Sunday, September 04, 2005

Loksins loksins!!!


Fyrir rúmum tveimur vikum hófum við bílaleit okkar af alvöru. Við fórum markvisst yfir þá bíla sem birtir eru á www.autotrader.com, voru í okkar verðflokki og á okkar svæði. Skemmst er frá því að segja að þessi leit reyndist flóknari og erfiðari en við höfðum búist við. Nú er henni hinsvegar lokið með prýðisgóðum árangri að við höldum (sjö, níu, þrettán). Keyptum gráan Ford Taurus 2002 nú á þriðjudaginn, einn með öllu!

Við vorum búin að vera á bílaleigubíl fyrstu vikurnar og það hefði í raun verið ómögulegt að standa í þessari bílaleit án hans þar sem fjarlægðirnar hér eru ansi miklar. Þessi bílaleit hefur verið afar lærdómsrík og má segja að við séum nú orðin sérfræðingar í bílakaupum í Bandaríkjunum.

Leitin leiddi okkur á ýmsa staði. Fyrsta daginn fórum við með þýskri stelpu sem er með Ernu í bekk en hún var einnig að leita að bíl. Við vorum búin að finna nokkra bíla sem við vildum líta á. Fyrsta bílasalan var frekar skrautleg. Hún var staðsett í frekar vafasömu hverfi og fyrir innan girðinguna var lítill skúr og fullt af skrani í kringum hann. Einhver eldri spanjóli með mexíkanahatt var fyrir aftan skúrinn að gera við einhverja druslu. Ekki reyndist sá vera sölumaður. Út kom maður sem var eins og klipptur út úr bandarískri glæpamynd. Með ör í andliti og almennt frekar "krimmalegur" að sjá. Talaði takmakaða ensku og virtist algjörlega áhugalaus varðandi það að selja okkur bíl. Bíllinn sem við höfðum séð á netinu var að sjálfsögðu seldur og skilaði þessi hálftíma bílferð okkur því frekar litlu.....

Keyrðum þvínæst að kúbönsku götunni (8 stræti) en hann Gunnlagur félagi minn hafði sagt mér að þar væru margar bílasölur. Ákváðum að kíkja á eina sölu sem okkur leist nokkuð vel á og bar það fróma nafn "Alfred autosale". Út kom kona sem (eins og fyrri bílasalinn) virtist afar takmarkaðan áhuga hafa á því að selja okkur eitt stykki fararskjóta. Ekki nóg með það heldur kunni hún sama sem enga ensku. Jú, hún gat sagt "car", "price" og "mile". Það má ekki taka það af henni ;)

Jæja, við ákváðum þá að skoða annan bíl sem við höfðum séð á autotrader. Sú sala var náttúrulega staðsett í hinum enda borgarinnar. Á leiðinni þangað sáum við toyota umboðið og ákváðum að skella okkur inn og athuga hvað þeir hefðu uppá að bjóða. Þjónustan var töluvert betri og úrvalið mikið. Sölumaðurinn fór með okkur uppá 3. eða 4. hæð og löbbuðum við þar út á stærðarinnar bílaplan sem var á þaki hússins. Mikill hiti var þennan daginn og vorum við orðin ansi steikt þegar við komum inn á ný. Því miður voru þeir bílar sem voru í okkar verðflokki ekki uppá marga fiska og ákváðum við því að halda leitinni áfram. Þar að auki taka þessar stóru sölur um 500-600 $ í söluþóknun sem okkur fannst ansi mikið (þeir ódýrustu taka 150$).

Fiesto Auto var þá næsti áfangastaður en þar átti bíllinn að vera sem við höfðum séð á Autotrader. Leitin leiddi okkur í iðnaðarhverfi og áttum við í erfiðleikum með að finna þessa ágætu sölu. En eftir nokkra leit fundum við "dýrðina" (eða þannig). Á skemmu einni voru fjölmargar dyr og á einni stóð "Fiesto Auto". Allt í rusli fyrir utan og ekki nokkurt líf að sjá. Ég rölti að hurðinni og bankaði og ekkert svar...... afar traustvekjandi sala og tilvalið að gera stórviðskipti, eini gallinn var að það var enginn á staðnum...

