Thursday, October 26, 2006

Veðurfréttir

Í veðurfréttum er þetta helst:
Veðurfréttamenn hér í S-Flórida hafa talað mikið um "cold front" og "breeze" undanfarna daga. Það var mikill hiti um helgina, um 33 gráður, en svo kom þetta svokallaða "cold front" einhverstaðar úr norðurríkjunum. Og í hverju fólst þetta kuldakast? Jú hitinn fór alla leið niður í 67 gráður á farenheit eða í um 19 gráður á celsius. Það var samt sól og heiðskírt alla þessa daga og því í raun eins og notalegt sumarveður á Íslandi. Já, viðmiðin eru aðeins öðruvísi hér í S-Flórída. Fólk fer á taugum ef það sér hitastigið fara niður fyrir 20 gráðurnar. Reyndar getur hitastigið farið niður fyrir 10 gráður á celius suma daga í des og jan og þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig fólkinu hérna líður þá.....

En nú er hitinn kominn uppí 77 gráður á farenheit og fer hækkandi. Vinir mínir heima vita hversu ánægður ég er með þessa tölu ;)

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Bara stimpla mig inn og láta vita að ég er búin að skoða myndirnar samviskusamlega, sá meira að segja þvottabjörninn. Fegin að hitastigið fer aftur hækkandi hjá ykkur hafði smá áhyggjur af ykkur þarna í kuldakastinu.
kv
Rúna í 4 gráðum á celsíus

8:29 AM  
Anonymous Anonymous said...

þú reynir að halda þessu hitastigi! En ég er alveg að verða 77 kíló vantar bara eitt kíló! Ertu ekki ánægður með mig stóri bró?

4:05 PM  

Post a Comment

<< Home