New Orleans - Ljósmyndir og grein í NY Times
Nú er rúmt ár síðan fellibylurinn Katrín lagði stóran hluta New Orleans í rúst. Katrín fór yfir hverfið okkar í Miami áður en hún fór yfir Mexicoflóann áleiðs til New Orleans þar sem hún olli gífurlegum skaða. Sem betur fer var hún aðeins 1 á fellibyljakvarðanum þegar hún fór yfir okkur en íbúar New Orleans voru ekki eins heppnir því hún styrktist heldur betur yfir heitum Mexícoflóanum með þeim afleiðingum sem við þekkjum (náði 4 á fellibyljakvarðanum og olli gífurlegu tjóni í borginni). Þið sem fylgdust með blogginu síðasta vetur sáuð myndirnar af eyðileggingunni í okkar hverfi og vitið því hversu öflugir svona fellibylir geta verið þó þeir séu einungis 1 á kvarðanum.
Ég rakst í dag á grein á vef NY-Times þar sem fjallað er um þessar hörmungar og ljósmyndasýningu sem nú er í gangi með myndum frá New Orleans sem teknar voru eftir atburðina. Þessar myndir eru vel þess virði að skoða og set ég linkinn á greinina hér en þarna er hægt að fara yfir á myndasíðuna. Það sem er hvað átakanlegast við myndirnar er að sjá öll yfirgefnu húsin, eyðilegginguna og tómleikann sem svífur yfir vötnum. Í greininn líkir höfundur New Orleans við borgina Pompeii sem hvarf undir ösku eftir mikið eldgos fyrir um 2000 árum. Í dag eru heilu hverfin ennþá tóm í New Orleans og ekki endilega víst að þar verði búið aftur í nánustu framtíð.
Eftir áramót fór ég í kúrs sem hét því fróma nafni Crisis Management. Þar var farið yfir alla þætti "krísustjórnunnar" svo sem fyrirbyggjandi aðgerðir, stjórnun á meðan krísunni stendur, hjálparstarf eftir að ósköpin hafa gengið yfir og svo framvegis. Fengum við fullt af áhugaverðum fyrirlesurum m.a. frá fellibyljamiðstöðinni í Miami, slökkviliðinu, lögreglunni auk þess sem við fórum í vettvangsferð í neyðarmiðstöðina hér í Miami þar sem allir helstu aðilar sem koma að björgunaraðgerðum koma saman ef neyðarástand ríkir. Þessi kúrs var einkar áhugaverður og einkum vegna þess að prófessorinn sem kenndi okkur var fæddur og uppalinn í New Orleans og því öllum hnútum kunnugur á því svæði (sagði m.a. að ekki fyndist sá bar í New Orleans þar sem hann hefði ekki setið að sumbli ;)). Hann heitir því skrýtna nafni Dr. Ramon E. DeArrigunaga og þjónaði hann í hernum stóran hluta af sinni ævi en er nú s.s. að kenna í UM. Meðal fyrirlesara var slökkviliðsmaður sem fór ásamt félögum sínum til New Orleans og vann að björgunaraðgerðum og var átakanlegt að heyra hann lýsa því sem fyrir sjónir hans bar.Stefnan hjá okkur hjónum er að fara til New Orleans á meðan dvöl okkar stendur. Ástandið þar er ekkert sérstakt í dag en það verður áhugavert að kynna sér svæðið og skoða stífluna sem brast.
Þau ykkar sem hafa áhuga á að kynna sér fellibyli nánar er bent á heimasíðu NOAA og eins á fellibyljasíðu Miami Herald sem er einnig mjög góð.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home