Monday, September 12, 2005

See you later aligator...........

Þetta er í rauninni hið klassíska "helgarrapport" en þar sem toppurinn á helginni snérist um græna ferfætlinga í mýrunum í Everglate stóðst ég ekki mátið að hafa ofangreinda fyrirsögn.. mhohohohohohoooooooo alltaf janf sniðgur og hnittinn hann Sigfús ;)

En helgin byrjaði í raunninni á fimmtudaginn, þá eyddi Erna góðu síðdegi með Guðrúnu Birgisdóttur sem átti að verða fyrsti gestur okkar hér í Miami. Nema hvað hún kaus frekar að vera á glæsihóteli niður á South-Beach (stórfurðulegt ekki satt?) og þangað fór Erna einmitt með henni og eyddu þær síðdeginu saman á sólbekkjum með görótta drykki sér við hlið. Húsfaðirinn fékk nú ekki einu sinni að sjá framan í stúlkuna enda upptekinn við námið (ólíkt sumum...). Högni sonur Guðrúnar var með henni og skilst mér að þau hafi bara haft það afar gott hér í sólinni í Florida.

Hæstvirtur húsfaðirinn átti afmæli á föstudaginn (9.september) og fékk hann nokkrar gjafir frá sinni heittelskuðu. Við fórum svo í hálfgerða afmælisferð daginn eftir, þ.e. á laugardaginn, en ég hef verið talsmaður þess að fara í ferð í Everglade þjóðgarðinn frá því við komum hingað. Þjóðgarðurinn nær í raun yfir allan syðsta odda Florida-skagans en það eru aðeins um 50 km frá heimili okkar að mörkum þjóðgarðsins. Maður áttar sig betur á því í hvaða loftslagi við búum þegar þangað er komið. Fenjasvæði fullt af krókódílum og öðrum "kvekendum".

Nema hvað starfstúlka í upplýsingamiðstöðinni sagði okkur að vegna mikilla rigninga (m.a. venga Katrínar) væri vatnsyfirborðið mjög hátt um þessar mundir og því ólíklegt að við næðum að sjá krókódíla. Þeir dreifa sér þá á stærra svæði. Við röltum um merkta göngustíga og er ótrúleg kyrrð þarna fyrir utan að stöku sinnum heyrast framandi dýrahljóð. Við litum vel í kringum okkur en sáum ekkert til að byrja með nema stöku fisk í vatninu og reyndar eina engisprettu.

Við einn pallinn var skilti þar sem fólk var vinsamlegast beðið um að hafa hljótt því þarna væri útungunarsvæði krókódíla. Við töldum þennan stað því vera kjörinn til að spotta þessar grænu ófreskjur. Litum vel í kringum okkur en sáum ekkert. Þar til Erna spottaði skyndilega litla krókódílaunga og dró þá þá snilldarályktun að þar sem krókódílaungar væru hlyti krókódílamamma og pabbi að vera í nágrenninu (eða eins og Guðni myndi segja; þar sem fleiri en tveir krókódílar koma saman þar er krókódílapartý....) Vönduðum okkur afar mikið við að reyna að spotta krókódíl í fullri stærð. Og viti menn, í feninu sást haus á krókódíl sem lá þar og fylgdist með ungunum sínum. Ótrúlegt hvað hún/hann náði að samlagast umhverfinu....

Fórum svo yfir á hinn enda pallsins og þar sáum við annan krókódíl og hann var meira að segja á þurru landi. Lág þar makindalega og rétt svo nennti að opna augun öðru hverju. Mín ágiskun er sú að þarna hafi pabbinn verið að fá sér síðdegisblundinn sinn á meðan móðirinn gætti barnanna... er það ekki góð kenning? En sem sagt ansi magnað að sjá þessar skepnur í sínu náttúrulega umhverfi. Góður dagur en þó afar heitur og mikið af fljúgandi bitvargi sem náði að bíta húsfrúnna all rækilega.....

Um kvöldið fórum við svo í afmælisboð hjá Neishu sem er bresk/indversk bekkjarsystir Ernu. Svo skemmtileg vill til að hún á afmæli á sama degi og ég, 9/9, en hélt þó uppá það á laugardeginum. Þarna var allt fastagengið í bekknum auk nokkurra annara sem ekki hafa látið sjá sig eins mikið í partýstússinu. Skemmtilegt partý og allir í fínu stuði.

Á sunnudeginum tókum við svo upp tennisspaðana okkar og fórum á tennisvöll sem er hér í nágrenninu. Þar getur maður mætt án þess að panta og fengið lausan völl. Kostar nokkra dollara á mann klukkutíminn, mjög fín aðstaða. Eigum eftir að nýta okkur þetta meir í vetur....

Á myndasíðuna eru nú komnar fullt af myndum sem tengjast þessum ágæta pistli.

Verði ykkur að góðu.

kk.,
Sigfús A. Krókódílan

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Hann á afmæli í dag hann á afmæli íiíííí dag!!! HANN Á AFMÆLI HANN SIGFÚS HANN 'A AFMÆLI Í DAAAAG!!!


sona smá söngur.. :)

2:37 PM  
Anonymous Anonymous said...

hafa Miami hjónin nokkuð orðið krókódílunum að bráð? fleiri sögur úr Amríku, takk!

dst

6:50 AM  

Post a Comment

<< Home