Friday, November 04, 2005

Suðurríkjaflakkið

Erum enn án internettengingar heima og sjónvarps en kvörtum svo sem ekki þar sem fullt af fólki er enn án rafmagns...

En hér kemur s.s. heilmikið blogg um suðurríkjaferðina okkar, ferðin sem var farin að tilstuðlan Wilmu blessunarinnar. Mikið ósköp var þetta rétt ákvörðun hjá okkur, höfum nefnilega verið að tala við fólk sem var hér allan tímann og það var ekkert sérstaklega skemmtilegt að mér skilst. T.d. útgöngubann frá 18-06 nokkra daga o.s.frv.


Ferðin okkar var vægast sagt mjög góð og fengum við frábærar móttökur hjá þeim Berglindu og Benna, þ.e. hjá BB-Flóttamannahjálpinni. Enginn hafði búist við þetta langri heimsókn (um vika) en hún verður lengi í minnum höfð. Benni sá um að halda okkur í formi með ýmsum leikjum s.s. tennis, kajaksiglingu, og golfi. Höfum sennilega ekki hreyft okkur eins mikið í langan tíma. Á hann þakkir skildar fyrir að hrista okkur aðeins til.

En ætli sé ekki best að segja sögu þessarar ferðar í myndum og vísa ég því á myndahluta síðunnar okkar. Þar eru komnir fjórir skammtar af myndum úr ferðinni (dugaði ekkert minna). Hvet ykkur til að kíkja á þær. Slóðin er:

http://www.myndasidanokkar.blogspot.com

kk.,
Sigfús og Erna

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Bara að segja hæ! Kv. Halli

4:59 PM  
Anonymous Anonymous said...

Halló- mikið er gaman að sjá hvað þið virkilega njótið lífsins og að survivor instinct eru í lagi! Kíki alltaf inn hérna en gleymi oftast að þakka fyrir mig.
Svo takk, takk og keep enjoying life in the sun and hurricanes!
ástarkveðjur,
guðrúnbirgis.

10:03 AM  

Post a Comment

<< Home