Jólahald, áramót og Woody Allen
Við komum úr siglingunni um karabíska hafið snemma á aðfangadag. Það voru því ferðalúin hjón sem komu í íbúðina sína í Hollywood á þessum mikla hátíðisdegi. Húsbóndinn hafði náð sér í inflúensu á síðustu dögum siglingarinnar og því ekki líklegur til stórræðanna hvað jólahald varðaði. Náði samt að rífa mig upp og fara í verslunarleiðangur í Publix þar sem gerð voru stórinnkaup fyrir jólin. Keypti m.a. jólaskinku, rauðkál (já það fæst hér) ávexti í waldorfsalad, gular baunir og þessar helstu nauðsynjar. Elduðum svo herlegheitin saman og opnuðum fína rauðvínsflösku. Opnuðum því næst þá 3-4 pakka sem höfðu borist áður en við fórum en hinir voru allir úti á pósthúsi þar sem þeir biðu okkar milli jóla og nýárs. Spiluðum íslensk jólalög og höfðum það notalegt.
Á jóladag var okkur svo boðið til Gennevie samstarfskonu og vinkonu Ernu og manns hennar Dale. Þar fengum við mjög framandi jólamáltíð í formi einskonar kínversks fondús þar sem þunnt skorið kjöt og grænmeti var sett í pott á miðju borðinu og það svo veitt upp og borðað. Mjög skemmtileg jólamáltíð á alþjóðlegu heimili en Gennevie er upprunalega frá Kína.
Þann 29. desember áttum við miða á jazztónleika Woody Allen og hljómsveitar í nýju menningar- og listahöll þeirra Miamibúa, Carnival center. Það voru afar skemmtilegir tónleikar og greinilegt að Woody er meira til lista lagt en kvikmyndaleikur og leikstjórn. Karlinn var alveg jafn aulalegur á sviði og hann er í myndum sínum. Mjög skemmtileg fígúra þar á ferð....
Hittum svo Davíð og Gustavo milli jóla og nýárs en Davíð var hér með okkur í Miami síðasta vetur. Nú var hann hins vegar mættur sem almennur túrhestur ásamt móður sinni og litla bróður. Þau fengu lánaða íbúð á besta stað á South beach á 30. hæð með ótrúlegu ústýni og aðstöðu. Þar eyddum við áramótunum með þeim og höfðum mjög gaman að. Fórum m.a. niður að Ocean Drive þar sem voru mikil hátíðarhöld og skemmtilegheit. Þau ykkar sem hafið áhuga á að sjá myndir frá þessum síðustu dögum er bent á að kíkja á myndasíðuna okkar en þar eru fullt af myndum að vanda.
Næst á dagskrá er tólf daga ferðalag um Kaliforníu en við fljúgum til San Fransisco á morgun og verðum í þeirri borg í fjóra daga. Förum svo í eina nótt í vínhéruðin þar í kring og höldum því næst til vinkonu Ernu, Láru, sem er búin að bjóða okkur að gista hjá sér. Hún býr í litlum bæ sem heitir Turlock en þaðan er m.a. stutt að fara í hinn fræga Yusimite þjóðgarð og ætlum við að skjótast þangað.Bóndinn er svo búinn að opna nýtt blogg fyrir sínar persónulegu hugleiðingar um menn og málefni og ef þið hafið áhuga þá hvet ég ykkur til að líta á nýja bloggið: www.sigfus.blog.is. Þar verða aðrar áherslur en hér, meira skrifað um þjóðmál og pólitík.......

3 Comments:
Vil bara óska ykkur gleðilegs árs og þakka fyrir það gamla. Þið hafið aldeilis verið dugleg að ferðast og það hlýtur að vera algjör upplifun að sigla í karabíska hafinu. Maður verður að reyna það einhvern daginn. Hvenær á maður svo von á ykkur hingað heim? Hlakka til að fara að hitta ykkur. Góða skemmtun í San Fran og þessu 10 daga ferðalagi. Erla.
Hæ sætu!!! Ef ég verð rekin úr vinnunni vegna lakra afkasta er það ykkar sök, maður getur alveg tapað sér í blogginu ykkar :) Vildi að ég hefði verið með ykkur á þessu netta krúsi - lítur frekar vel út allt saman svo ekki sé meira sagt! Jeminn!! Hlakka til að sjá ykkur í febrúar og hafið það obboslega gott á ferðalögunum þangað til. Knús, kossar og saknaðarkveðjur, Hædí.
Til hamingju með nýju bloggsíðuna! Langt síðan maður hefur tjáð sig við ykkur! Kv. Hærald
Post a Comment
<< Home