Erum í Savannah, Georgíu
Erum hér á ágætis móteli í Savannah í Georgíu, komum hingað í gærkveldi. Fórum niður í gamla miðbæinn í gær, fengum okkur að borða og röltum um. Nú er ljóst að skólinn opnar á mánudaginn og ætlum við því að drífa okkur aftur til Miami þar sem ég á að fara í tvö próf þann dag. Planið er samt að líta aðeins niður í miðbæinn aftur í dag og sjá hann í dagsljósi. Synd að geta ekki dvalið hér lengur víst við erum komin, skólinn alltaf að slíta í sundur fyrir manni "fríin".... hahhahaha

En satt best að segja líst okkur ekkert sérstaklega á að fara heim í rafmagnsleysið. Davíð og Ólöf eru farin heim og þau eru svo heppin að vera komin með rafmagn. Við vitum hinsvegar ekkert hvort rafmagn sé komið á hjá okkur. Samkvæmt rafmagnsveitunni (FPL) fá sumir í Miami ekki rafmagn fyrr en 22 nóvember. Okkur sýndist að áætlun fyrir okkar svæði væri c.a. 15. nóvember. Við vorum orðin pirruð á rafmagnsleysinu síðast en það voru jú bara þrír dagar. Það verður því forvitnilegt að vita hvort við verðum komin á klepp þeirra Flórídabúa eftir fyrstu vikuna... En vonandi vinnum við í "happdrætti rafmagnslausra" og rafmagnið verður komið á í íbúðinni þegar við komum heim í kvöld. Ekki telst það nú samt líklegt.
Við erum allavegana undirbúin undir hálfgerða útilegu. Keyptum vatn, lítið gasgrill, gashellur, slatta af batteríum, bensínbrúsa til að birgja okkur upp áður en við komum til Miami o.s.frv. Það er nefnilega mikil biðraðastemmning á svæðinu núna, svona eins og í sovét forðum. Vorum einmitt að horfa á CNN áðan þar sem var talað um mikinn pirring hjá almenningi vegna skorts á vatni, bensíni o.s.frv. Við munum fylla á tankinn alla leiðina og á síðustu bensínsstöðinni sem verður biðraðalaus....
En það er merkilegt með veðurfarið hér norður af Flórída. Það er svo miklu kaldara þó þetta sé bara 8 tíma keyrsla. Við pökkuðum niður fötum eins og við notum dags daglega í Miami. Ég tók t.d. með mér þrennar stuttbuxur og nokkra boli en enga yfirhöfn. Hef varla farið í stuttbuxur síðan ég kom hingað og var að drepast úr kulda í gærkveldi á röltinu. Svo var ískalt hér í herberginu í nótt þannig að við settum hitaofninn af stað, nokkuð sem er ekki til í Flórída...
kk.,
Sigfús og Erna, suðurríkjaflakkarar

2 Comments:
Hæhæ
Gaman að heyra að suðurförin gengur ágætlega. Munið eftir að stilla klukkuna 1 klst afturábak í kvöld. 'Spring forward, fall behind'. ;-)
Kveðja
Ha ha ha ha.. þetta verður súrrealísk stemmning hjá ykkur.
Syngjandi með kertaljós í annari og gasgrill í hinni...
Þetta eru góðar minningar sem geymast.
Post a Comment
<< Home