Saturday, December 16, 2006

Shakira, aðventan og fleira....

Það hefur ýmislegt á daga okkar drifið að undanförnu. Shakira-tónleikar, jólaboð í vinnunni hjá Ernu, sundlaugarpartý í byggingunni og margt fleira. Ætla ekki að hafa mörg orð um þetta allt saman en bendi á myndabloggið þess í stað.

Húsbóndinn lauk í gær við síðustu ritgerðinni á þessari önn og Erna vann síðasta vinnudaginn hjá Holland & Knight. Við ákváðum því að halda uppá þessa áfanga og skruppum út á stað hér í nágrenninu sem ber hið skemmitlega nafn Mama mia. Þar hittum við ansi hress hjón, karlinn frá Kúbu og hún frá Brasilíu. Samskipti okkar byrjuðu á því að þau heimtuðu að við fengjum okkar af keti sem þau höfðu pantað sér og gáfust ekki upp fyrr en við samþykktum að smakka á kræsingunum. Svo heimtaði sá kúbverski að fá að gefa okkur drykki og hætti að sjálfsögðu ekki fyrr en hann fékk það í gegn. Þau reka nokkrar fatahreinsanir hér í nágrenninu. Hann hafði flúið Kúbu árið 1993 en þá réri hann á bát yfir til the Keys.

Lauk þessum samskiptum okkar við þau hjón á þá leið að skipst var á kontaktupplýsingum og hann heimtar að við gistum í strandíbúð þeirra þegar við komum í heimsókn til Miami eftir að við verðum flutt til Íslands. Humm, svona fer áfengið með menn..... En ansi skemmtilegt kvöld verður að segjast og skemmtileg hjón.

Nú erum við að fara af stað með leigara til Fort Lauderdale þar sem Jewel of the seas bíður okkar og ætlar að ferja okkur í sjö daga um Karabíska hafið. Aldrei að vita nema að eitthvað verði bloggað á þeim tíma þar sem það ku vera netsamband og aðstaða um borð til að stunda slíkt.

Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Heyrumst heil á því nýja....

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Þetta eru nú meiri ævintýrin hjá ykkur! Ef það vantar eitthvað upp á að þið njótið ferðarinnar til fullnustu þá er rétt að láta ykkur vita af því að það er búið að gefa út stormviðvörun á Íslandi á Þorláksmessu.
Njótið vel og gleðileg jól!

Eva

7:14 AM  
Anonymous Anonymous said...

kæru hjón
Bestu jólahveðjur og óskir um farsælt komandi ár óskum við ykkur héðan frá Freyjugötunni-þakka allt gamalt og gott! Náði því miður ekki tímanlega að senda formlegt jólakort!! Hafið það ætíð sem best!Kærar kveðjur frá Björgu, Rúnari ,Sigrúnu og Mörtu.

4:31 PM  
Blogger Atli said...

Hæ!
Siglingin hljómar hreint dásamlega. Hlakka til að lesa um ferðina, treysti því að Fúsinn hendi inn góðri færslu - ef til vill með nokkrum myndum af Ernu fúlu:) Jólakveðja frá Brávallagötu. (Ath. ný færsla á bloggi Tómasar - já ótrúlegt en satt.

4:34 PM  

Post a Comment

<< Home