Elvis has left the building!
Það verður einhver pása á bloggi hér á blogspot í bili. Þetta blogg var hugsað sem upplýsingagjöf við vini og vandamenn heima á Fróni og einnig sem einskonar dagbók Bandaríkjadvalarinnar fyrir okkur hjónin. Þar sem við erum nú flutt heim gerist síður þörf á slíkri starfsemi og setjum við því síðuna í salt þar til við tökum upp á því að flytja eitthvert út aftur, þ.e. ef það verður þá einhverntíman. Við þökkum þeim sem heimsóttu okkur hér í vefheimum og vonum að þið hafið haft gaman af.Húsbóndinn hefur nú opnað nýtt blogg, www.sigfus.blog.is, þar sem hann rausar um pólitík og samfélagsmál. Endilega lítið reglulega þar inn ef þið hafið áhuga og tíma. Einnig er planið að byrja að blogga fyrir vini okkar í Bandaríkjunum og S-Ameríku og verður það þá að sjálfsögðu á ensku (nema við förum á hraðnámskeið í spænsku) og verður slóðin þá væntanlega www.sigfusanderna.blogspot.com.
Yfir og út.......
