Uppgangur í S-Flórída o.fl..
Ef það er eitthvað sem einkennir S-Flórída þá er það sá gífurlegi uppgangur sem hér ríkir. Það eru bygginga- og vegaframkvæmdir útum allt með tilheyrandi umróti og umferðartöfum. Mikil fólksfjölgun hefur orðið á svæðinu undanfarin ár og búist er við enn meiri fjölgun þegar hin svokallaða "Baby-boom" kynslóð fer á eftirlaun og flyst hingað suður í heitara loftslag. Þessum mikla uppgangi fylgir mikið fasteignabrask en þeir sem byrjuðu í því á þessu svæði fyrir um 10 árum síðan hefur gengið gríðarlega vel og eru í góðum málum. Líkt og heima er hér talað um að hækkunum á húsnæðisverði hljóti að linna og í dag er talað um að ekki sé "seljendamarkaður", markaðurinn hefur róast og leitað jafnvægis. Fólk hefur hinsvegar ekki áhyggjur af því að verðið muni lækka og vísar þá til fyrrnefndu "Baby-boom" kynslóðar sem er við það að fara á eftirlaun og mun þá samkvæmt kenningunni flykkjast hingað suðureftir og kaupa sér eignir eða leigja.
Okkar bær, Hollywood, er afar gott dæmi um þennan mikla uppgang. Við búum í miðbæ Hollywood og hér í miðbænum eru að rísa tvær risastórar íbúðablokkir (eins og við búum í) auk þess sem verið er að taka aðaltorgið í gegn. Okkur skilst að framkvæmdir við aðaltorgið séu búnar að standa yfir í heilt ár og gangi hægt. Það er nefnilega þannig hér í S-Flórída að hlutirnir gerast ekkert ofboðslega hratt. Til að styðja þetta rökum má benda á að eftir samræmdar mælingar á afgreiðslutíma flugvalla í Bandaríkjunum kom í ljós að Miami-flugvöllur var með hægustu afgreiðsluna (kemur á óvart). Hér í miðbænum er einnig búið að tæma margar byggingar og líklegast á að rífa þær niður og reisa nýjar stærri og betri.
Í fyrradag tók ég Önnu Maríu vinkonu okkar til fyrirmyndar og hóf að kanna hverfið með markvissum hætti. Þegar við heimsóttum Önnu og Gulla í NY í fyrra sýndi hún okkur kaffihús sem hún var fastagestur á og almennt hefur hún bent okkur á mikilvægi þess að þekkja hverfið sitt. Ég er sem sagt búinn að grandskoða hverfið, finna pósthúsið, matvörubúðirnar, bókasafnið og síðast en ekki síst írskan pöbb. Já, Erna fór í einhvern "viðskiptadinner" í fyrrakvöld og húsfaðirinn skaust þá náttúrulega yfir götuna á írska pöbbinn sem hann hafði ásælst síðan hann kom. Spjallaði heilmikið við barþjóninn sem reyndist skoskur (ja, ef ekki fæst Íri til að vinna á írska pöbbnum þá er náttúrulega næsti kostur að fá Skota í djobbið ekki satt?). Skoski barþjónninn er búinn að búa hér í 16 ár og eftir langt spjall vorum við sammála um að Skotar og Íslendingar eigi margt sameiginlegt en einna helst það að báðum þjóðum þykir sopinn afar góður. Til að innsigla þennan sameiginlega skilning teygði Skotinn sig í flösku af snafsi, skenkti í tvö glös og gaf mér annað og skáluðum við svo í botn og sögðum "Skál" á íslensku. Hef ég hug á að líta þarna oftar, sérstaklega ef Skotinn heldur áfram að bjóða uppá snafsinn góða......
Í gær skutlaði ég Ernu í vinnuna í Fort Lauderdale. Hún vinnur í háhýsi í miðbæ Fort-lauderdale sem hýsir lögmannsstofu hennar, Holland & Knight, auk fleiri möppudýrafyrirtækja. Ernu líkar vel í vinnunni, vinkona hennar úr UM vinnur þarna og nú er hún farinn að kynnast fleirum í fyrirtækinu, fór m.a. í löns með fjórum kvensum í hádeginu í gær. Hún er s.s. farinn að kynnast "könum" en það er eitthvað sem fór lítið fyrir hjá okkur hjónum í Miami (umgengumst meira af S-Ameríkönum og Evrópubúum þar).
Eftir skutlið fór ég í útréttingar en eitt og annað þarf að gera þegar verið er að koma sér fyrir í nýju landi. Aðalverkefnið var að keyra til Miami og ná í restina af dótinu okkar hjá Gulla og Önnu Maríu sem nú eru í gömlu íbúðinni okkar í S-Flórída. Ég byrjaði á því að keyra niður á strönd hér í Hollywood til að kanna aðstæður. Það tekur um 10 mínútur að keyra á ströndina og leist mér afar vel á það sem hún hafði uppá að bjóða. Ströndin virkar mjög hrein og girnileg. Á svo eftir að kanna með almenningssamgöngur til strandarinnar og eins að prufa að hjóla þangað.
Keyrði því næst meðfram strandlengjunni til Miami. Ákaflega skemmtileg leið sem endar á South-Beach. Þegar komið var til South-beach fór ég að kannast betur við mig og það er alltaf gaman að keyra á brúnnum milli S-Beach og miðbæjarins og sjá skýjakljúfana í miðbænum. Einnig var gaman að koma aftur í gömlu íbúðina og tók ég rölt um hverfið svona til upprifjunar.Þeir sem hafa áhuga á að skoða myndir síðustu daga geta gert það á myndasíðunni okkar. Fullt af nýjum myndum úr hverfinu, vinnustað Ernu og frá Miami-ferð Fúsa...........

3 Comments:
Hahha, já auðvitað fannstu þér Skota til að sötra með! Þetta er fínt fólk ;)
Kveðja,
Auður Rán Edinborgari
skotar eru næst bestir á barnum :) á eftir írum auðvitað...
ég apaði eftir þér og bætti link á ykkur hjónin á minni síðu... þó ég viti nú ekki alveg hvort það verði sauðir sem rata hingað inn :)
matarsögurnar halda áfram í náinni framtíð, getur ekki verið að við séum búin að fá allt það undarlega sem hægt er að bjóða uppá hér í stóra kínalandinu...
bestur kveðjur frá hundaætunni...
ég verð nú bara að koma á framfæri hrifningu yfir myndablogginu, þeirri snilldarhugarsmíð :) er jafnvel að hugsa um að copya þessa hugmynd vegna einstaklega lélegrar nettengingar á heimili mínu... sem gerir það að verkum að ég kemst ekki inn á myndasíðuna mína...
Post a Comment
<< Home