Tíðindarlítið á vesturvígstöðvunum.....
Erum bæði með einhverja "déskotans" flensu þessa dagana, Erna fékk hana fyrir viku og er enn með einhvern ávinning af henni en ég veiktist á föstudaginn og er nokkuð slappur. Við hörkuðum þetta þó af okkur til þess að taka þátt í enn einu partýinu hjá bekknum hennar Ernu á föstudaginn. Tilefnið var það að vinur eins ítalsks bekkjarfélaga Ernu átti afmæli. Hann heitir Christiano (eða svona sirkabát) og er hér staddur í fríi hjá honum Max sem er einnig Ítali og er í bekk með Ernu. Christiano þessi reyndist létt bilaður en það gæti hafa stafað af því að hann var vel drukkinn þegar við mættum á staðinn. Hann reyndi við flestar stelpurnar og lét almennt eins og einhver glaumgosi... Ég gat hlegið að honum en held að stelpurnar hafi ekki þótt hann mjög geðþekkur, en svona getur nú áfengið farið með mann.....Ágætis partý eins og vaninn er þegar kemur að slíkum uppákomum í bekknum hennar Ernu.
Á laugardaginn fórum við Davíð í fótbolta niður á South-Beach. Davíð hafði komist í samband við Íslending hér sem ku vera í fiskibransanum (þó ekki að flytja inn fisk frá Íslandi)) og heitir hann Pálmi. Pálmi spilar s.s. fótbolta með liði sem hittist tvisvar í viku niður á South-Beach og við fengum að kíkja með honum. Þessi hópur er mjög fjölbreyttur, strákar frá S-Ameríku, Mexíco, Hollandi o.sfrv.. Mjög gaman að komast loksins í bolta þó að úthaldið mætti vera töluvert betra. Skrýtið að spila í svona hita en þó voru skilyrðin nokkuð góð fyrir okkur Frónbúa, regnúði og skýjað. Ætlum að mæta aftur í þetta spilerí og erum einnig að vinna í því að koma á föstum tímum í UM með strákunum úr bekknum hennar Ernu. Ætlum meira að segja að taka þátt í móti núna á næstunni.Annars fór helgin í almenn rólegheit og heimanám. Held nefnilega að það sé einhver misskilningur í gangi hjá skólayfirvöldum í UM því við erum látin læra og læra alla daga, meira að segja um helgar. Þessi skóli slítur algjörlega í sundur fríið og sólböðin hjá manni.... ;)
Í morgun fór ég með bílinn í "tékk"en við fengum tveggja mánaða ábyrgð á honum og viljum láta athuga hvort ekki sé allt í lagi með hann áður en ábyrðartíminn rennur út. Á heimleiðinni tók ég nokkrar myndir sem hægt er að sjá hér á myndasíðunni. Gekk í gegnum hverfi sem liggur hér nærri okkur og maður uppgötvar alltaf eitthvað nýtt í slíkum göngum. Nú er ég búinn að koma mér upp nýju "nördamyndaverkefni" en það felst í því að taka myndir af póstkössum. Það er nefnilega skemmtilega ameríkst þetta með póstkassana út við götu. Margir skemmtilegir og allir hafa sinn karakter. Veit að Selma í VUF á eftir að hlæja að þessu því hún hefur svo gaman að nördaskapnum í mér...hahhahaha
En sem sagt róleg helgi með smá partý-ívafi. Skoðið endilega myndirnar á myndasíðunni......

4 Comments:
Þú talar svo lítið um krakkana í þínum bekki Sigfús minn.
Eru þeir svona leiðinlegir. ;)
Þeir eru eiginlega allir kanar og gefa lítið færi á sér. Ekkert félagslíf og þetta er í rauninni enginn bekkur, er í fjórum kúrsum og mismunandi fólk í þeim öllum, engar frímínútur o.s.frv. Svona eins og að vera í fjölbrautarskóla, enginn bekkjarstemmning.
En ég er nú farinn að spjalla við þessa krakka núna og þeir virka alveg ágætir. Tekur bara meiri tíma að kynnast þeim.
Hjá Ernu er hinsvegar mikið gert til þess að hrista hópnum saman og allt eru þetta útlendingar (nema einn) og því allir í sömu sporum. Eiga ekki vini hér o.sfrv...
En ég er þakklátur fyrir að hafa þessa tengingu inní bekkinn hennar Ernu. Krakkarnir þar eru allir mjög skemmtilegir og áhugi minn á S-Ameríku hefur margfaldast eftir kynni við krakkana þaðan....
kk.,
Sigfús
Hæ,hæ, vona að heilsufar hjónanna fari batnandi- ekkert ömurlegra en vera með hita og kvef í steikjandi hita og sólskini, þarna hefur Ísland vinninginn! Bestu kveðjur og takk fyrir síðast Erna mín,
kv.
GBB
Hæló! Vonandi eruð þið ekki með fuglaflesnu! HOHOOH! Ég var að horfa á fréttirnar og leist ekkert á þennan nýja fellibyl. Hann virðist stefna beint á ykkur! Vonandi eyðist hann. Sá líka einhvern tímann um daginn frétt frá krókódílagarðinum ykkar. Krókdíll hafði borðað annan krókódíl og sprungið. Vonanandi þekktuð þið ekki þá! Annars er allt ágætt að frétta af mér. Það er rosalega mikið að gera hjá mér í skólanum líka, næstum eins og eittthvert raunveruleikasjónvarpþáttur þar sem reynt er að þjösnast á manni eins mikið og hægt er. Estefan er búinn að vera með svolítið slæma öndun. Pabbi ætlar......Heirðu ég held ég skrifi bara e-meil þetta er orðið ansi langt hjá mér HAHAHAHAHA
Post a Comment
<< Home