identify myself
Post a Comment
<< Home