Helgarferðin
Ferðin yfir á vesturströnd Flórída var stórfín. Heimsóttum s.s. Sanibel, Captiva, Fort Myers og Naples sem eru nokkuð þekktir ferðamannastaðir hér í Flórída. Sjarminn við þetta svæði er hversu rólegt og afslappað er þarna miðað við Miami og nágrenni. Einnig eru strandirnar ansi notalegar og miklu rólegri en hér fyrir austan læk eins og þar stendur. Það er þó ekki næstum því eins mikið um að vera á þessu svæði miðað við okkar heimkynni. Má eiginlega líkja þessu við að fara frá Reykjavík yfir í rólegheitin á Akureyri. Nema hvað á Akureyri eru engar baðstrendur og hitinn er eitthvað örlítið lægri síðast þegar ég gáði.
Keyrðum sem sagt á föstudaginn vestur yfri og liggur leiðin yfir mikil fenjasvæði þar sem er fullt af huggulegum krókódílum og öðru þvíumlíku. Komum á hótelið um kvöldið og reyndist það bara ansi gott, fín sundlaug, heitur pottur og herbergið mjög fínt. Staðsetningin var líka góð að því leiti að við vorum mitt á milli Sanibel og Fortmeyrs-Beach sem eru aðalstaðirnir til að skoða. Byrjuðum einmitt fyrsta kvöldið á því að keyra niður á Fort-Meyers Beach þar sem við fengum okkur snæðing. Það er einna helst þar sem eitthvert líf er en það er ekkert í líkingu við það sem gerist í Miami og nágrenni. En mjög afslöppuð og góð stemmning.
Laugardaginn tókum við svo með trompi og skoðuðum Sanibel og Captiva. Gríðarleg náttúrufegurð þar og ákaflega góðar og rólegar strandir. Á Sanibel er mikið lagt uppúr hjólreiðum og eru góðir hjólreiðarstígar um alla eyjuna. Þar er þjóðgarður sem við skoðuðum undir styrkri leiðsögn heimamanns og var gaman að fræðast um dýralífið á svæðinu hjá manni sem þekkir til. Keyrðum svo yfir á Captiva og leist ansi vel á hana. Gætum vel hugsað okkur að taka gott frí þar einhverntíman, ákaflega notalegt og afslappað og strendurnar eru frábærar.
Á heimleiðinni komum við svo við í Naples sem er borg ríka fólksins í Flórída að mér skilst. Þar var eitthvert"stone-crab festival" þar sem boðið var uppá að smakka slíkan mat og listafólk sýndi listaverk sín í tjöldum. Fékk létt flashback frá því ég tók þátt í að skipuleggja Grafarvogsdagin hér um árið. Aðeins færri óvissuþættir hér og þá á ég helst við veðrið. Annaðhvort er sól og steikjandi hiti eða fellibylur, og ef það er fellibylur má hvort sem er enginn vera á ferli.....Fyrir þau ykkar sem hafið áhuga eru fullt af myndum á myndasíðunni okkar. Kíkið endilega á þær ef þið hafið tíma og áhuga......

0 Comments:
Post a Comment
<< Home