Thursday, October 26, 2006

Veðurfréttir

Í veðurfréttum er þetta helst:
Veðurfréttamenn hér í S-Flórida hafa talað mikið um "cold front" og "breeze" undanfarna daga. Það var mikill hiti um helgina, um 33 gráður, en svo kom þetta svokallaða "cold front" einhverstaðar úr norðurríkjunum. Og í hverju fólst þetta kuldakast? Jú hitinn fór alla leið niður í 67 gráður á farenheit eða í um 19 gráður á celsius. Það var samt sól og heiðskírt alla þessa daga og því í raun eins og notalegt sumarveður á Íslandi. Já, viðmiðin eru aðeins öðruvísi hér í S-Flórída. Fólk fer á taugum ef það sér hitastigið fara niður fyrir 20 gráðurnar. Reyndar getur hitastigið farið niður fyrir 10 gráður á celius suma daga í des og jan og þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig fólkinu hérna líður þá.....

En nú er hitinn kominn uppí 77 gráður á farenheit og fer hækkandi. Vinir mínir heima vita hversu ánægður ég er með þessa tölu ;)

Wednesday, October 25, 2006

Helgarferðin

Ferðin yfir á vesturströnd Flórída var stórfín. Heimsóttum s.s. Sanibel, Captiva, Fort Myers og Naples sem eru nokkuð þekktir ferðamannastaðir hér í Flórída. Sjarminn við þetta svæði er hversu rólegt og afslappað er þarna miðað við Miami og nágrenni. Einnig eru strandirnar ansi notalegar og miklu rólegri en hér fyrir austan læk eins og þar stendur. Það er þó ekki næstum því eins mikið um að vera á þessu svæði miðað við okkar heimkynni. Má eiginlega líkja þessu við að fara frá Reykjavík yfir í rólegheitin á Akureyri. Nema hvað á Akureyri eru engar baðstrendur og hitinn er eitthvað örlítið lægri síðast þegar ég gáði.

Keyrðum sem sagt á föstudaginn vestur yfri og liggur leiðin yfir mikil fenjasvæði þar sem er fullt af huggulegum krókódílum og öðru þvíumlíku. Komum á hótelið um kvöldið og reyndist það bara ansi gott, fín sundlaug, heitur pottur og herbergið mjög fínt. Staðsetningin var líka góð að því leiti að við vorum mitt á milli Sanibel og Fortmeyrs-Beach sem eru aðalstaðirnir til að skoða. Byrjuðum einmitt fyrsta kvöldið á því að keyra niður á Fort-Meyers Beach þar sem við fengum okkur snæðing. Það er einna helst þar sem eitthvert líf er en það er ekkert í líkingu við það sem gerist í Miami og nágrenni. En mjög afslöppuð og góð stemmning.

Laugardaginn tókum við svo með trompi og skoðuðum Sanibel og Captiva. Gríðarleg náttúrufegurð þar og ákaflega góðar og rólegar strandir. Á Sanibel er mikið lagt uppúr hjólreiðum og eru góðir hjólreiðarstígar um alla eyjuna. Þar er þjóðgarður sem við skoðuðum undir styrkri leiðsögn heimamanns og var gaman að fræðast um dýralífið á svæðinu hjá manni sem þekkir til. Keyrðum svo yfir á Captiva og leist ansi vel á hana. Gætum vel hugsað okkur að taka gott frí þar einhverntíman, ákaflega notalegt og afslappað og strendurnar eru frábærar.

Á heimleiðinni komum við svo við í Naples sem er borg ríka fólksins í Flórída að mér skilst. Þar var eitthvert"stone-crab festival" þar sem boðið var uppá að smakka slíkan mat og listafólk sýndi listaverk sín í tjöldum. Fékk létt flashback frá því ég tók þátt í að skipuleggja Grafarvogsdagin hér um árið. Aðeins færri óvissuþættir hér og þá á ég helst við veðrið. Annaðhvort er sól og steikjandi hiti eða fellibylur, og ef það er fellibylur má hvort sem er enginn vera á ferli.....

Fyrir þau ykkar sem hafið áhuga eru fullt af myndum á myndasíðunni okkar. Kíkið endilega á þær ef þið hafið tíma og áhuga......

Tuesday, October 24, 2006

Nokkrar myndir úr hverfinu

Á myndasíðunni okkar er nú hægt að sjá nýjar myndir úr hverfinu m.a. nokkrar af Halloweenskreytingum en sá dagur nálgast nú óðum. Höfum farið í nokkrar göngur um hverfið og tekið myndavélina með. Þeir sem hafa áhuga geta kíkt á afraksturinn.

Svo er von á bloggi um ferðina til Sanibel, Fort Myers og Naples innan tíðar........

