Íshokkí í Flórída
Já, það er spilað íshokkí hér í S-Flórída. Er það ekki álíka súrrealískt og baðströnd á Vatnajökli? En allavegana, okkur var boðið á íshokkíleik í NHL deildinni á þriðjudaginn (halloweenkvöldinu) og var það í fyrsta skiptið sem við hjónin höfum farið á slíkan leik. Raúl og Marianna hafði áskotnast fjórir miðar og buðu þau okkur að koma með. Heimaliðið hetir því fróma nafni Pardusdýrin (The Panthers) og það atti kappi við Hákarlarna (The Sharks) frá Sacramento. Er skemmst frá því að segja að leikurinn var í járnum allan tíman, okkar menn komust yfir 1-0, hákarlarnir jöfnuðu síðan nokkru seinna og var staðan jöfn þar til 1-2 mínútum fyrir lok leiks þegar hinnir vel tenntu hákarlar náðu að pota inn einu marki og unnu þar með leikinn (djööööö). Ansi skemmtilegt kvöld samt og alltaf gaman að fara á leiki hér í US, stemmningin er mjög góð og þessar hallir náttúrulega risavaxnar.Í stuttu máli hefur dagskráin okkar undanfarna daga annars verið á þessa leið:
Á fimmtudaginn fyrir viku bauð einn eigandi Holland & Knight okkur út að borða og í fordrykk heim til sín á undan. Tilefnið var að sænskur strákur sem hafði verið að vinna hjá skrifstofunni var mættur á svæðið ásamt spússu sinni og má því segja að það hafi verið einskonar norrænt þema. Magnað að koma heim til þeirra eins og þið sjáið ef þið kíkið í heimsókn á myndasíðuna okkar.
Á föstudaginn bauð skrifstofa Ernu bekk úr fátæku hverfi í Fort Lauderdale í heimsókn í Halloween-stemmningu. Þetta er hluti af verkefni sem skrifstofan er tekur þátt í og hafa þau t.d. farið að lesa fyrir krakkana í skólanum og. Erna tekur þátt í þessu verkefni og finnst það mjög gefandi. Um kvöldið kíktum við Erna svo á happy hour á mexíkanskan stað hér í hverfinu og fengum okkur eðal margarítur. Röltum svo um hverfið og rákumst á vínbúð sem er einnig bar á kvöldin. Þar er hægt að velja sér osta og vín og sitja að sumbli og ræða um gæði vína. Komumst að því að á þriðjudögum er ókeypis vínsmökkun í þessari búð og aldrei að vita nema maður skelli sér einhverntíman. Fórum svo á aðal stuðstaðinn í hverfinu (Spice)þar sem við hittum hann Bigga og vinkonu hans. Þetta er svona "latino" staður þar sem bæði föngulegir karlar og konur dansa uppi á barborðinu í eggjandi klæðnaði en þó allt innan siðgæðismarka. Þessir dansarar eru meira svona til að koma liðinu í stuð. Við Erna dönsuðum í smá tíma þarna á dansgólfinu og var þetta bara ansi gaman.
Á laugardaginn byrjuðum við daginn á því að keyra í norðvestur í stærsta mollið hér á svæðinu, Sawgrass Mills. Ansi mikil upplifun að koma þangað, mollið er gríðarlega stórt og minnir meira á heilt bæjarfélag heldur en verslunarmiðstöð. Náðum aðeins að skoða um 10% af mollinu og verðum því að fara aftur og taka allan daginn í það ;)Sunnudaginn byrjuðum á strandferð. Alltaf gaman að skreppa hér niður á strönd og ganga um og skoða mannlífið. Gengum rösklega eftir stígnum og settumst svo niður á hóteli sem bauð uppá sunday bröns og jazz-band. Mæli eindregið með því að fólk þefi upp svona sunday-bröns þegar það kemur til US ansi góðir dílar oft á tíðum. Við fórum svo í eins og eina Costco ferð og sídegis fórum við í heimsókn til litlu fjölskyldunnar í S-miami. Tókum út stöðuna á litla drengnum og borðuðum með Önnu Maríu og Gulla. Alltaf gaman að hitta þau.
Fullt af myndum á myndasíðunni okkar fyrir þau ykkar sem hafið áhuga.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home