Tuesday, November 15, 2005

Töffari Töffaranna.......

Fórum á þessa líka tónleikanna með U2 í gærkveldi. Þessir tónleikar voru hluti af tónleikaröðinni Vertigo. Þeir voru haldnir í American Arena þar sem Miami Heat spila t.d. í NBA. Ansi magnað mannvirki sem tekur um 20.000 manns í sæti og það var náttúrulega löngu uppselt á þessa tónleika. Davíð og Ólöf höfðu verið svo forsjál að fjárfesta í fjórum miðum fyrir einhverjum mánuðum síðan og eiga þau þakkir skildar fyrir að gefa okkur tækifæri á að nýta aukamiðana tvo.

Tónleikarnir voru vægast sagt frábærir og U2 meðlimir í rokkna stuði. Bono er konungur rokksins um þessar mundir, engin spurning. Þvílíkur töffari, sá allra svalasti í bransanum. American Airline Arena (http://www.aaarena.com) er þannig hannað að sviðið er umkringt áhorfendum á alla kanta alveg uppí rjáfur. Það myndast því ansi góð stemmning þarna og hávaðinn ótrúlegur.

Ég man ekki eftir því hvenær ég fékk gæsahúð síðast á tónleikum en mig minnir að það hafi verið á Bowie tónleikunum heima. Þeir tóku hvern slagarann á fætur öðrum ásamt efni af nýjustu plötunni, How To Dismantle An Atomic Bomb. Þessir tónleikar fá fimm stjörnur af fimm mögulegum hjá Fúsagagnrýni ehf... Á myndasíðunni eru nokkrar myndir frá tónleikunum fyrir þá sem hafa áhuga.

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

ekki er ég nú svo lánsöm að geta boðið ykkur svona fínar veiðigræjur...en dauðöfunda ykkur af tónleikunum - ég fór að sjá þá félaga á ólympíuleikvanginum í Róm árið 1993 og það var ekki leiðinlegt. Er annars farin að hlakka til að komast til ykkar, hér er sex stiga gaddur !

dst

12:39 PM  
Anonymous Anonymous said...

Glæsilegir tónleikar, það er ljóst. Til hamingju með það! Smá grænn hérna: Gallinn við að búa á skeri eins og Charleston virðist í mínum augum vera það að lítill fólksfjöldi sem og öfgatrúarsöfnuðir sem eru hér í fyrirrúmi í austurenda biblíubeltisins fæla alla nútímalistamenn í burtu. Engir almennilegir tónleikar hér, því miður. Það eina sem gerist hér skv. ticketbastard.com eru glímusjóv og gaurar sem syngja angurvært 'have you forgotten....'.
Jæja, kær kveðja úr kuldakasti. Ekki nema 16°C í dag og út vikuna. Agalegt ;-) því það voru 26°C í gær!
P.S. Le Sigfús: Takk fyrir að mæla með What the Bleep Do We Know. Hún er alger snilld ;)

5:53 AM  
Anonymous Anonymous said...

Sjúklega sæt græna blússan þín Erna sem þú ert í á úti-að-borða-myndunum-með-Gulla!!! Love it! xx.

7:21 AM  
Anonymous Anonymous said...

Já, það eru kostir og gallar allstaðar Benni... reyndar segja mér tónlistaráhugamenn að hingað komi bara "mainstream" bönd þar sem það sé t.d. ekki markaður fyrir jaðargrúppur eins og Sigur Rós. Maður er samkvæmt þessu staddur í draumaborg FM-hnakkanna og reyndar salsamúsíkarinnar....

Við eigum ekki við þessi hitavandræði að stríða eins og þið, hér er enn 25-30 stiga hiti og sól...og enginn fellibylur NB.

Þú hefðir nú gaman að skella þér á tónleika með "have you forgotten" týpunum...hahahaha

Varðandi myndina þá verð ég greinilega að sjá hana sem fyrst..

kk.,
Sigfús A. Læran

1:11 PM  
Anonymous Anonymous said...

Sviðið hjá þeim er alveg eins og í myndbandinu Vertigo! Massa fínt. Kkv. Halli

2:35 PM  

Post a Comment

<< Home