Þetta var s.s. fyrsti dagurinn í bílaleitinni og síðan eru liðnar rúmar tvær vikur. Þessar tvær vikur hafa verið mjög svo í stíl þessa fyrsta dags. Við höfum all nokkrum sinnum keyrt borgarhlutana á milli eftir að hafa séð "girnilegan" bíl á autotrader sem síðan hefur ekki staðið undir væntingum. Á einni sölunni sýndi sölumaðurinn okkur t.d. tvo bíla, annar þeirra reyndist óökuhæfur vegna þess að vökvastýrið var ekki að virka og fór hann þá vandræðalegur að öðrum bíl sem hann mælti frekar með, nema hvað sá bíll fór ekki í gang...... Höfum lært ýmislegt á þessu "projecti" okkar og ef þið lesendur góðir komið einhverntíman til með að kaupa ykkur bíl í US hafið þið bara samband við okkur bílaparið....

Leitin skilaði loksins árangri nú á þriðjudaginn. Fyrir valinu varð Ford Taurus 2002 sem er flokki fyrir ofan Ford Focus. Þetta er langflottasti bíll sem undiritaður hefur átt, með rafmagni í öllu, góðum græjum, 6 cylendra vél, sjálfskiptur (gírskiptingin fyrir ofan stýrið) o.sfrv.. Fengum hann á góðu verði þar sem við keyptum hann af braskara sem kaupir bíla á uppboðum í Atlanta þar sem bílarnir eru mun ódýrari og selur þá svo hér í Miami. Maður þessi heitir því fróma nafni Jesus og kemur frá Kólumbíu. Talar hann afar takmarkaða ensku og þá sérstaklega þegar hann er spurður erfiðra spurninga. T.d. hrakaði enska hans mjög mikið þegar ég sagði honum að við hefðum flett sögu bílsins upp á netinu og þar hefði komið í ljós að bíllinn er tjónabíll....

Þessi kaup eru því ákveðin áhætta og afar ólíkt okkur að standa í slíku. Málið var bara að við kolféllum bæði fyrir bílnum, sérstaklega þegar við bárum hann samana við bíla í sama verðflokki sem við höfðum skoðað. Það voru allt druslur, samanborið við þessa lúxusdrossíu. Nú vonum við bara að bíllinn standi sig vel og að þetta reynist farsæl kaup. Að frúin og herran hlæji í betri bíl frá bílabrasksölu Jesusar.....................

Á myndablogginu sem hægt er að fara á ef smellt er á linkinn hér ofar á síðunni til hægri eru fleiri myndir frá bílaleitinni miklu.

Kær kv. frá Miami,
Sigfús

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með glæsikerruna!
Miklu öflugra að segja 7,9 17.

4:20 PM  
Anonymous Anonymous said...

Til lukku með drossíuna, megi hún keyra ykkur á vit ævintýra! :) Drossíur og heimsfrægir fyrrverandi ráðherra og rithöfundar, maður reynir nú ekki einu sinni að toppa það. Ég las einmitt bókina Ástkær, eins og hún heitir í íslenskri þýðingu, á sínum tíma. Mjög áhugaverð. Eruð þið hjónin Skype-tengd? Væri gaman að geta heyrt í ykkur. Kv. Rakel

7:25 AM  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með fákinn!!!
Það getur varla klikkað að eiga viðskipti við mann með þessu nafni (gæti ekki verið að hann hefði tekið sér það eftir hann fór í bílabransann).
bestu kveðjur,
Rúna

2:36 PM  
Anonymous Anonymous said...

Já Rakel við erum Skypetengd. Getur nálgast okkur undir heitinu MiamiFúsi....

Og Rúna, já mjög líklegt er að kauði hafi tekið þetta nafn upp eftir að hann fór í bransan ;) Það sem fyndnara er er að maðurinn sem sá um alla pappírana fyrir hann heitir líka Jesus... þeir hafa sennilega báðir tekið þetta upp á sama tíma...

kk.,
Sigfús

2:57 PM  
Anonymous Anonymous said...

frekar Jesus en Alfredo....

kk

dst

2:14 AM  

Post a Comment

<< Home