Saturday, September 03, 2005

Nóbelsverðlaunahafi í heimsókn

Forseti háskólans heitir Donna E. Shalala og er ansi skemmtilegur karakter. Hún var heilbrigðisráðherra í stjórn Clintons í 8 ár og hefur enginn einstaklingur gegnt því embætti eins lengi. Þegar hún hætti í því starfi talaði Washington Post um að hún hafi verið besti heilbrigðisráðherra sem Bandaríkin hefðu haft. Hún beitir mjög opnum stjórnunarstíl og hvetur nemendur til þess að hafa beint samband við sig og býður þeim í heimsókn heim til sín en heimili hennar ku ansi stórt (ein af villunum við sjóinn). Mér var boðið í slíka heimsókn sem einn af skiptinemunum en það var því miður of mikið stúss í gangi til að stunda slíkan munað.

Nema hvað Shalala er ákaflega vel tengd (plögguð) og beitir þeim tengslum háskólanum í hag. Í fyrra náði hún að fá eina af kappræðum Bush og Kerry hingað í skólann og vakti það heimsathygli. Hún hefur einnig fengið fjölda áhugaverðra fyrirlesara til þess að koma og nú síðast, á þriðjudagskvöldið, kom Toni Morrison rithöfundur hingað, hélt fyrirlestur og svaraði spurningum úr sal. Ég hafði fengið bók hennar "Beloved" að gjöf í nýliðakynningunni en vissi satt best að segja ekkert um rithöfundinn. Kom með bókina heim og bókaormurinn og femínistinn Erna þekkti höfindinn vel og tók andköf, var s.s. afar ánægð með þennan feng. Ekki var hún síður ánægð þegar hún sá í bréfinu sem fylgdi bókinni að von væri á rithöfundinum nú í lok ágúst. Erna er núna að lesa bókina og ætla ég að lesa hana þegar hún er búin.

Toni Morrison er frægur rithöfundur sem fékk m.a. nóbelsverðlaunin í bókmenntum 1993 og Pulitzer verðlaunin árið 1987. Hún er einnig prófessor í bókmenntum við Princeton háskóla. Morrison skrifar um þrælahaldið í Bandaríkjunum með sérstaka áherslu á stöðu kvenna í því ástandi og hefur almennt fjallað mikið um stöðu svartra kvenna í Bandaríkjunum.

Fyrirlesturinn var fyrir fullu húsi í stærðarinnar íþróttahöll á háskólalóðinni. Það var magnað að sitja þarna og hlusta á Morrison lýsa hugmyndunum á bakvið bók sína Beloved og svo almennt um þrælahaldið og stöðu svartra í Bandaríkjunum. Eftir fyrirlesturinn var opnað fyrir spurningar úr sal og svaraði hún snilldarlega oft á tíðum.

Greinilega stórmerkileg kona og eitursnjöll. Hún lýsti m.a. menntagöngu sinni, en fjölskylda hennar hafði ekki efni á að senda hana nema í eitt ár í háskóla og eftir það varð hún að sjá um sig sjálf. Hún náði að sanna sig á þessu eina ári og þó það hafi ekki komið fram þá reikna ég með að hún hafi fengið einhverja styrki sem afburðarnemandi í kjölfarið.

En s.s. mögnuð og áhrifarík kvölstund sem skildi töluvert meira eftir sig en innantóm hringiða kapalstöðvanna.......

Von er á fleirum merkum fyrirlesurum í vetur og ætlum við að reyna að kíkja á sem flesta. Aðgangur er ókeypis fyrir okkur sem erum í háskólanum en aðrir þurfa að borga.. það er því ýmislegt sem fæst fyrir þessi háu háskólagjöld sem við þurfum reyndar hvorug að borga......

Tilvitnun í Morrison:
'"Tell us what it is to be a woman so that we may know what it is to be a man. What moves at the margin. What it is to have no home in this place. To be set adrift from the one you knew. What it is to live at the edge of towns that cannot bear your company."' (from Nobel Lecture, 1993)

Hér er hægt að lesa meria um Morrison:
http://www.kirjasto.sci.fi/tmorris.htm

Og hér er hægt að lesa um Shalölu: http://www.miami.edu/UMH/CDA/UMH_Main/1,1770,8548-1;8823-3,00.html

0 Comments:

Post a Comment

<< Home