Saturday, October 22, 2005

Keyrum norður....

Skólinn var rétt í þessu að tilkynna að það verði lokað á mánudag og við keyrum því norður á bóginn. Berglind og Benni búa í Charleston í S-Karólínu og er förinni heitið þangað. Þetta ferðalag á að taka um 10 klukkutíma samkvæmt mapquest.

Reiknað er með að nokkuð dragi úr Wilmu þegar hún kemur hingað á Flórídaskagann og að hún verði líklega komin niður í stig 1 á fellibyljakvarðanum. Það er sami styrkur og Katrín var þegar hún kom hér yfir og við urðum rafmagnslaus í þrjá daga. Okkur langar ekki til að vera í rafmagnslausri borg í marga daga auk þess sem það getur vel verið að styrkurinn verði meiri þegar hún fer hér yfir, það veit í raun enginn nákvæmlega.

Hér að ofan er kort af fyrirhuguðu ferðalagi.

kk.,
Sigfús og Erna

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Gott að vita að þið veriðið óhult! Gangi ykkur bara sem allra best! Kær kveðja, Haraldur og family. :*

12:00 PM  

Post a Comment

<< Home