Friday, October 20, 2006

Fort Myers, Sanibel og Naples

Pöntuðum okkur hótel á vesturströnd Flórída um helgina, nánar tiltekið mitt á milli Fort Myers strandarinnar og eyjarinnar Sanibel sem er hægt að keyra útí. Fort Myers og Sanibel eru ákaflega vinsælir ferðamannastaðir á vesturströndinni og Flórídabúar sjálfir fara mikið þangað í helgarferðir og svo eru þetta líka mjög vinsælir ferðamannastaðir almennt. Mikið dýralíf og strandirnar eru víst öðruvísi en hér á austurströndinni að því leiti að meira er af skeljum.

Gistum tvær nætur á þessu hóteli hérna sem er þriggja stjörnu og fengum við það á mjög góðum prís verð ég að segja. Bókaði herbergið í gegnum heimasíðuna www.hotwire.com og virkaði það þannig að ég fékk að vita staðsetninguna nokkuð nákvæmlega, stjörnugjöf hótelsins og svo verð. Engar upplýsingar eða myndir af hótelinu sjálfu fyrr en búið var að bóka og borga. Þetta var því mikil óvissa og vonandi verður þetta bara nokkuð þokkalegt hótel. Myndirnar lofa allavegana góðu. Stór sundlaug og heitur pottur og það ætti því ekki að væsa um okkur. Á sunnudaginn erum við svo að hugsa um að koma við í bænum Naples sem ku vera þess virði að skoða. Pósta inn myndum af þessu ferðalagi eftir helgina. Best að fara að drífa sig að pakka niður, leggjum í hann seinnipartinn í dag........

Thursday, October 19, 2006

Netflix er snilld!

Eitt af því sem ég mun sakna þegar ég fer heim er Netflix. Þetta er fyrirtæki sem var stofnað fyrir einhverjum árum og viðskiptahugmyndin var eitthvað á þessa leið: Fólk pantar sér DVD myndir á netinu - fær þær sendar heim í pósti - hægt að velja hvort maður hafi 2 eða 10 heima í einu - maður velur úr gríðarlega stórum gagnabanka þar sem nær allar myndir fást m.a. margar íslenskar - setur þær í röð og er maður kannski með allt að 100 myndir í röð - þrjár efstu myndir eru alltaf sendar heim og um leið og einni er skilað í pósti er næsta í röðinni send heim. Þarna er hægt að vera með Netflix vini, séð hvaða myndir þeir hafa tekið og hvaða einkunn þeir gefa henni. Úrvalið er ótrúlega mikið, heimildamyndir, eldri myndir, pólitískar myndir, erlendar myndir og yfirleitt alltaf hægt að fá það sem maður biður um. Sem sagt algjör snilld.

Að sjálfsögðu hafa hákarlarnir á markaðnum s.s. Blockbuster apað eftir þessu og bjóða uppá svipaða þjónustu. Ég er eiginlega hálf hissa á að þetta sé ekki komið heim og hlýtur bara að vera tímaspursmál hvenær það gerist nema ástæðan sé einhverskonar einokun (Á ekki Myndform allan markaðinn heima?) sem kemur í veg fyrir að einhver geti farið útí þennan bissnes. Kannski að maður ætti bara að kýla á þetta sjálfur........

Hér er hægt að kíkja á heimasíðu Netflix.

Monday, October 16, 2006

Hið ljúfa líf...........

Helgin var ansi ljúf og skemmtileg verð ég að segja. Bara ef allar helgar væru svona ;) Vöknuðum um 10 leytið á laugardaginn og drifum okkur í vatnasport með Raúl, Maríönnu og nágrönnum þeirra. Raúl hafði farið þarna áður og ég hafði lýst yfir áhuga á að prófa og stakk hann þá uppá að við drifum okkur núna á laugardaginn. Ég hélt reyndar að ég væri að fara á sjóskíði en kaninn er náttúrulega búinn að þróa það konsept yfir í eitthvað miklu meira og skemmtilegra. Farið er í einskonar lyftu sem dregur mann áfram á vatni og getur maður valið búnaðinn sem fleytt er á vatninu á, sjóskíði, vatnsbretti eða hnjábretti. Skylda að fara fyrst á hnjánum meðan maður er að venjast því að halda jafnvægi á vatninu. Ég var sannfærður í fyrstu að ég þyrfti bara einn hring á hnjánum og svo tæki við sjóskíði eða bretti með þvílíkum kúnstum og látum. En nei. Fyrsta ferðin fór þannig fram að ég náði c.a. þrjá metra frá landi og þar af tvo þeirra án þess að vera á bretti, s.s. hékk bara í bandinu. Og það sem verra var að stuttbuxurnar voru komnar niður á hæla á virðulegum húsbóndanum. Ekki lengi að kippa því í liðinn og horfa í kringum mig til að ganga úr skugga um að enginn hefði séð þetta hrikalega klúður ;) Passaði mig á því í næstu salíbunu að reima allt vel.......

