Wednesday, June 25, 2008

Brussel var það heillin....

Ég sé að í síðasta bloggi mínu frá Miami skrifaði ég að Elvis hefði yfirgefið bygginguna og að sú bloggfærsla væri því sú síðasta en með þeim fyrirvara að ef við flyttum aftur frá Íslandi myndum við e.t.v. hefja skrif aftur. Ekki datt mér í hug þá að við myndum flytja aftur frá Íslandi aðeins ári seinna. En sú er víst raunin og til þess að halda ykkur vinum okkar og ættingjum vel upplýstum um okkar gjörðir og hugsanir ákváðum við að taka upp þráðinn á ný, í þetta skiptið frá Brussel.

Ekki get ég lofað eins framandi og skemmtilegum færslum og frá Miami á sínum tíma, sá tími var náttúrulega eitt stórt ævintýri þar sem fyrirbæri eins og krókódílar, eðlur, Key West, South beach, S-amerískir vinir, Golden gate, NY, komu m.a. við sögu. Hinsvegar stefnir allt í nokkuð viðburðarríkt fyrsta ár hér úti og eftir þessa fyrstu mánuði er svo mikið að segja frá að ég held að það sé best að segja þá sögu í myndablogginu. En eins og lesendur Miami-bloggsins vita, þá skiptum við þessu bloggi í tvo hluta, annarsvegar þessi almenni hluti sem þú ert að lesa núna og hinsvegar myndabloggið sem nálgast má hér. Kíkið endilega á myndabloggið í leiðinni því myndir segja jú meira en mörg orð ;)

Meðal þess helsta sem við höfum gert fyrstu mánuðina hér í Belgíu:

- Kaup 0g samsetning á c.a. 11 Ikea mubblum (húsbóndinn krefst diplóma frá IKEA eftir þessa törn)
- Búin að koma okkur nokkuð vel fyrir í íbúðinni okkar að Livourne stræti
- Höfum fengið fjórar mjög skemmtilegar heimsóknir, fyrst Kötu tengdó, svo Halla bróður og Estefan son hans, þar næst Dóra Sif sem stoppaði aðeins í eina nótt að þessu sinni (lofar að vera lengur næst ;), og að lokum Benni bróðir og Gunni vinur hans.
- Við höfum farið í ferðir til Normandy í Frakklandi, Paríar, Kölnar, Sigfús hefur farið tvisvar í Ardennafjöllinn (annað skiptið í göngu og hitt skiptið í kayakferð), Erna er búin að fara í eina vinnuferð til Íslands (Vestmannaeyja). Framundan eru svo ferðir til Brugge, Berlínar og tveggja vikna ferð til Ítalíu.
- Við erum búin að vera mjög dugleg í "sósíallífinu", höfum kynnst fullt af nýju skemmtilegu fólki og einnig hitt hér gamla vini og kunningja frá fyrri tíð.
- Svo erum við að fara á tónlistarhátíð hér í Belgíu 6. júlí þar sem Radiohead og Sigur rós munu spila.

Sem sagt búið að vera ansi viðburðarríkur tími og ég held að besta leiðin sé að segja nánar frá honum með myndum og myndtexta. Þær nálgist þið eins og áður segir á myndablogginu okkar.

Ég ákvað í þetta skiptið að hafa bloggið læst þannig að nú þurfið þið að koma ykkur upp svokölluðum google aðgangi til að geta lesið bloggið. Það fylgja leiðbeiningar um það með boðinu um lestur bloggsins en ef þið eruð með gmail þá þurfið þið ekkert að hugsa frekar um þetta þar sem þið getið notað aðgangsorðin ykkar þar þegar þið loggið ykkur inn hér.