Tuesday, September 20, 2005

New York, New York........

Jæja, Ríta ákvað sem betur fer að sveigja aðeins í suður og sleppa því að angra okkur. Eina sem kom útúr þessu var reykvískt haustveður (reyndar aðeins heitari en heima). En skólinn lokaður og götur hálftómar. Eigum þó að mæta að nýju á morgun.

Fjárfestum í flugmiðum til New York í gær, förum á fimmtudaginn og komum aftur á sunnudagskvöld. Anna María og Gulli búa í Brooklyn og ætlum við að misnota gestrisni þeirra í eina helgi eða svo. Verður spennandi að koma þangað, ég hef aldrei komið til New York (hef reyndar bara komið til Orlando og Miami). Erna hefur hinsvegar komið í stórborgina og getur því "gædað" húsbóndann um svæðið.

Þannig að nú bíðið þið bara ofurspennt eftir nýjum pistli eftir helgina með fullt af myndum......

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Newest diet tool: the blog
Epiphany in Baltimore, Skinny Kat, Diet Chick and Juju share more than unusual names.
For the latest in Law Enforcement interviewing techniques, go to: http://www.focusedinterview.com

3:28 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hmm...spurning um að framsenda kommentið að ofan til Jóns HB og félaga....

góða skemmtun í NY

dst

1:52 AM  
Anonymous Anonymous said...

Óheppilegt að þið skuluð lenda í þessari fellibylja hrinu! Þið verðið að passa ykkur á þeim þið gætuð orðið ringluð. Hlakka til að heira af New York ferðinni. Kkv.

3:57 PM  

Post a Comment

<< Home