Næsta ferð gekk bara nokkuð vel. Tókst að halda mig á brettinu í 2/3 af hringnum og reyndist það vera persónulegt met þennan daginn. Næstu tvö skipti datt ég eftir c.a. 1/4 af hringnum og í síðasta skiptið dróst ég af brettinu strax í upphafi nema hvað buxurnar héldust uppi í þetta skipti..... Já, þetta reyndist heldur betur erfiðara en á horfðist. Erna átti í svipuðum vandræðum nema hvað hún var í sundbol sem ég mæli með við þessa iðkun, mæti sjálfur í slíkum næst.. múhahahah. Raúl stóð sig eins og hetja á sjóskíðunum/vatnsskíðunum, náði heilum hring en hefur metnað í meira. Aldrei að vita hvort maður skelli sér á sjóskíðin næst.........

Um kvöldið buðum við svo þeim hjónum heim í lambalæri með öllu tilheyrandi s.s. rauðkáli, grænum baunum og brúnuðum kartöflum. Létu þau ansi vel að matnum og Raúl var meira að segja farinn að tala um að við kæmum með afgangana til þeirra til Miami og halda bröns næsta morgun. Ansi notalegt kvöld og þau hjón eru ansi skemmtilegt og gott fólk.

Ekki tók síðri dagskrá við á sunnudeginum en þá byrjuðum við á að fara í bröns á stað niður við ströndina. Íslendingur sem ég hafði hitt hér í hverfinu fyrir tilviljun hafði mælt með þessum stað og þegar við googluðum hann reyndist hann bjóða uppá "Sunday-bröns" sem er vinsælt konsept hér á svæðinu. Og þvílíkur bröns og þvílíkt útsýni..... Eftir matinn fórum við svo niður á strönd í sólbað og voru ansi margir mættir þar til að njóta veðurblíðunnar og sjósins. Ég held að ég geti alveg vanist því að búa hér...........

Þau ykkar sem hafið áhuga á að skoða fleiri myndir skellið ykkur á myndasíðuna okkar. Fullt af myndum frá helginni.

Friday, October 13, 2006

Túrhestar á heimaslóðum II

Þá er tveggja vikna dvöl móður minnar lokið, hún fór heim á miðvikudaginn. Þetta var ansi viðburðarrík dvöl og við náðum að gera margt með henni þrátt fyrir ökklabrot strax á fjórða degi með tilheyrandi spítala- og hjólastólabrölti. Við fórum á föstudaginn með hana í kokteil á vegum lagadeildar UM þar sem við hittum marga af þeim sem voru með Ernu í bekk á síðasta ári. Skemmtilegir endurfundir þar.

Á laugardaginn byrjuðum við á því að slappa af í sundlauginni en ég og mamma fórum svo niður á strönd hér í Hollywood sem var einkar skemmtileg ferð. Miklu fleira fólk heldur en ég hef nokkurntíman séð þarna enda helgi og frábært veður. Á myndasíðunni okkar eru fullt af myndum frá þeirri ferð og nokkrar þeirra eru sérstaklega teknar fyrir Óla sem sendi áskorun hér í kommentakerfinu um daginn. Um kvöldið fórum við svo niður á South-Beach og fórum á veitingastað sem heitir Tapas y Tintos sem er frábær, mælum eindregið með honum. Það er alltaf gaman að koma um helgar niður á South-Beach og skoða umhverfið og hafði mamma einna mest gaman að þessu kvöldi enda vill hún hafa doldið líf í kringum sig.

Á sunnudaginn fórum við svo á samkundu Íslendingafélagsins í S-Flórída en við fréttum af henni fyrir algjöra tilviljun þegar ég og mamma rákumst óvænt á Íslending hér í hverfinu sem sagði okkur af þessu. Grillpartýið var haldið í almenningsgarði hér í nágrenninu, boðið var uppá grillaðar pylsur, kók, bjór og allt tilheyrandi. Haldið var happadrætti þar sem viningarnir voru flestir í formi íslensk fisks og kjöts. Ein konan þarna átti nokkuð gullna setningu að okkar mati þegar hún sagði eftirfarandi: "Já, það er gott að búa á Íslandi en það vill bara enginn vera þar". Þarna var þá aðallega verið að vísa til veðurfarsins og dýrtíðar heima. Reyndar fannst mér margir þarna tala um þetta tvennt, þ.e. að þeir söknuðu ekki veðurfarsins heima og svo væri allt orðið svo dýrt þar. Ég held ég verði nú að taka undir þetta, fékk hálfgert sjokk þegar ég sá hækkanirnar á matvörum frá því við fórum út á síðasta ári og þar til í sumar. Þvílíkt og annað eins. Er ekki kominn tími til að taka á þessu rugli?

