Thursday, October 19, 2006

Netflix er snilld!

Eitt af því sem ég mun sakna þegar ég fer heim er Netflix. Þetta er fyrirtæki sem var stofnað fyrir einhverjum árum og viðskiptahugmyndin var eitthvað á þessa leið: Fólk pantar sér DVD myndir á netinu - fær þær sendar heim í pósti - hægt að velja hvort maður hafi 2 eða 10 heima í einu - maður velur úr gríðarlega stórum gagnabanka þar sem nær allar myndir fást m.a. margar íslenskar - setur þær í röð og er maður kannski með allt að 100 myndir í röð - þrjár efstu myndir eru alltaf sendar heim og um leið og einni er skilað í pósti er næsta í röðinni send heim. Þarna er hægt að vera með Netflix vini, séð hvaða myndir þeir hafa tekið og hvaða einkunn þeir gefa henni. Úrvalið er ótrúlega mikið, heimildamyndir, eldri myndir, pólitískar myndir, erlendar myndir og yfirleitt alltaf hægt að fá það sem maður biður um. Sem sagt algjör snilld.

Að sjálfsögðu hafa hákarlarnir á markaðnum s.s. Blockbuster apað eftir þessu og bjóða uppá svipaða þjónustu. Ég er eiginlega hálf hissa á að þetta sé ekki komið heim og hlýtur bara að vera tímaspursmál hvenær það gerist nema ástæðan sé einhverskonar einokun (Á ekki Myndform allan markaðinn heima?) sem kemur í veg fyrir að einhver geti farið útí þennan bissnes. Kannski að maður ætti bara að kýla á þetta sjálfur........

Hér er hægt að kíkja á heimasíðu Netflix.

4 Comments:

Blogger Embla Kristjánsdóttir said...

mér finnst þú kominn með gríðargóða viðskiptahugmynd þarna... segi að þú kýlir bara á þetta :) pant verða fyrst viðskiptavinurinn...

2:21 AM  
Anonymous Anonymous said...

Styð þessa hugmynd heilshugar. Þegar ég var hjá vinum mínum í Stokkhólmi voru þau einmitt að dásama svipað kerfi í Svíaríki. En er VODið hjá skjánum kannski að virka svipað? Leigi frekar mynd þar en að fara út á leigu sem er frekar leiðinlegur gjörningur.
kv
Rúna

10:02 AM  
Anonymous Anonymous said...

Styð þessa hugmynd heilshugar. Þegar ég var hjá vinum mínum í Stokkhólmi voru þau einmitt að dásama svipað kerfi í Svíaríki. En er VODið hjá skjánum kannski að virka svipað? Leigi frekar mynd þar en að fara út á leigu sem er frekar leiðinlegur gjörningur.
kv
Rúna

10:02 AM  
Anonymous Anonymous said...

kílum á þetta! Pant vera með!

4:16 PM  

Post a Comment

<< Home