Helgarrapportið.........
Það var nokkurskonar verslunarmannahelgi þessa helgi, þ.e. Labour day var í gær þannig að frídagarnir voru þrír. Við áttum nokkuð rólega en góða helgi, með smá djammívafi...
Eins og áður segir er félagslífið í bekknum hennar Ernu ákaflega öflugt. Um helgina var hægt að velja milli fjögurra atburða; partý hjá hinum argentínska Gonzalo á föstudag, sundlaugarpartý hjá hinni þýsku Maren á laugardag, þrítugsafmæli hjá Marion frá Equador á sunnudag og svo mæting á pöbb að horfa á beina útsendingu frá leik University of Miami gegn Florita state í gær. Við létum okkur þó nægja að fara í sundlaugarpartýið á laugardaginn og svo á pöbbinn í gær.
Það eru 38 í bekk með Ernu en það er fastur kjarni sem mætir í partíin, um 15-17 manna kjarni.
Að sjálfsögðu tilheyrum við Íslendingarnir þessum kjarna og er ég nú farinn að kynnast þessum krökkum nokkuð vel (Erna þekkir þá náttúrulega betur).
Fyrir utan þetta partýstúss fórum við í vettvangsskoðun á Coconut Grove á sunnudag og svo langan göngutúr um hverfið í gær. Á föstudaginn áttum við svo mjög góðan dag með hinum Íslendingunum sem eru í skólanum, þeim Davíð og Ólöfu. Fórum í Costco-leiðangur með þeim og síðan var matarboð hjá okkur um kvöldið.
Á myndablogginu er nú hægt að sjá fullt af myndum, sérstaklega af bekkjarfélögum Ernu. Datt í hug að fólk hefði gaman að sjá það lið aðeins...
kk.,
Sigfús
Eins og áður segir er félagslífið í bekknum hennar Ernu ákaflega öflugt. Um helgina var hægt að velja milli fjögurra atburða; partý hjá hinum argentínska Gonzalo á föstudag, sundlaugarpartý hjá hinni þýsku Maren á laugardag, þrítugsafmæli hjá Marion frá Equador á sunnudag og svo mæting á pöbb að horfa á beina útsendingu frá leik University of Miami gegn Florita state í gær. Við létum okkur þó nægja að fara í sundlaugarpartýið á laugardaginn og svo á pöbbinn í gær.Það eru 38 í bekk með Ernu en það er fastur kjarni sem mætir í partíin, um 15-17 manna kjarni.
Að sjálfsögðu tilheyrum við Íslendingarnir þessum kjarna og er ég nú farinn að kynnast þessum krökkum nokkuð vel (Erna þekkir þá náttúrulega betur).
Fyrir utan þetta partýstúss fórum við í vettvangsskoðun á Coconut Grove á sunnudag og svo langan göngutúr um hverfið í gær. Á föstudaginn áttum við svo mjög góðan dag með hinum Íslendingunum sem eru í skólanum, þeim Davíð og Ólöfu. Fórum í Costco-leiðangur með þeim og síðan var matarboð hjá okkur um kvöldið.Á myndablogginu er nú hægt að sjá fullt af myndum, sérstaklega af bekkjarfélögum Ernu. Datt í hug að fólk hefði gaman að sjá það lið aðeins...
kk.,
Sigfús

5 Comments:
gott að heyra að rokkið er ekki dautt....
dst
Líst vel á bekkjarfélagana, virka mjög hressir. Lofar góðu!
En hressust eru nú hjónakornin þarna frá Íslandi!
kv
Rúna
Til Hamingju með afmælið kæri bróðir!!! :* Passaðu þig á surprise veislunum þarna þú gætir fengið hjartaáfall!
HOHo stei in skúl bró! Jú nó vott æ mín!
Þetta var ég hérna fyrir ofan!
Innilega til hamingju með afmælið Dúdú minn!
Alltaf gaman af öllum myndum.
Gaman að sjá fólkið sem þið umgangist þarna.
Kær kveðja frá okkur Kristínu. :)
Post a Comment
<< Home