Tuesday, December 05, 2006

Disney

Vorum að koma úr helgarferð til Orlando þar sem við hittum Guðrúnu frænku Ernu og fjölskyldu hennar. Laugardagurinn fór allur í Disney garðinn Magic Kingdom en það eru fjórir garðar sem heyra undir Disney. Þessi er sá þekktasti en hinir eru líka ansi vinsælir. Það tekur s.s. einn dag að sjá þennan garð og þá eru hinir þrír eftir. Það var gaman að fara með fjölskyldunni í garðinn og fá að upplifa þetta með litlu frændum hennar Ernu sem eru á kjöraldri fyrir svona garða. Ákaflega skemmtilegur dagur og Disney er eitthvað sem allir aldurshópar ættu að hafa gaman að. Þetta er eiginilega heill heimur útaf fyrir sig.

Á sunnudeginum heimsóttum við þau í hverfinu þar sem þau leigja hús. Undirritaður tók m.a. 9 holur á velli sem liggur á milli húsana í þessu hverfi. Það er skömm frá því að segja en ég hef ekki snert golfkylfu síðan ég kom aftur út en er þó umkringdur völlum og aðstæðurnar eru ekki beint slæmar. Er með sett og allt. En náði allavegana einum hring þarna á sunnudaginn og það var ansi skemmitlegt. Fyrir þau ykkar sem hafið áhuga á þá eru komnar fullt af myndum frá Orlando-ferðinni á myndasíðunni okkar. Njótið.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Gaman að kíkja á ykkur. Verst hvað þið eruð alltaf fúl á myndunum! Alveg greinilegt að lífið er ekkert grín í Hollí.

Hlakka til að sjá ykkur á Íslandi fljótlega!

kveðja
Eva

3:37 PM  
Anonymous Anonymous said...

Þið eruð allt of dugleg að blogga! Mætti halda að þið væruð bara í fríi þarna! Djók. Nei það er ég sem er búinn að vera of upptekinn til að skoða. En er sem sagt búinn að vera ca. klukkutíma að skoða myndir og vá hvað það virðist vera gaman hjá ykkur! Ástarkveðjur frá mér og fjölskyldu.

7:07 PM  

Post a Comment

<< Home