Royal Caribbean
Við höfum lengi verið að spá í að fara í "cruise" um karabíska hafið. Þannig höfum við legið á Expedia og fleiri slíkum síðum að undanförnu til að finna góð tilboð til að skella okkur á. Það er nefnilega staðreynd að Miami og Fort Lauderdale eru meðal stærstu skemmtiferðaskipahafna veraldar og héðan fara t.d. flest skip af stað í ferðir um karabíska hafið. Oft er hægt að fá ansi góð tilboð í svoleiðis ferðir hér í US og duttum við niður á eitt slíkt hjá mjög þekktu skemmtiferðafyrirtæki sem heitir Royal Caribbean fyrir helgi og skelltum okkur á það. Um er að ræða viku ferðalag (átta nætur) um austurhluta karabíska hafsins. Lagt verður af stað 16. desember frá Fort Lauderdale, 18. des verðum við í San Juan í Puerto Rico, 19. des. í Philipsburg í St. Maarten, 20. des. verðum við í St. Johns á Antiqu, 21. des. í Charlotte Amalie á St. Thomas, 23. des eyðum við svo í Nassau á Bahamas og ljúkum svo ferðinni á aðfangadag í Fort Lauderdale. Innifalið í pakkanum er matur allan tímann (vín þó ekki innifalið) og skilst okkur að þar sé ekki um að ræða neinn slormat heldur dýrindis kræsingar sem hægt er að fá sér eins mikið af og hægt er að láta ofan í sig. Þetta ku oft verða þess valdandi að fólk vaggar út úr skipinu, ekki vegna sjóveiki heldur vegna aukakílóanna sem áunnist hafa eftir vikuna. Við erum þó staðráðin í að berjast fimlega gegn þessum mikla "vágesti" ;)
Þetta er náttúrulega ansi mikil geggjun en við ákváðum að kýla á þetta tilboð því tækifærið er einstakt og svona ferð mun alltaf kosta okkur þrefalt til fjófalt meira ef við þyrftum fyrst að fljúga frá Íslandi og gista á hóteli áður en í skipið er farið. Það verður því töluvert öðruvísi aðventa á þessu heimili heldur en vanalega en tilhlökkunin er mikil.Ef þið hafið áhuga á að skoða skipið sem við förum á þá smellið hér og ef þið viljið kynna ykkur allt um leiðina þá smellið þið hér. Hér er svo hægt að fara í svokallaðan "virtual tour" um skipið með að smella á valda hluta þess.

3 Comments:
En geggjað!!! Þið verðið að vera dugleg með myndavélina svo við hin fáum að minnsta kosti smjörþefinn af svona Caribbean ævintýri.
Kveðja, Gunnhildur
Frábært hjá ykkur!!! Ætli maður geri þetta nokkuð fyrr en á Golden Girls aldrinum :) Bið kærlega að heilsa Ernu skvísu. Póstur í vinnslu. Kær kveðja, Rakel
Þú gleymdir að segja hvað þetta kostar! Hiihihih djók. Þetta er nú ekkert miðað við mig. Ég flýg til Akureyrar 18. des og verð í gúrme fæði hjá föður Sigmundi að flokka gamlar teikningar frá æsku minni. Svo flýg ég til Reykjavíkur þann 26. des!
Post a Comment
<< Home