Hanging on the wire.............trallalllalllaalla
Það eru náttúrulega forréttindi að hafa góða vini til að heimsækja þarna, gista hjá og sem veita manni úrvals leiðsögn (Anna María með leiðsögumannaréttindi). Aðstæður hefðu því ekki getað verið betri.Á fimmtudaginn lentum við í NY og Anna María og Gulli tóku á móti okkur með göróttum drykk og skemmtilegheitum. Fórum síðan á rölt um hverfið þeirra í Brooklyn en sá hluti Brooklyn er eitt þekktasta veitingahúsahverfi í NY. Fórum á franskan veitingastað þar sem við fengum ákaflega góðan mat og röltum svo um hverfið. Hverfið þeirra er mjög líflegt og skemmtilegt og samgöngur mjög góðar yfir á Manhattan. Bæði er hægt að ganga yfir Brooklyn-brúnna og svo eru neðanjararlestarstöðvar í göngufjarlægð frá heimilinnu. Við vorum því á besta stað í bænum/borginni....
Föstudaginn tókum við Erna svo í að gerast "atvinnutúrhestar". Anna María hafði mælt með því að við myndum labba Brooklyn-brúnna yfir að Manhattan, sagði það þess virði. Og já, það var þess svo sannarlega virði. Þessi brú var byggð árið 1875 og er eitt af þekktari kennileitum NY. Það er magnað að ganga yfir hana í átt að Manhattan með frelsisstyttuna á vinstri hlið og yfirsýn yfir alla skýjakljúfana. Mæli með þessari gönguferð fyrir alla þá sem eiga eftir að koma til borgarinnar.
Keyptum svo dagsmiða í túristabússa sem ganga um alla Manhattan og fengum þar með ansi góða yfirsýn yfir borgina. Hoppuðum úr á nokkrum stöðum þar á meðal við Central-Park þar sem við röltum og skoðuðum hluta garðsins. Í lok dagsins tókum við svo ferju yfir á Staten-Island sem er gjaldfrí (hvað myndu Susarar segja við því? Gjaldfríar samgöngur í höfuðborg kapítalismans....). Á þessari leið er gott yfirsýn yfir frelsisstyttuna og í bakaleiðinni sér maður Manhattan frá skemmtilegu sjónarhorni. Við vorum þarna í ljósaskiptunum sem var mjög fallegt. Um kvöldið hittum við svo Önnu Maríu og Gulla aftur og fórum á Mexíkanskan stað að borða, drukkum margarítur og fórum svo á örlítið pöbbarölt.
Laugardeginum eyddum við svo með Gulla og Önnu Maríu. Þau sýndu okkur hluta Brooklyn, Williamsburg, þar sem listamenn hafa búið undanfarin ár. Svona "artífartí" hverfi sem sagt. Ákaflega gaman að skoða það hverfi og ég efast um að maður hefði fattað að fara þarna nema vegna þess að gædarnir okkar þekktu svæðið ansi vel. Þarna er m.a. plötubúð sem svipar mjög til Hljómalindar. Þeir birta lista yfir mestseldu plöturnar í hverri viku og þessa vikuna var náttúrulega SigurRós efst. Ég spurði einn sölumanninn aðeins útí þetta og hann sagði að SigurRós væri ákaflega stórt nafn í NY. Hann hafðí farið á tónleika með þeim fyrir stuttu síðan. Spurði svo hvað væri að frétta af hljómsveitinni Múm... Sem sagt, Ísland aldeilis á tónlistarkortinu í NY....
Fórum svo í Soho á Manhattan þar sem Gulli keypti sér leðurjakka sem hann hafði lengi haft augastað á. Ansi flottur "jakket" það... Fórum svo og fengum okkur snæðing og þvínæst var haldið á tónleikastaðinn Roslyn Ballroom sem ku vera nokkuð frægur samkv. Gulla. Hann er rétt við Broadway. Við áttum nefnilega miða á Paul Weller þetta kvöldið. Tónleikarnir voru hreint út sagt frábærir, þvílík spilamennska. Gulli hafði sungið eitt lag sólarhringinn á undan með sinni íðilfagurri rödd en það lag hefur lengi verið eitt af uppáhaldslögum Ernu og er með því þekktara sem Weller hefur gefið út. Það hljóðar einhvernvegin svona:
"You do something to me, something deep inside
I'm hanging on the wire for a love I'll never find
You do something wonderful then chase it all away
Mixing my emotions that throws me back again
Hanging on the wire, I'm waiting for the change
I'm dancing through the fire, just to catch a flame
an' feel real again
You do something to me somewhere deep inside
I'm hoping to get close to a peace I cannot find
Dancing through the fire just to catch a flame
Just to get close to, just close enough
To tell you that.....
You do something to me something deep inside."
Eftir tónleikana fórum við svo á Time-Squere og skoðuðum mannlífið.
Sunnudagurinn fór svo í að túristast meira. Ég og Erna fórum þá að skoða svæðið þar sem World-Trade center stóð. Áhrifarík upplifun það. Fórum svo til litlu-Ítalíu og í Kínahverfið og þar reyndist vera heilmikill sunnudagsmarkaður í gangi og allt iðandi í lífi.
En sem sagt ótrúlega afkastamikil og viðburðarík stórborgarhelgi að baki en nú er það bara blákaldur (eða kannski eldheitur) raunveruleikinn hér í Miami sem tekur við á ný. Mætti í tíma í gær og fékk hálfgert sjokk. Fullt af prófum, kynningum og verkefnum framundan.....´
Á myndasíðunni okkar getið þið nálgast endalaust margar myndir úr NY-ferðinni. Ákvað að setja bara fleiri en færri......

7 Comments:
Þetta er glæsilegt...
Very nice! Maður verður að fara til New York einhvern tímann!
gaman að sjá hvað heimamenn taka blogginu ykkar vel !
kveðja úr roki og kulda
dst
Já, heimamenn í markaðsbransaum hafa greinilega fundið nýjan markhóp sem þeim líst vel á, markhópurinn Íslendingar sem þekkja fólk í útlöndum.......
hahha
meira pakkið......
Of fáar myndir af Fúsa! Erna verður að læra á myndavélina! Aðeins of alvarleg á svipinn á tvem myndum! Annars frekar gott! Hihiihhhiii
Þetta hefur verið ansi afkastamikil ferð krakkar mínir. Gott að hafa þessa punkta þegar maður bregður sér næst til NY. Hélt nú að Erna myndi ekki fara aftur í svona sightseeing bus eftir síðustu reynslu. Gaman að fá svona ferðasögu og fullt af myndum!!
kv
Rúna
Ja minning min um sidustu bus-ferd med ther Runa min var naestum buin ad forda mer fra thessu bus-aevintyri! En eitthvad var fruin betur upplogd i thetta skiptid!:)
Bestu kv. Erna.
Post a Comment
<< Home