Friday, December 01, 2006

NPR - National Public Radio

Ef þið hafið áhuga á að nálgast vandaða umfjöllun um bandarísk samfélagsmál, sem og vandaða umfjöllun um heimsmálin, þá hvet ég ykkur til að hlusta á NPR á netinu: http://www.npr.org. Ef þið "skrollið" aðeins niður síðuna sjáið þið vinstra megin neðarlega link sem heitir "program stream". Smellið þar á og veljið annaðhvort windows media player eða annað sem þar er boðið uppá. Við Erna reynum að fylgjast vel með samfélagsmálum hér í US og hefur þessi stöð reynst standa uppúr. Mikil gæði og minnir um margt á Rás 1 heima nema hvað þessi stöð hefur náttúrulega töluvert meiri fjármuni úr að spila og geta t.d. verið með fréttaritara um allan heim sem senda inn innslög reglulega.

Það bregst sjaldan að þegar stillt er á stöðina fær maður bestu umfjölluna um þau mál sem hæst eru á baugi hverju sinni og oft eru mjög áhugaverð viðtöl við háttsett fólk í bandarískum stjórnmálum og stjórnsýslu. NPR er fjármagnað með framlögum frá einkaaðilum og almenningi og er svokölluð "non-profit" stofnun eða fyrirtæki. Eini gallinn er sá að reglulega fara þau í söfnunarátak og þá er dagskráin undirlögð undir þau. Þá er bara að skipta yfir á aðrar stöðvar á meðan og mæta svo aftur eftir að átakinu líkur ;)

Annars erum við Erna á leiðinni til Orlando í dag þar sem við ætlum að hitta frænku Ernu og fjölskyldu hennar og fara m.a. í Walt Disney-garðinn og eitthvað fleira. Gerast ung í anda og kanna uppeldisstöðvar Andrésar Andar, Guffa, Jóakims aðalandar, Mínu, Andrésínu og allra þeirra snillinga sem Disney hefur skapað...........

0 Comments:

Post a Comment

<< Home