Um kvöldið fórum við mamma svo að skoða nýopnaða tónlistar- og listamiðstöð sem var verið að opna með pompi og prakt í miðbæ Miami. Glæsilegt mannvirki með fullt af tónlistarsölum og risastórum óperusal. Aldrei að vita nema maður skelli sér á eina óperu eða svo í vetur.

Ætli ég segi þetta ekki gott í bili og bendi þeim sem vilja skoða myndir frá síðustu dögum og lesa aðeins meira á myndasíðuna okkar en þar er kominn heill bunki af nýum myndum.

Yfir og út..........

Tuesday, October 10, 2006

Hún á afmæli í dag, hún á.............

Haldið að frúin eigi ekki bara afmæli í dag!! Eldaði handa henni eggjahræru að hætti hússins í morgun og gaf henni gjöf sem ég held bara að hún hafi verið ansi ánægð með. Það er nefnilega að verða erfiðara og erfiðara að gefa gjafir eftir því sem líður á sambandið, hugmyndaflugið einhvernvegin nær ekki lengra en í nokkrar gjafir en svo dettur maður inná eitt og eitt ár þar sem ljósaperan skín skært á ný. Í kvöld er svo planið að fara eitthvert út að borða í tilefni dagsins og þess að þetta er síðasta kvöld múttu hér hjá okkur í Hollywood. Tveggja vikna viðburðarríkri heimsókn er nú að ljúka og við tekur stutt dvöl á Íslandi áður en hún heldur á ný til Kanaríeyja þar sem hún dvaldi líka síðasta vetur.

Þetta er hálfgert "örblogg" en það hefur ekki gefist mikill tími aflögu til að blogga að undanförnu. Bæði höfum við verið að keyra mömmu um helstu túrhestastaði S-Flórída og svo er allt brjálað að gera í náminu hjá húsbóndanum, verkefnaskil, próf o.sfrv. Þið eigið von á tíðari og ítarlegri bloggum á næstunni........

Thursday, October 05, 2006

Túrhestar á heimaslóðum

Eins og sagði í síðasta bloggi þá er móðir húsbóndans í heimsókn hér hjá okkur í Hollywood. Við erum því búin að taka einskonar "túristapakka" á okkar nánasta umhverfi sem er mjög gott því það er einhvernvegin þannig að maður á það til að vanrækja að skoða helstu staði á heimaslóðum. Heimsóknin tók reyndar allt aðra stefnu en við höfðum reiknað með þegar mútta var svo óheppin að snúa sig mjög illa á vinstri fæti með þeim afleiðingum að lítil sprunga kom í ökklann. Höfum við því verið að eiga við heilbrigðiskerfi kanans að undanförnu og verð ég að segja að samanburðurinn við það íslenska kemur mjög vel út fyrir okkar kerfi.

Við höfum verið send bæjarhlutana á milli og beðið samtals í vel á annan tug klukkutíma á biðstofum síðan þetta kom uppá. Meðal annars biðum við í fimm tíma á biðstofu sérfræðings hér í Hallandale (áttum pantað kl. 12 en fengum ekki afgreiðslu fyrr en rúmlega 17). Held að við Íslendingar ættum að líta eitthvert annað en til Bandaríkjanna ef við ætlum að leita að fyrirmynd í þessum málum. Sýnist þetta ganga ansi fínt fyrir sig á Norðurlöndunum og samkvæmt rannsóknum mínum síðasta vetur eru Bandaríkjamenn með dýrasta heilbrigðiskerfi í OECD og eru t.d. að borga jafnmikið úr ríkiskassanum miðað við landsframleiðslu og Norðurlöndin og svo bætist einkageirinn ofaná. Ég er til í rökræður og samræður við "frjálshyggjumógúla" heima hvað þetta varðar hvenær og hvar sem er ;)

En fyrir utan þetta leiðinda óhapp höfum við átt margar ánægjulegar stundir með mömmu og náð að "covera" ansi margt með henni. M.a. farið í tvær siglingar, sýnt henni South-Beach, miðbæ Miami og margt fleira. Einnig höfum við náð að prufa ansi marga veitingastaði hér í hverfinu okkar og verður að segjast að þetta hverfi leynir ansi mikið á sér hvað slíkt varðar, fullt af flottum veitingastöðum og börum.

Fyrir þau ykkar sem viljið setja ykkur í "túrhestastellingar" og sjá m.a. glæsihýsin sem Shaq Oneal ofl. búa í þá getið þið kíkt á myndasíðuna okkar þar sem nokkrar vel valdar myndir frá síðustu dögum er að finna.