Sunday, September 24, 2006

Og það var drengur....

Helstu tíðindin héðan frá S-Flórída eru þau að Gulli og Anna María eignuðust heilbrigðan og fallegan dreng á föstudaginn. Þau eru stórvinir okkar hjóna og búa í gömlu íbúðinni okkar í S-Miami. Spítalinn sem drengurinn fæddist á heitir South Miami Hospital og er rétt hjá íbúðinni sem við bjuggum í. Við fórum í dag (sunnudag) í heimsókn til þeirra til að skoða frumburðinn og stóð hann algjörlega undir væntingum. Samkvæmt því sem faðir drengsins heldur fram þá eru allir helstu sérfræðingar spítalans sammála um það að þetta sé fallegasta og gáfaðasta barn sem fæðst hefur í Miami síðustu árin ;). Það verður gaman að heimsækja litlu fjölskylduna í S-Miami í haust og fylgjast með drengnum vaxa og dafna fyrstu þrjá mánuði ævinnar en þau stefna svo á að fara heim um miðjan desember.

Fyrir utan það að vera í símasambandi við Gulla og Önnu Maríu um helgina og fara í dagsheimsókn til þeirra þá fórum við í gymmið og útréttuðum hitt og þetta sem vantaði í búið. Þau ykkar sem hafa áhuga geta litið á myndasíðuna okkar þar sem er að finna myndir af nýfædda barninu auk mynda frá síðustu dögum.

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Frábært!! Endilega skilaðu hörkuhamingjuóskum frá okkur!

7:04 AM  

Post a Comment

<< Home