Hún á afmæli í dag, hún á.............
Haldið að frúin eigi ekki bara afmæli í dag!! Eldaði handa henni eggjahræru að hætti hússins í morgun og gaf henni gjöf sem ég held bara að hún hafi verið ansi ánægð með. Það er nefnilega að verða erfiðara og erfiðara að gefa gjafir eftir því sem líður á sambandið, hugmyndaflugið einhvernvegin nær ekki lengra en í nokkrar gjafir en svo dettur maður inná eitt og eitt ár þar sem ljósaperan skín skært á ný. Í kvöld er svo planið að fara eitthvert út að borða í tilefni dagsins og þess að þetta er síðasta kvöld múttu hér hjá okkur í Hollywood. Tveggja vikna viðburðarríkri heimsókn er nú að ljúka og við tekur stutt dvöl á Íslandi áður en hún heldur á ný til Kanaríeyja þar sem hún dvaldi líka síðasta vetur.Þetta er hálfgert "örblogg" en það hefur ekki gefist mikill tími aflögu til að blogga að undanförnu. Bæði höfum við verið að keyra mömmu um helstu túrhestastaði S-Flórída og svo er allt brjálað að gera í náminu hjá húsbóndanum, verkefnaskil, próf o.sfrv. Þið eigið von á tíðari og ítarlegri bloggum á næstunni........

4 Comments:
Innilega til hamingu með 19 ára afmælið.
Bragi og Eygló
til hamingju með ammælið!!! jú, það er ekki laust við að mar hafi saknað frekari skrifa hér...
Til hamingju með afmælið Erna! Hvað fékkstu í afmælisgjöf frá Sigfúsi?
Til hamingju með afmælið Erna :) (Síðbúnar afmæliskveðjur!) Bestu kveðjur frá Mörtu frænku & laganema
Post a Comment
<< Home