Hollywood......Florida
Það er ansi magnað að vera kominn hingað út aftur, á móti manni taka; hiti, raki, blæjubílar, pálmatré, heitur sjór og annað sem tilheyrir. Í rauninni er allt öfugt við það sem maður á að venjast heima. Í stað þess að hlaupa á milli húss og bíls til að frjósa ekki úr kulda er nú það sama gert til þess að forðast hitasvækjuna. Hitinn er reyndar mjög þægilegur núna og það var notalegt að koma út úr flugstöðinni í þetta loftslag og ekki var verra að þar beið mín þessi líka fagra og skemmtilega íslenska fjallamær.
Við skulum skilgreina þetta fyrsta blogg í "Flórídadvöl - Part II" sem kynningu á híbýlum okkar hjóna. Verð að segja að íbúðin og sameignin sem fylgir henni er framar öllum væntingum. Við búum á sjöundu hæð í stórri blokk og útsýnið er frábært úr íbúðinni, við sjáum vel yfir stórt svæði hér í kring og út að sjó nema hvað við ströndina eru skýjakljúfar sem skyggja á sjávarsýnina. Handan við götuna er önnur minni blokk þar sem öll sameiginlega aðstaðan er, frábær sundlaug með góðri sólbaðs- og grillaðstöðu. Þar er einnig "club-house" sem hægt er að leigja ef við myndum til dæmis vilja halda partý, mjög flott gym er þarna líka ásamt bókasafni og internetaðstöðu. Gangarnir eru allir prýddir málverkum og flottum mubblum. Ekki laust við að ég "fíli" mig eins og á fjögurra stjörnu hóteli.
Til þess að toppa þetta allt þá keypti Erna kapalþjónustu með um 170 stöðvum og "pay-perview" systemi þar sem við getum pantað okkur þær myndir sem við viljum á hvaða tíma sólarhringisins sem er. Í því kerfi er einnig boðið uppá fjölmargar myndir ókeypis sem hentar vel námsmönnum og starfsnemum. Það stefnir því allt í það að við þurfum ekkert að vera að ómaka okkur við að kynna okkur svæðið í kring eða Bandaríkin almennt, við bara lifum í okkar eigin heimi hér í þessari byggingu.........múhahahhaa
Hverfið virkar mjög fínt, hér er fullt af veitingastöðum, búðum og pöbbum. Það er þó mikill munur á þessu hverfi og hverfinu sem við bjuggum í í Suður- Miami. Hér sjást t.d. venjulegir bílar eins og Ford og Toyotur en ekki bara Jagúar, Hummer og Ferrari. Má segja að hér séum við aðeins nær "normal" amerískum standard en í hinu hverfinu bjuggu eiginlega bara moldríkt fólk.Á myndasíðunni okkar geta þeir sem hafa áhuga á að skoða íbúðina okkar og nánasta umhverfi gert það. Fullt af nýjum og skemmtilegum myndum. Einnig saga frá fyrstu Costco ferðinni í þetta sinn en þeir sem lásu bloggið síðasta vetur kannast við það fyrirbæri. Njótið.

8 Comments:
anaegd med framtak ykkar ad hafa opnad bloggsidu. Verd ad vidurkenna ad eg er ekki andlega nogu hress til ad horfa a thessar solriku myndir!! Ein ofundsjuk!!!!
Hlakka til ad fylgjast med ykkur. Erla.
Gaman að fá að fylgjast með ykkur í blokkinni! Manni verður bara hugsað til Herberts..
Trying’ to make connections
Isn’t easy to do
You tell them you’re from Iceland
And they just look at you
Hey you, who you trying’ to fool
Hey you, is it true
:)
Kveðja, Gunnhildur
Mikið er nú gaman að þið séuð byrjuð að blogga aftur! Nauðsynlegt að geta fylgst með því hvað þið eruð að gera af ykkur. Fínasta íbúð!
Hjördís
Legg til að Sigfús fókuseri á að taka myndir á ströndinni af léttklæddum meyjum til birtingar á síðunni;þ
Kv. ÓÖS
Godur punktur Oli, fer i malid sem fyrst... ;)
kk.,
Sigfus
Bara svona að tékka hvort bróðir hafi ekki lennt í terroristum og hafi lennt heill á húfi. Og ég minni á aðal tilgang þinn þarna sem er að kaupa handa mér ferðaepli! Ástar kveðuðjur frá Haroldi kómíska. Hihihihahohohhmm.
Frábært að þið séuð búin að opna aftur bloggsíðuna! Gott að heyra hvað þið unið ykkur vel í Ameríkunni. Knús frá Brussel,
Telma
Húsbóndinn stendur sig sérlega vel í að dokumentera útlandadvölina að vanda. Ánægð með að geta haldið áfram að fylgjast með ykkur og ekki verra að það sé í Hollywood!
Flott íbúð og geggjað umhverfi. bestu kveðjur Eva
Post a Comment
<< Home