Wednesday, October 26, 2005

Skólinn lokaður a.m.k. fram á mánudag

Skólinn tilkynnti í gær um lokun fram á mánudag að minnsta kosti. Það er allt rafmagnslaust í Miami núna, fólk kemst ekki í hraðbanka, verslanir taka ekki við öðru en reiðufé (þær fáu sem eru opnar), fólk í biðröðum eftir vatni og svo framvegis. Ekki beint ástand sem okkur langar til þess að flýta okkur í.

Ætlum að sjá til á morgun hvað við gerum. Kannski látum við reyna á gestrisni Berglindar og Benna í eina nótt enn. Þau henda okkur þá bara út þegar þau verða orðin geðveik á þessum flóttamönnum... ;) En þegar við förum héðan er planið að koma við í Savanah í Georgíu og gista þar í eina til tvær nætur. Það ku vera ægifögur borg sem gaman er að skoða.......

Áttum frábæran dag í gær, ég og Benni fórum í tennis í rúman klukkutíma en það er tennisvöllur hér beint fyrir framan íbúðina. Fórum svo í kajakferð, ég, Erna og Benni. Benni er að passa hús konu sem er prófessor hér við háskólann en Berglind er hjá henni. Hún á glæsilega eign með aðgang að fenjasvæði sem gaman er að sigla um. Svo heppilega vill til að hún á akkúrat þrjá kajaka sem við fengum lánaða. Frábært veður og fullkomin ferð í alla staði. Póstum myndum frá allri heimsókninni síðar.

kk.,
Sigfús og Erna


Erna og Benni á kajak í gær, frábært veður og fagurt umhverfi....

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Sæl veriði.
Ég ákvað að lauma mér á bloggið í von um að sjá hvernig Wilma hefði farið með gamla hverfið mitt. Gott að vita af ykkur annars staðar en þar að taka myndir. Annars er þetta mjög skemmtilegt blott og komið í favorites hjá mér.
Tinna (fyrrverandi íbúi í íbúð nr. 3)

10:42 AM  
Anonymous Anonymous said...

ameríkanarnir greinilega ekki af baki dottnir með sín ágætu tilboð...

ég myndi staldra við á slóðum Scarlettar og Rhetts meðan helstu ósköpin ganga yfir,

bestu kveðjur til B&B

dst

1:21 PM  

Post a Comment

<< Home