Friday, October 07, 2005

Go Hurricaaaaaaaaaneeeees.......


Fórum í fyrsta skiptið á leik í amerískum fótbolta um síðustu helgi. Háskólinn okkar var að keppa í háskóladeildinni og vann náttúrulega með yfirburðum. Það kemur á óvart hvað þetta eru umfangsmiklir viðburðir. Okkur er sagt að stór hluti tekna UM sé frá öllu í kringum liðið, miðasölu, sjónvarpsauglýsingum og minjagripasölu. Þegar talað er um háskóladeild heldur maður ósjálfrátt að slíkir leikir séu ekki miklir viðburðir. En hér í Miami og væntanlega annarsstaðar í US er þetta virkilega stórt dæmi. Háskóladeildirnar eru álíka vinsælar ef ekki vinsælli en NFL og aðrar deildir.

Leikurinn fór fram á aðalleikvanginum hér í Miami, The Orange bowl (sem útleggst á íslenskunni Hin Appelsínugula skál...múhahhahahaaaa). Á þennan leik mættu um 58.000 manns hvorki meira né minna. Fyrir leikina eru haldin svokölluð "tailgate parties" sem minna all svakalega á útihátíðir á Íslandi um verslunarmannahelgina og þá helst þjóðhátið í eyjum. Hver deild er með sitt talgete partý og þarna eru heilu fjölskyldurnar með dúkuð borð, grill og almenn skemmtilegheit. Þvílík stemmning og ekki bjóst maður við þessu. Þessi partý hefjast yfirleitt um 3 klukkutímum fyrir leik og fólk hellir í sig ýmsum göróttum drykkjum. Partýin dreifast allt í kringum leikvanginn á flötunum sem þar eru.

Lagadeildin var með sitt eigið "tailgate" partý þar sem boðið var uppá frían bjór, hamborgara og snakk. Sumir koma bara í þessi partý og sleppa því að fara á leikinn sjálfann, skiljanlegt þar sem leikurinn tekur 3-4 klukkutíma og partýið 3. Ef ég ætti að velja á milli fengi ég svo sannarlega engan valkvíða ;)

Fyrir leikinn bauð Raul hinn Venesúelíaski okkur í forpartý heim til sín. Við mættum að sjálfsögðu í það, buðum Ólöfu og Davíð með okkur og fórum svo öll saman á leikinn.

Í stuttu máli þá var þetta mögnuð upplifun og eigum við eftir að fara á fleiri leiki í vetur en það er ókeypis fyrir nemendur í UM að fara á þessa leiki. Á myndasíðunni er hægt að sjá fleiri myndir frá leiknum.......

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

This comment has been removed by a blog administrator.

10:37 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hæ! Alltaf sama stuðið hjá ykkur. Oh, ef lífið væri alltaf svona!! Ég man hvað mér fannst þetta líka vera viðburður. Missti því miður af tailgate partýinu að mestu leyti því síminn var í skralli og þufti að eyða tímanum í biðröð í stað þess að vera í partýi!! Virðist sem að góð stemming sé komin í bekkinn hjá Ernu. Alltaf sama stemmingin í s-Ameríku fólkinu. Annars allt sama héðan. Bara vinna og vinna og helgi því miður er allt of löt á djamminu. ætla að bæta úr því um næstu helgi. kv. Erla.

4:24 AM  
Anonymous Anonymous said...

Þú ættir að fara í liðið Sigfús, sýna Ammeríkönunum hvað fótbolti er.
Hvaða comment var þetta að ofan sem þú dílítaðir?
Eitthvað dónó? eða kanski bara enn ein auglýsingin...

12:10 PM  
Anonymous Anonymous said...

Þetta var enn ein auglýsingin. Ég las mér til um hvernig á að fjarlægja þetta. Nokkrar leiðir færar í því en ég ákvað að gera þetta svona. Það er líka hægt að láta alla sem kommenta fylla út einhverja stafi þegar þeir kommenta og það kemur í veg fyrir að þessi forrit geti sett komment á síðuna en það kostar vesen fyrir þá sem kommenta, vill það ekki ;)

Kv.,
Sigfús

12:15 PM  

Post a Comment

<< Home