Friday, September 22, 2006

"Casual Fridays"

Í gærkvöldi sagði Erna mér hróðug að á morgun væri "Casual Friday" í vinnunni. Ég hváði við og spurði hvað í ósköpunum það væri enda held ég að almennt sé þetta hugtak ekkert sérstaklega vel þekkt á Íslandi. Jú, þá mega lögfræðingarnir hjá Holland & Knight sem sagt mæta frjálslega klæddir í vinnuna. Þá erum við ekki að tala um gé-streng og netabol heldur meira svona gallabuxur og pólobol eða eitthvað álíka. Þetta þykir afar skemmtilegt á þeim bænum og ég sé liðið alveg fyrir mér hoppandi um af kæti í gallabuxunum.

Sitt er hvert flippið því ekki þótti svona lagað flipp á mínum vinnustöðum hjá borginni (meira svona norm). Er farinn að gera mér betur og betur grein fyrir því hversu flippaðir mínir vinnustaðir hafa verið undanfarin ár.

Það þarf svo ekki að taka það fram að Erna fór hér út í morgun með bros á vör í gallabuxum og bol, tilbúin að takast á við flippaðan vinnudag á lögmannsstofunni........

3 Comments:

Blogger Embla Kristjánsdóttir said...

tja, hvernig ætli "casual friday" hefði verið hjá okkur??? læt mér detta í hug "cash as usual friday" sem hefðu þá verið notuð föt úr kolaportinu sökum launa starfsmanna... því ég er nokkuð viss um að við höfum öll verið sæmilega samtaka í að eyða um efni fram og höfum því normalt ekki haft efni á "casual" fatnaði...

smá hugleiðingar í gangi frá amstri dagsins í Kína... kannski ég hafi borðað eitthvað sem gerir þetta að verkum???

7:11 AM  
Anonymous Anonymous said...

Já Embla, HH-gengið hefði þurft að "afflippa" sig í staðinn. T.d. mæta í jakkafötum í einn dag eða eitthvað álíka.

Annars vorum við í Tjarnargötunni í sumar mikið að spá í að hafa svokallaðan "Muuu-klukkutíma". Þá áttu allir starfsmenn skrifstofunnar að mæta með svitabönd og propps eins og risastóran bor og hegða sér eins og fólkið í Muu-auglýsingunni í eins og einn klukkutíma. Ganga í "sló-mó" og horfa hægt til hvors annars og segja; Muuuuuuuuuuuuuu

Ekki varð af þessu en stefnan er að láta úr rætast sem fyrst.....

kk.,
Sigfús Muuuuu

7:39 AM  
Blogger Bragi said...

ohhh þessir kanar eru svo flippaðir. Ég er ekki viss um að ég gæti unnið á svona flippuðum vinnustað.

4:16 AM  

Post a Comment

<< Home