Túrhestar á heimaslóðum II
Þá er tveggja vikna dvöl móður minnar lokið, hún fór heim á miðvikudaginn. Þetta var ansi viðburðarrík dvöl og við náðum að gera margt með henni þrátt fyrir ökklabrot strax á fjórða degi með tilheyrandi spítala- og hjólastólabrölti. Við fórum á föstudaginn með hana í kokteil á vegum lagadeildar UM þar sem við hittum marga af þeim sem voru með Ernu í bekk á síðasta ári. Skemmtilegir endurfundir þar.
Á laugardaginn byrjuðum við á því að slappa af í sundlauginni en ég og mamma fórum svo niður á strönd hér í Hollywood sem var einkar skemmtileg ferð. Miklu fleira fólk heldur en ég hef nokkurntíman séð þarna enda helgi og frábært veður. Á myndasíðunni okkar eru fullt af myndum frá þeirri ferð og nokkrar þeirra eru sérstaklega teknar fyrir Óla sem sendi áskorun hér í kommentakerfinu um daginn. Um kvöldið fórum við svo niður á South-Beach og fórum á veitingastað sem heitir Tapas y Tintos sem er frábær, mælum eindregið með honum. Það er alltaf gaman að koma um helgar niður á South-Beach og skoða umhverfið og hafði mamma einna mest gaman að þessu kvöldi enda vill hún hafa doldið líf í kringum sig.
Á sunnudaginn fórum við svo á samkundu Íslendingafélagsins í S-Flórída en við fréttum af henni fyrir algjöra tilviljun þegar ég og mamma rákumst óvænt á Íslending hér í hverfinu sem sagði okkur af þessu. Grillpartýið var haldið í almenningsgarði hér í nágrenninu, boðið var uppá grillaðar pylsur, kók, bjór og allt tilheyrandi. Haldið var happadrætti þar sem viningarnir voru flestir í formi íslensk fisks og kjöts. Ein konan þarna átti nokkuð gullna setningu að okkar mati þegar hún sagði eftirfarandi: "Já, það er gott að búa á Íslandi en það vill bara enginn vera þar". Þarna var þá aðallega verið að vísa til veðurfarsins og dýrtíðar heima. Reyndar fannst mér margir þarna tala um þetta tvennt, þ.e. að þeir söknuðu ekki veðurfarsins heima og svo væri allt orðið svo dýrt þar. Ég held ég verði nú að taka undir þetta, fékk hálfgert sjokk þegar ég sá hækkanirnar á matvörum frá því við fórum út á síðasta ári og þar til í sumar. Þvílíkt og annað eins. Er ekki kominn tími til að taka á þessu rugli?
Um kvöldið fórum við mamma svo að skoða nýopnaða tónlistar- og listamiðstöð sem var verið að opna með pompi og prakt í miðbæ Miami. Glæsilegt mannvirki með fullt af tónlistarsölum og risastórum óperusal. Aldrei að vita nema maður skelli sér á eina óperu eða svo í vetur.Ætli ég segi þetta ekki gott í bili og bendi þeim sem vilja skoða myndir frá síðustu dögum og lesa aðeins meira á myndasíðuna okkar en þar er kominn heill bunki af nýum myndum.
Yfir og út..........

1 Comments:
Það er vont að búa á Miami en það vilja samt allir vera þar segi ég nú bara! Já það er dýrt að éta hérna enda eru ameríkanarnir með hambórassgat HOHOHO!
Nei nei bara að reyna að segja eitthvað. Kv. Halli
Post a Comment
<< Home