Friday, October 21, 2005

Bíðum átekta

Skólinn gaf út tilkynningu í dag þar sem kom fram að ekki verði tilkynnt fyrr en á morgun hvort skólahaldi verði aflýst á mánudag. Við neyðumst því til þess að vera hér áfram a.m.k. til morguns. Hefðum drifið okkur af stað í dag ef ég ætti ekki að fara í tvö próf á mánudag. Mjög óþægilegt að vita ekki hvort skólinn verði opinn eða ekki á mánudag því ef prófin verða get ég ekki verið að flakka mikið, nóg að lesa.......

En svona eru þessir blessuðu fellibylir, eintóm óvissa um hvar þeir lenda og hversu sterkir þeir verða þegar þeir koma.

Neyðarplanið okkar er að keyra til Charleston í S-Karolínu (um 10 klst keyrsla) en þar búa Berglind og Benni vinir okkar. Væri gott að geta slegið tvær flugur í einu höggi, heimsótt þau og forðast jafnframt Wilmu og afleiðingar hennar s..s rafmagnsleysi og annað sem svona löguðu fylgir. Einnig kemur til greina að gista einhversstaðar í norður Flórída eða í Savanah í Georgíu.

Hér er hægt að sjá gervihnattamyndir af Wilmu sem eru uppfærðar reglulega:
http://storm1.herald.com/auto/miamiherald/global/Region/g1/2xpxIRSatellite.html

Og hér er spáin fyrir næstu daga, s.s. Wilma á að koma einhversstaðar á þessu gula svæði á mánudag eða aðfararnótt þriðjudags:
http://storm1.herald.com/auto/miamiherald/tropical/tracking/at200524_5day.html

Kveðja frá ríki sólar og fellibylja,
Sigfús og Erna

0 Comments:

Post a Comment

<< Home