Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag....trallallalaaa
Hún Erna á afmæli í dag, mánudaginn 10. október, og af því tilefni stóðu hátíðahöld yfir alla helgina. Það dugar nefnilega ekkert minna í hennar tilfelli og svo er mánudagur jú bara venjulegur vinnudagur hjá óbreyttum stúdentum.....
Af þessu tilefni kom ég henni á óvart á föstudaginn, keypti hjól og stillti því upp í íbúðinni. Náði svo í hana í skólann og sendi hana upp á undan ;). Hugmyndin er að fara sem oftast saman í hjólreiðatúra hér í kring en það er mjög fallegt svæði í hjólafjarlægð hér niður við ströndina. Fórum svo í okkar fyrsta hjólreiðatúr á sunnudaginn þar sem við fórum m.a. í "Pine-Crest gardens" sem er hér í 10 mínútna hjólafjarlægð og er einskonar almenningsgarður með eðlum og ýmsu skemmtilegu dóti.
Á laugardaginn ákváðum við að gerast "túrhestar" í okkar eigin hverfi, fórum í brunch á kúbönsku kaffihúsi/veitingahúsi sem er hér í göngufjarlægð og er mjög skemmtilegt þar sem það er kúbönsk fjölskylda sem rekur hann. Ákaflega góður brunch og kaffið frábært. Reiknum með að líta oft þarna í vetur. "Járnvörusalinn" í hverfinu var svo með útimarkað þar sem við keyptum ýmsa smáhluti sem okkur vantaði á 1 dollar stykkið. Fórum svo í Barnes and Nobles að skoða bækur og ýmislegt fleira og enduðum ferðina í mollinu þar sem Erna fann nokkrar afmælisgjafir til viðbótar. Ótrúlegt hvað hægt er að finna til kaups ef einbeittur brotavilji er fyrir hendi.... Þessi ferð var eiginlega farin með innblástri frá vinkonu okkar henni Önnu Maríu en hún sýndi okkur hverfið sitt í NY með svo skemmtilegum hætti að við ákváðum að kynnast okkar hverfi eins vel og hún er búin að gera.
Fórum svo í laugina okkar í tvo tíma til að slaka á fyrir kvöldið sem var hlaðið dagskrá. Vorum boðin í mat til Davíðs og Ólafar þar sem gómsætir hamborgarar grillaðir og matreiddir að hætti heimilisföðursins. Þau búa í mjög fínni byggingu hér rétt hjá okkur. Þar er öll aðstaða til fyrirmyndar og í raun eins og að koma á gott hótel. Allt glænýtt, sundlaugagarður með grillaðstöðu og flottar íbúðir. Við fórum svo öll saman í enn eitt partýið hjá bekknum hennar Ernu en þar var verið að kveðja Gonzalo hinn Argentínska en hann er að hætta í LLM prógramminu. Fékk atvinnutilboð sem hann gat ekki hafnað, yfirmaður útibús fyrirtækis síns í Mexíco. Við sjáum á eftir honum þar sem hann er mjög fínn strákur.
Svo fór sunnudagurinn sem sagt í að prufukeyra nýja hjólið sem virkaði með hreinum ágætum.
Hér er enn mikill hiti, um 30 á celcius og mikill raki. En það kólnar víst eitthvað í vetur og fer þá hitinn niður í 21-26 stig, held að það muni eiga betur við okkur þó við séum vissulega ekkert að kvarta yfir þessu.
Set inn fleiri myndir frá helgina á myndasíðuna seinna í dag (er að fara í skólann... ;) )
Af þessu tilefni kom ég henni á óvart á föstudaginn, keypti hjól og stillti því upp í íbúðinni. Náði svo í hana í skólann og sendi hana upp á undan ;). Hugmyndin er að fara sem oftast saman í hjólreiðatúra hér í kring en það er mjög fallegt svæði í hjólafjarlægð hér niður við ströndina. Fórum svo í okkar fyrsta hjólreiðatúr á sunnudaginn þar sem við fórum m.a. í "Pine-Crest gardens" sem er hér í 10 mínútna hjólafjarlægð og er einskonar almenningsgarður með eðlum og ýmsu skemmtilegu dóti.
Á laugardaginn ákváðum við að gerast "túrhestar" í okkar eigin hverfi, fórum í brunch á kúbönsku kaffihúsi/veitingahúsi sem er hér í göngufjarlægð og er mjög skemmtilegt þar sem það er kúbönsk fjölskylda sem rekur hann. Ákaflega góður brunch og kaffið frábært. Reiknum með að líta oft þarna í vetur. "Járnvörusalinn" í hverfinu var svo með útimarkað þar sem við keyptum ýmsa smáhluti sem okkur vantaði á 1 dollar stykkið. Fórum svo í Barnes and Nobles að skoða bækur og ýmislegt fleira og enduðum ferðina í mollinu þar sem Erna fann nokkrar afmælisgjafir til viðbótar. Ótrúlegt hvað hægt er að finna til kaups ef einbeittur brotavilji er fyrir hendi.... Þessi ferð var eiginlega farin með innblástri frá vinkonu okkar henni Önnu Maríu en hún sýndi okkur hverfið sitt í NY með svo skemmtilegum hætti að við ákváðum að kynnast okkar hverfi eins vel og hún er búin að gera.
