Hafið bláa hafið
Siglingin um karabíska hafið verður lengi í minnum höfð. Hreint út sagt stórkostleg ferð. Óhætt að mæla með slíku ferðalagi fyrir þá sem geta drifið sig. Þriggja rétta máltíðir á hverju kvöldi, sólbað á dekkinu, dekur í spa stofunni, frábær líkamsræktaraðstaða, sundlaugar, barir, golfhermir, púttvöllur og ég veit ekki hvað. Áfangastaðirnir voru líka hver öðrum skemmtilegri og snorkluðum við t.d. í St. Marteen innan um ýmsa furðufiska karabíska hafsins. Í kvöldverðunum sátum við alltaf á sama borði, höfðum sömu þjónana og sömu borðfélagana. Við vorum mjög heppin með borðfélaga sem er kannski eins gott því heldur væri það leiðinlegt að sitja uppi með eitthvert leiðindalið í löngum þrírétta máltíðum sjö kvöld í röð.En kíkið endilega á myndabloggið en það er það umfangsmesta til þessa enda af nógu að taka.







