
Gulli kom í óvænta heimsókn nú um helgina (er reyndar hér enn þegar þetta er skrifað). Fyrir þá sem ekki þekkja til kauða þá var hann annar tveggja veislustjóra í brúðkaupinu okkar ásamt sinni heittelskuðu Önnu Maríu. Það er ansi góður fengur í honum Gulla, þar sem hann bjó hér í Miami í tvö ár áður en hann flutti til New York og þekkir því vel til staðhátta (og svo er hann náttúrulega svo afburðar skemmtilegur drengurinn). Hann tók því að sér hlutverk "gæds" fyrir okkur hjónin nú um helgina.

Byrjuðum reyndar á því að sýna honum hverfið okkar en það endaði með því að með aðstoð hins þefvísa Gunnlaugs fundum við ansi skemmtilegan "Salsa-bar". Við erum sem sagt búin að búa hér í um 3 mánuði án þess að uppgötva þessa perlu og þurftum utanaðkomandi hjálp til þess. Þegar inn var komið dundi dynjandi salsamúsík yfir okkur ásamt dansandi kúbönum um allt gólf. Við tókum náttúrulega nokkra góða salsatakta þarna inni og fengum okkur eins og einn til tvo suðræna drykki. Á heimleiðinni þefaði Gunnlaugur svo uppi enn einn stuðstaðinn sem við "gamla settið" höfðum að sjálfsögðu ekkert vitað af...
Á laugardaginn fórum við uppí skóla að læra en á meðan einbeitti Gulli sér að sundlauginni okkar og skoðaði næsta nágrenni á hjólfáki húsbóndans. Um kvöldið fórum við á South Beach á veitingastað sem "gædinn" mælti með. Ansi vel valið hjá pilti verð ég að segja. Þar hittum við Davíð og Ólöfu sem höfðu verið að túrhestast eitthvað á svæðinu þá um daginn.
Í dag, sunnudag, fórum við svo í afar vellukkaða ferð útá Key-Biscane sem er eyja hér rétt fyrir utan, hlaðin fallegum ströndum, bátalægjum og göngu- og hjólreiðastígum. Ákaflega gaman að rölta þar um á ströndinni í 28 stiga hita og sól. Eftir þá ferð fórum við svo og fengum okkur í gogginn á skemmtilegum veitingastað sem er við höfnina hér í Miami, mitt á milli bátastafla.
Það er á hreinu að Gulli hefur kennt okkur ansi margt á þessum stutta tíma sem hann hefur verið hér og nýjar hliðar Miami hafa opnast fyrir okkur skötuhjúum. Við verðum orðin ansi fær í að "gæda"um Miami þegar fyrstu gestirnir koma nú um jólin.
Fullt af myndum frá helginni á myndahluta síðunnar, endilega að skoða....
kk.,
Sigfús og Erna
P.S. Erum að fara á U2 tónleika á morgun með Davíð og Ólöfu, ekki leiðinlegt það...