Fórum svo í laugina okkar í tvo tíma til að slaka á fyrir kvöldið sem var hlaðið dagskrá. Vorum boðin í mat til Davíðs og Ólafar þar sem gómsætir hamborgarar grillaðir og matreiddir að hætti heimilisföðursins. Þau búa í mjög fínni byggingu hér rétt hjá okkur. Þar er öll aðstaða til fyrirmyndar og í raun eins og að koma á gott hótel. Allt glænýtt, sundlaugagarður með grillaðstöðu og flottar íbúðir. Við fórum svo öll saman í enn eitt partýið hjá bekknum hennar Ernu en þar var verið að kveðja Gonzalo hinn Argentínska en hann er að hætta í LLM prógramminu. Fékk atvinnutilboð sem hann gat ekki hafnað, yfirmaður útibús fyrirtækis síns í Mexíco. Við sjáum á eftir honum þar sem hann er mjög fínn strákur.
Svo fór sunnudagurinn sem sagt í að prufukeyra nýja hjólið sem virkaði með hreinum ágætum.Hér er enn mikill hiti, um 30 á celcius og mikill raki. En það kólnar víst eitthvað í vetur og fer þá hitinn niður í 21-26 stig, held að það muni eiga betur við okkur þó við séum vissulega ekkert að kvarta yfir þessu.
Set inn fleiri myndir frá helgina á myndasíðuna seinna í dag (er að fara í skólann... ;) )

14 Comments:
hae Erna og innilega til hamingju med daginn. Eg var svo udan vid mig i morgun, en um leid og tu varst farin ut ur businum og hann lagdur af stad mundi eg tetta og leid alveg eins og kleinu.
En allavega hafdu tad gott i dag,
Kv. Olof
Inniega til hamingju með afmælið Erna mín!
Eiginmaðurinn er nú ekki ónýtur í huggulegheitunum. Hann verður huggulegri eftir því sem árin líða. Til hamingju með afmælið Erna. kveðja, Björgvin
Til hamingju með nýja hjólið Erna! ...og afmælið.
Takk strakar minir og Olof! Alveg prydishjol, prydiseiginmadur og dagur!
kv. Erna
Til hamingjum eð 23 ára afmælið. Kveðja bragi og eygló
Til lykka med födelsesdagen Erna. Ja mo hun leva, ja mo hun leva, ja mo hun leva upp i hundrade ár.
Til hamingju með daginn Erna mín. Gaman að fylgjast með ykkur hjónum á blogginu:). Kveðja, Sigga Dóra
Til hamingju með afmælið Erna mín! Ég er nú ekki sú besta að muna eftir svona dögum svo þú afsakar dagstöfina. Frábær afmælisgjöf sem Sigfús valdi. Það verður notó í "vetur" að explora hverfið á hjólunum.
Erla.
Bara búin að nota sundlaugina 5 sinnum og fara 1 sinni á ströndina!! Er ekki í lagi með ykkur?!! Held ég VERÐI að koma til ykkar sem allra fyrst og sinna sundlauginni og ströndinni. Súrrealískt að skoða myndirnar af ykkur þarna í sólinni en hér er orðir ansi hreint viðbjóðslega kalt ): Hædí.
Já, því miður er lífið hér ekki eintómar sundlauga- og strandferðir auk veisluhalda um helgar. Væri alveg til í að vera bara hér í afslappelsi útá sundlaugarbakka. Hef reyndar einu sinni lesið námsbækurnar úti við sundlaug og gekk það ágætlega. Kannski maður ætti að gera meira af því ;)
En það verður væntanlega meira hægt að stunda sólina í jólafríinu en þá er víst besti tíminn hér, 21-26 stiga hiti og rakinn þolanlegur. Þú ert velkomin að koma og nýta sundlaugina fyrir okkur Heiða ;)
Sólarkveðja,
Sigfús A. Inniaðlesan
Þetta hefur verið frábær afmælishelgi hjá þér Erna mín!!
Frekar skrítin tilhugsun að þið séuð hjólandi þarna um léttklætt í nánast of miklum hita. Hér var allt hvítt í morgun!! Ekki það að maður sé að kvarta!
Hafið það gott áfram.
kv
Rúna
Eins og máltækið segir "Seint óska sumir til hamingju með afmælið en óska þó"
Til hamingju með afmælið og með þetta ljómandi líf ykkar þarna í Vesturheimi.
Emil og co
Til hamingju með afmælið elsku Erna okkar! Var fyrst að fá netið núna eftir skuldelsi þannig að ég er með skothelda afsökun seinelsinu! Hihih. Haraldur, Estefan Leó og Karen Mjöll
Post a Comment
<< Home