Hið ljúfa líf...........
Helgin var ansi ljúf og skemmtileg verð ég að segja. Bara ef allar helgar væru svona ;) Vöknuðum um 10 leytið á laugardaginn og drifum okkur í vatnasport með Raúl, Maríönnu og nágrönnum þeirra. Raúl hafði farið þarna áður og ég hafði lýst yfir áhuga á að prófa og stakk hann þá uppá að við drifum okkur núna á laugardaginn. Ég hélt reyndar að ég væri að fara á sjóskíði en kaninn er náttúrulega búinn að þróa það konsept yfir í eitthvað miklu meira og skemmtilegra. Farið er í einskonar lyftu sem dregur mann áfram á vatni og getur maður valið búnaðinn sem fleytt er á vatninu á, sjóskíði, vatnsbretti eða hnjábretti. Skylda að fara fyrst á hnjánum meðan maður er að venjast því að halda jafnvægi á vatninu. Ég var sannfærður í fyrstu að ég þyrfti
bara einn hring á hnjánum og svo tæki við sjóskíði eða bretti með þvílíkum kúnstum og látum. En nei. Fyrsta ferðin fór þannig fram að ég náði c.a. þrjá metra frá landi og þar af tvo þeirra án þess að vera á bretti, s.s. hékk bara í bandinu. Og það sem verra var að stuttbuxurnar voru komnar niður á hæla á virðulegum húsbóndanum. Ekki lengi að kippa því í liðinn og horfa í kringum mig til að ganga úr skugga um að enginn hefði séð þetta hrikalega klúður ;) Passaði mig á því í næstu salíbunu að reima allt vel.......
Næsta ferð gekk bara nokkuð vel. Tókst að halda mig á brettinu í 2/3 af hringnum og reyndist það vera persónulegt met þennan daginn. Næstu tvö skipti datt ég eftir c.a. 1/4 af hringnum og í síðasta skiptið dróst ég af brettinu strax í upphafi nema hvað buxurnar héldust uppi í þetta skipti..... Já, þetta reyndist heldur betur erfiðara en á horfðist. Erna átti í svipuðum vandræðum nema hvað hún var í sundbol sem ég mæli með við þessa iðkun, mæti sjálfur í slíkum næst.. múhahahah. Raúl stóð sig eins og hetja á sjóskíðunum/vatnsskíðunum, náði heilum hring en hefur metnað í meira. Aldrei að vita hvort maður skelli sér á sjóskíðin næst.........
Um kvöldið buðum við svo þeim hjónum heim í lambalæri með öllu tilheyrandi s.s. rauðkáli, grænum baunum og brúnuðum kartöflum. Létu þau ansi vel að matnum og Raúl var meira að segja farinn að tala um að við kæmum með afgangana til þeirra til Miami og halda bröns næsta morgun. Ansi notalegt kvöld og þau hjón eru ansi skemmtilegt og gott fólk.
Ekki tók síðri dagskrá við á sunnudeginum en þá byrjuðum við á að fara í bröns á stað niður við ströndina. Íslendingur sem ég hafði hitt hér í hverfinu fyrir tilviljun hafði mælt með þessum stað og þegar við googluðum hann reyndist hann bjóða uppá "Sunday-bröns" sem er vinsælt konsept hér á svæðinu. Og þvílíkur bröns og þvílíkt útsýni..... Eftir matinn fórum við svo niður á strönd í sólbað og voru ansi margir mættir þar til að njóta veðurblíðunnar og sjósins. Ég held að ég geti alveg vanist því að búa hér...........Þau ykkar sem hafið áhuga á að skoða fleiri myndir skellið ykkur á myndasíðuna okkar. Fullt af myndum frá helginni.

1 Comments:
össs hvað þið hafið það gott :) væri alveg til í sona líf í staðinn fyrir þýðingar frá kínversku yfir á ensku...
Post a Comment
<< Home