Ríta var það heillin.........

Jæja, enn einn stormurinn á leiðinni og nú ber hann/hún heitið Ríta. Reyndar eru líkur á að þessi verði fellibylur að stærðargráðunni 3 en Katrín var aðeins stig 1 þegar hann fór hér yfir Miami en varð svo 3 þegar hún kom að New Orleans. Okkur þótti nú nóg um stig 1 og erum ekkert sérlega spennt að upplifa stig 3 verður nú að segjast. Á www.miamiherald.com segir ''The National Hurricane Center is telling us that there is some risk that Rita might reach Category 3 status as it approaches the Keys,'' Stormurinn stefnir s.s. á Key West núna en stefnir norðvestur í átt að Miami......
Skólanum var lokað um hádegi vegna þessa:
"University of Miami to Close at Noon Monday,Remain Closed Tuesday
The University of Miami will close at 12 p.m. today, Monday, and will remain closed through Tuesday. All classes and events on the Coral Gables, medical, and Rosenstiel campuses are canceled for that time period; however, essential personnel should report to work according to their unit’s emergency plan. See below for specific instructions for the medical campus."
Ég átti að vera í tveimur stöðuprófum í dag í mjög erfiðum kúrsum. Mætti kl. 11:00 í fyrra prófið og var prófið vægast sagt erfitt, hélt í fyrstu að það væri bara vegna þess að enska er ekki mitt móðurmál og ég þekki ekki allar stofnanir Bandaríkjanna eins vel og innfæddir. Mér varð svo létt þegar ég talaði við einn bekkjarfélaga (ameríkani í húð og hár) sem var í sjokki yfir því hvað prófið hafði verið erfitt. Þessi prófessor er með þeim skemmtilegari sem ég hef setið í tímum hjá en er frægur fyrir mjög erfið próf... Ég lærði alla helgina en fannst mér samt ekki ganga nógu vel. Verður forvitnilegt að sjá útkomuna. Átti svo að fara í annað próf strax á eftir en þá var búið að loka skólanum og starfsfólk byrjað að setja hlera fyrir glugga o.fl. Slapp þar aldeilis vel þar sem mér veitti ekkert af meiri tíma til að lesa fyrir prófið.
Á leiðinni (á hjólinu, alltaf hjólandi ;)) heim datt mér það snjallræði í hug að fara í Publix og hamstra mat o.fl.. nauðsynjar fyrir svona fellibyl eins og Ritu....... Skemmst frá því að segja að fleirum hafði dottið þetta í hug, biðröð langt útá plan. Ótrúlegt alveg hreint. Einnig biðraðir við allar bensínstöðvar. Ég hef þó meiri skilning á þessu í dag en ég hafði fyrst. Veit hvað það er að vera í rafmagnslausri borg í marga sólarhringa.........En við skulum bara vona að hún Ríta ákveði að breyta um stefnu og fara eitthvert allt annað en til Miami. Hún er allavegana ekkert sérstaklega velkomin á þessu heimili ;)

5 Comments:
Gaman að þessum auglýsingum, held að þessi auglýsing hafi hitt á réttan stað.... múhohohohohooo
Kv.,
Sigfús A. Hlunkan
það er nóg vatn til hérna hinu megin við Dixie. Og vodka
Ég hélt að við hjónakornin hefðum lent í mikilli rigningu þarna í Miami í júní - nú kemur bara í ljós að það er alltaf rigning þarna!
Hvernig er með þessar hjólreiðar - er Gunnlaugur búinn að heilaþvo þig?
Annars ber mér að skila kveðju frá Söndru - við dauðöfundum ykkur á því að dvelja þarna þó svo að það vætli eitthvað úr skýjum af og til.
Takk fyrir þessar kveðjur Svenni. Já, Gunnlaugur er alveg búinn að sannfæra mig um það að hjólreiðar séu það eina rétta í þessu lífi........
En annars legg ég bara til að árshátíð makavinafélagsins verði haldið hér úti. Þið pantið bara hótelherbergi niður á South-Beach og við höldum nokkra daga árshátíð hér í sólinni, þ.e. ef þið komið eftir fyrsta nóv, aldrei að vita í hverju maður lendir á þessum fellibyljatíma frá júní-okt...
kv.,
Sigfús A. Makan
Já ég er sammála þessu með árshátíðina, við skulum láta verða af þessu í alvöru. Það er víst svo gott að hjóla þarna og kominn tími á nýtt formannskjör. Hvað kostar annars flugmiðinn út í þessa pardís?
Kveðja Gunnlaugur
Post a Comment
<< Home