Thursday, October 20, 2005

Wilma á leiðinni - Hvar er Fred?

Búinn að vera ansi upptekinn í skólanum í vikunni og gaf mér ekki tíma í að spá í nýjasta fellibylnum sem kláraði víst stafrófið, nefnilega hana Wilmu. Las það einhversstaðar hér í blaði að þetta væri í fyrsta skiptið síðan nítjánhundruð og þrjátíu og eitthvað sem hitabeltisstomsstafrófið kláraðist. Það þarf því að grípa til einhvers vara stafrófs.....

Fór á háskólapöbbinn í gærkveldi og spjallaði við bekkjarfléaga Ernu og reyndust þeir ansi áhyggjufullir. Flestir að spá í að keyra eitthvert norður, eins langt og hægt væri. Hef aldrei heyrt þessa krakka tala um að forða sér vegna storms áður. Það var fyrst þarna sem ég áttaði mig á því að málið væri kannski alvarlegra en ég hafði haldið þar sem þessir krakkar eru nú ekki vanir að gera mikið úr hlutunum. Hingað til hefur aldrei neitt annað komið til greina en að vera hér í Miami og standa stormana/fellibylana af sér hér. En nú er s.s. komið eitthvert hljóð í liðið að yfirgefa svæðið.

Erna hringdi svo í mig og vildi að við ræddum hvað við ættum að gera, hvort við ættum að keyra norður o.s.sfrv. Erum að íhuga það þessar stundirnar. Það er flólkið mál að taka svona ákvörðun því maður gæti t..d lent í umferðarteppu ef seint yrði lagt af stað og þá værum við í raun ver stödd en að vera hér heima. Svo á ég víst að fara í tvö próf á mánudaginn og ef lítið verður úr fellibylnum væri sá kennari alveg vís til þess að halda prófin sama hvað.

Vandamálið snýst samt aðallega um það að það veit í raun enginn hversu sterk Wilma verður þegar hún kemur hingað eða hvar hún lendir. Svæðið sem spárnar ná yfir er ansi víðfemt en helst er talið að hún komi inn hér aðeins norðar á Flórídaskaganum nærri Palm-beach. Ef Wilma lendir þar mun Miami samt verða fyrir barðinu á henni en ekki eins alvarlega og ef hún kæmi hér beint á okkur. Veðurfræðingar virðast ekki geta verið mjög nákvæmir með þetta og því er eintóm óvissa í gangi.

Búist er við að Wilma komi yfir Flórídaskagann á laugardag eða sunnudag þannig að ef við förum héðan þá förum við sennilegast af stað á föstudaginn.

En vonum bara að Wilma róist aðeins áður en hún kemur hingað og enginn þurfi að fara neitt.

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Þetta eru nu meiri veðrin þarna hja ykkur. Spurning um að Kanarnir fari bara að skrifa undir Kyoto? Vona að Wilma hægi a ser. Maður hefur bara sma ahyggjur af ykkur.
kveðja fra BXL
Eva

9:53 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hæ, vona að þetta verði allt í góðu þarna hjá ykkur. Frekar óþægilegt að vita af ykkur þarna og alltaf eitthvað vesen á þessu veðri. Fylgist með hérna á blogginu ykkar hvort að það verði ekki allt í góðu.
Kveðja
Sigurlaug frænka

3:03 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hæ!

Takk fyrir að senda fréttir af ykkur á þessum tíma. Þessu ætlar bara ekki að linna. Allavega "take care" og endilega póstið svo maður viti hvernig ykkur reiði af.

Erla.

3:06 AM  

Post a Comment

<< Home