Tuesday, November 08, 2005

Komin aftur á 21. öldina

Fengum hið margfræga internet á ný nú á sunnudaginn ásamt hinu ástkæra kapalsjónvarpi (með öllum þeim auglýsingum sem því fylgir). Við erum því komin á 21. öldina á ný og getum sólundað tíma okkar í að vafra um víðáttur internetsins og glápa á innihaldslausa framhaldsþætti á ný. Þvílík dýrð og þvílíkur unaður....

Vorum að koma inn eftir háskalegan hjólreiðatúr. Þannig er nefnilega mál með vexti að hér í Miami er ekki beint gert ráð fyrir gangandi eða hjólandi vegfarendum frekar en víðast hvar í henni Ameríku. Hjóluðum í átt að hverfi sem heitir Coconut grove og skoðuðum þær fjölmörgu "glæsivillur" sem þar eru. Það dimmir mjög snögglega hérna og það ansi snemma eða um kl. 18:00 (skil ekki alveg þessa tilfærslu á tímanum um daginn, held að hann sé sérhannaður fyrir ýktar A-týpur sem vakna kl. 6 á morgnanna). Við stödd í einhverju hverfi sem við þekktum ekki alveg og þurftum að rata heim í myrkrinu á götum sem voru að sjálfsögðu án hjólreiða- eða göngustíga. Hjóluðum á móti umferð til að sjá allavegana óvininn og húsbóndinn fór í forsvari til að taka á móti þeim bílum sem á okkur myndu keyra (eiga náttúrulega ekki séns í 110 kg. Ísmann). En við komumst sem sagt alla leið heim heilu og höldnu og erum bara nokkuð sátt við þann árangur.

Annars er það helst að frétta að húsbóndinn er orðinn formlegur meðlimur í borðtennisklúbbi UM og er þar að rifja upp gamla takta. Þegar hann mætti í sinn fyrsta tíma spjallaði hann létt við forseta (allir bera virðulega titla hér í US sama hversu ómerkilegt félagið er) borðtennisklúbbsins og sagði eitthvað á þá leið að þarna væru greinilega margir ungir og efnilegir spilarar. Forsetinn svaraði: "yes, you are deffinately the oldest one". Gaman að þessu, s.s. það fer ekkert á milli mála hver er aldursforsetinn þarna í þessum líka fína klúbbi. HAHHAHAHAHHA. Hún var nú ekki með mikinn kjaft eftir að ég malaði hana í sportinu stuttu seinna... múhahahahah

Við Davíð erum svo á leiðinni í að gerast meðlimir í tennisklúbbnum og fótboltaklúbbnum. Aðeins meira sexí klúbbar en ping-pong klúbburinn ekki satt? Ping-pong í kvöld? (Þór í Dalalíf). Ég verð sem sagt orðinn ansi vel klúbbaður þegar ég kem heim næsta sumar....

Ég og Erna fórum í kokteil á vegum lagadeildarinnar á föstudagskvöldið þar sem vel var veitt og fólk almennt í miklu stuði. Á myndasíðunni okkar er fullt af samkvæmismyndum frá þessu tilefni fyrir þá sem hafa áhuga á slíku. Fjölþjóðlegt að vanda og eftirpartý hjá einum bekkjarfélaganum.

Svo er námsstressið farið að gera vart við sig en það er ýmislegt á dagskrá í þeim efnum næsta einn og hálfan mánuðinn eða svo. Fullt af ritgerðum, prófum og almennum skemmtilegheitum......

kv. úr sólskinsríkinu,

Sigfús og Erna

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Mér finnst þú eigir að verða forseti í borðtennisklúbbnum. Ég kem hér með formlega "að máli við þig" varðandi það mál. Annars er þetta skemmtilegt blogg sem maður lítur alltaf reglulega á.
Great website!!!
Gott að ykkur gangi vel og mjög gott að það sé hætt að vera rok. Það er leiðinlegt í roki.
Emil

2:27 AM  
Anonymous Anonymous said...

Já er sammála þér með breytingu á klukkunni - bara gert fyrir leiðinlegar A týpur, hver vill hafa bjart á morgnana ég bara spyr. kveðja úr brussu á

2:39 AM  
Anonymous Anonymous said...

Sammála! Ég er á því að klukkan ætti að vera stillt þannig að hún sé eitt eða tvö þegar sól er hæst á lofti. Það væri betra fyrir alla.
Kveðja frá Charleston
B.

8:11 AM  

Post a Comment

<< Home