Jólastemning, Everglades og fleira
Nú er
langri helgi að ljúka hjá okkur Ernu. Hún tók sér frí á miðvikudaginn, á fimmtudag og föstudag var svo frí í vinnunni vegna Thanksgiving. Þetta var því fimm daga helgi hjá okkur. Gerðum ýmislegt en slöppuðum þó aðallega af. Vorum boðin í mat hjá samstarfsfélaga Ernu á Thanksgiving og var það ansi notalegt verður að segjast. Fórum eitthvað í kringlur þeirra Miamibúa og upplifðum jólastemninguna sem er nú búin að taka gjörsamlega yfirhöndina á þeim bæjunum. Lukum svo helginni í dag með ferð í Everglades-þjóðgarðinn þar sem var vart þverfótað fyrir krókódílum. Kíkið endilega á myndasíðuna okkar en þangað er nú kominn heljarstór skammtur af myndum frá síðustu dögum.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home