Túrhestar á heimaslóðum
Eins og sagði í síðasta bloggi þá er móðir húsbóndans í heimsókn hér hjá okkur í Hollywood. Við erum því búin að taka einskonar "túristapakka" á okkar nánasta umhverfi sem er mjög gott því það er einhvernvegin þannig að maður á það til að vanrækja að skoða helstu staði á heimaslóðum. Heimsóknin tók reyndar allt aðra stefnu en við höfðum reiknað með þegar mútta var svo óheppin að snúa sig mjög illa á vinstri fæti með þeim afleiðingum að lítil sprunga kom í ökklann. Höfum við því verið að eiga við heilbrigðiskerfi kanans að undanförnu og verð ég að segja að samanburðurinn við það íslenska kemur mjög vel út fyrir okkar kerfi.Við höfum verið send bæjarhlutana á milli og beðið samtals í vel á annan tug
klukkutíma á biðstofum síðan þetta kom uppá. Meðal annars biðum við í fimm tíma á biðstofu sérfræðings hér í Hallandale (áttum pantað kl. 12 en fengum ekki afgreiðslu fyrr en rúmlega 17). Held að við Íslendingar ættum að líta eitthvert annað en til Bandaríkjanna ef við ætlum að leita að fyrirmynd í þessum málum. Sýnist þetta ganga ansi fínt fyrir sig á Norðurlöndunum og samkvæmt rannsóknum mínum síðasta vetur eru Bandaríkjamenn með dýrasta heilbrigðiskerfi í OECD og eru t.d. að borga jafnmikið úr ríkiskassanum miðað við landsframleiðslu og Norðurlöndin og svo bætist einkageirinn ofaná. Ég er til í rökræður og samræður við "frjálshyggjumógúla" heima hvað þetta varðar hvenær og hvar sem er ;)
En fyrir utan þetta leiðinda óhapp höfum við átt margar ánægjulegar stundir með mömmu og náð að "covera" ansi margt með henni. M.a. farið í tvær siglingar, sýnt henni South-Beach, miðbæ Miami og margt fleira. Einnig höfum við náð að prufa ansi marga veitingastaði hér í hverfinu okkar og verður að segjast að þetta hverfi leynir ansi mikið á sér hvað slíkt varðar, fullt af flottum veitingastöðum og börum.Fyrir þau ykkar sem viljið setja ykkur í "túrhestastellingar" og sjá m.a. glæsihýsin sem Shaq Oneal ofl. búa í þá getið þið kíkt á myndasíðuna okkar þar sem nokkrar vel valdar myndir frá síðustu dögum er að finna.

2 Comments:
mann langar nú bara þvílíkt í heimsókn eftir þessa færslu :) vona að múttan þín nái sér sem fyrst...
Sælinú. Agalegt að heyra með móður þína. Vonandi heilsast henni sem best miðað við aðstæður og batni fljótt.
Sammála þessu með heilbrigðisgeirann þarna úti. Ég las einhversstaðar að USA er með LANG-óskilvirkasta heilbrigðiskerfi í heiminum, sem er frekar döpur staðreynd hjá ríki sem telur sig vera hið 'þróaðasta' af þeim öllum. Ofan á það leggst sá ósköpnuður á að manneskjan sem slík hefir engin mannréttindi sem þessu tengjast, því það er atvinnurekandinn sem ákvarðar hversu mikið skal í það lagt að lappa upp á hana heilsulega séð dynji einhver ósköp yfir hana. Þá bætir ekki úr skák að sökum dýrra trygginga eru um eða yfir þriðjungur bandaríkjamanna án heilsutryggingar. Oft er það því eina von fólks þegar það slasast að fara í málaferli, hversu fáránleg sem þau kunna að hljóma í eyrum okkar sem eru svo heppin að búa við góða heilsutryggingu........og allt á meðan USA dælir peningum í stríðsbrölt...AAARRRGGGHHH! :-!
Æji, afsakið. Ég missti mig aðeins .... :-)
Jæja, bestu kveðjur héðan frá Íslandi með vonum og óskum um að þið hafið það sem best og slasist ekkert!
P.S. t.d. Noam Chomsky
Post a Comment
<< Home