Monday, October 24, 2005

Gott að vera í Charleston, ansi fegin að hafa drifið okkur

Ég tók mig til og lærði í dag á bókasafninu hér í Charleston, Erna lærði heima. Vorum nefnilega svo samviskusöm að taka bækurnar með. Ég reyndar átti ekki annara kosta völ þar sem það verða tvö próf á fimmtudag ef búið verður að opna skólann þá. Auk þess á ég að skila tveimur 7 blaðsíðna ritgerðum og beinagrind af tveimur lokaritgerðum. Það er því meira en nóg að gera auk þess sem við þurfum að skoða Charleston víst maður er kominn hingað ;)

Höfum verið fastagestir á vefsíðu Miami Herald www.miamiherald.com og www.weather.com og satt best að segja líst okkur ekki á ástandið heima í Miami. Á Miami Herald er vitnað í einn íbúann sem segir að ástandið sé um 20 sinnum verra í Miami núna en það var eftir Katrínu (þ.e. í Miami). Það er allt rafmagnslaust á svæðinu, um 2 milljónir heimila án rafmagns og ekki útlit fyrir að það komist aftur á í bráð.

Þessi ákvörðun okkar var því heldur betur rétt, vægast sagt. Ef þið hafið áhuga þá getið þið séð myndir frá ástandinu í Miami á vef Miami Herald, nákvæm slóð hér:
Hahahahahaha, það má ekki skrifa slóð í textann, þá fokkast öll síðan upp

Planið var upphaflega að fara heim aftur á morgun en nú erum við orðin tvístígandi vegna ástandsins í Miami. Ætlum að bíða og sjá hvað skólayfirvöld segja um opnun skólans. Það er lokað á morgun en tilkynning varðandi miðvikudaginn kemur ekki fyrr en á morgun kl. 14. Þá verður tekin ákvörðun um framhaldið. Það kæmi t.d. til greina að koma við í Savanah í Georgíu á leiðinni heim, kannski gista þar í eina nótt. Sú borg ku vera ægifögur.

Hér eru nokkrar myndir af ástandinu í S-Florida þessa dagana, tekið af annari heimasíðu, tek fram að þær eru ekki allar frá Miami:

























2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

uss suss suss þetta er rosalegt sem fólk þar að lifa við.
Er heimilið ykkar enn á sama stað? Er það kanski svo sterkt að það þarf ekki að hafa áhyggjur...?

2:37 PM  
Anonymous Anonymous said...

Vitum ekkert um heimilid. Naum ekki i nagrannana. Held samt ad thad hljoti ad vera i lagi med thad, en madur veit tho aldrei..

kk.,
Sigfus

7:48 PM  

Post a Comment

<< Home