Sunday, October 30, 2005

Unnum i "Happdraetti rafagnslausra".......

Komum heim seint i gaerkveldi. Vorum ofurspennt ad sja hvort okkar numer hefdi verid dregid ut i "Happdraetti rafmagnslausra". Og viti menn! Vid unnum, rafmagnid var komid og ibudin i finu standi. Reyndar er kapallinn og internetid ekki ad virka en thad eru nu algjorir smamunir i thessari stodu. Hringdum i leigusalann okkar og hun er enn an rafmagns eins og 40% ibua a svaedinu. Ekki er reiknad med ad their oheppnustu fai rafmagn aftur fyrr en um 20.november.

Annars finnst okkur magnad ad heyra af thvi ad her rikir utgongubann. Ja, her i landi frelsisins er folki bannad ad vera uti a milli kl. 0:00 og 6:00 og i nagrannasyslunni byrjar thad klukkutima fyrr. Thetta hefur verid i gangi sidan Wilma for yfir og their sem eru a utstaelsi a medan banninu stendur og hafa ekki bryna astaedu til thess er hreinlega varpad i steininn. Adalastaedan er ad eg held su ad yfirvold eru ad fyrirbyggja gripdeildir og adra glaepi sem aukast yfirleitt i svona astandi. Hinsvegar skil eg ekki alveg hversvegna thetta er i gildi nu sex dogum eftir oskopin.

En skolinn byrjar s.s. aftur a morgun og eg a ad fara i tvo prof. Aetli se thvi ekki best ad segja thetta gott i bili og hefja marathonnlestur.

Get ekki sett inn myndir i tolvunni sem eg er i nuna (a lagabokasafninu) en eg aetladi ad setja her inn myndir af staerdarinnar tre sem rifnadi upp med rotum i gardinum okkar og lenti nokkrum metrum fra bilastaedinu okkar. Set thad bara inn thegar um haegist i naminu..... svo kemur langur pistill med fullt af myndum af sudurrikjaferdinni okkar sem var ansi vidburdarrik og skemmtilegt. Frabaert ad fa ad vera hja theim Benna og Berglindi thetta lengi. Gaetum ekki hafa gert betra ur thessu astandi, thau fa thusund thakkir fyrir hlyjar og afar skemmtilegar mottokur....

Saturday, October 29, 2005

Erum í Savannah, Georgíu

Erum hér á ágætis móteli í Savannah í Georgíu, komum hingað í gærkveldi. Fórum niður í gamla miðbæinn í gær, fengum okkur að borða og röltum um. Nú er ljóst að skólinn opnar á mánudaginn og ætlum við því að drífa okkur aftur til Miami þar sem ég á að fara í tvö próf þann dag. Planið er samt að líta aðeins niður í miðbæinn aftur í dag og sjá hann í dagsljósi. Synd að geta ekki dvalið hér lengur víst við erum komin, skólinn alltaf að slíta í sundur fyrir manni "fríin".... hahhahaha


En satt best að segja líst okkur ekkert sérstaklega á að fara heim í rafmagnsleysið. Davíð og Ólöf eru farin heim og þau eru svo heppin að vera komin með rafmagn. Við vitum hinsvegar ekkert hvort rafmagn sé komið á hjá okkur. Samkvæmt rafmagnsveitunni (FPL) fá sumir í Miami ekki rafmagn fyrr en 22 nóvember. Okkur sýndist að áætlun fyrir okkar svæði væri c.a. 15. nóvember. Við vorum orðin pirruð á rafmagnsleysinu síðast en það voru jú bara þrír dagar. Það verður því forvitnilegt að vita hvort við verðum komin á klepp þeirra Flórídabúa eftir fyrstu vikuna... En vonandi vinnum við í "happdrætti rafmagnslausra" og rafmagnið verður komið á í íbúðinni þegar við komum heim í kvöld. Ekki telst það nú samt líklegt.

Við erum allavegana undirbúin undir hálfgerða útilegu. Keyptum vatn, lítið gasgrill, gashellur, slatta af batteríum, bensínbrúsa til að birgja okkur upp áður en við komum til Miami o.s.frv. Það er nefnilega mikil biðraðastemmning á svæðinu núna, svona eins og í sovét forðum. Vorum einmitt að horfa á CNN áðan þar sem var talað um mikinn pirring hjá almenningi vegna skorts á vatni, bensíni o.s.frv. Við munum fylla á tankinn alla leiðina og á síðustu bensínsstöðinni sem verður biðraðalaus....

En það er merkilegt með veðurfarið hér norður af Flórída. Það er svo miklu kaldara þó þetta sé bara 8 tíma keyrsla. Við pökkuðum niður fötum eins og við notum dags daglega í Miami. Ég tók t.d. með mér þrennar stuttbuxur og nokkra boli en enga yfirhöfn. Hef varla farið í stuttbuxur síðan ég kom hingað og var að drepast úr kulda í gærkveldi á röltinu. Svo var ískalt hér í herberginu í nótt þannig að við settum hitaofninn af stað, nokkuð sem er ekki til í Flórída...

kk.,
Sigfús og Erna, suðurríkjaflakkarar

Wednesday, October 26, 2005

Skólinn lokaður a.m.k. fram á mánudag

Skólinn tilkynnti í gær um lokun fram á mánudag að minnsta kosti. Það er allt rafmagnslaust í Miami núna, fólk kemst ekki í hraðbanka, verslanir taka ekki við öðru en reiðufé (þær fáu sem eru opnar), fólk í biðröðum eftir vatni og svo framvegis. Ekki beint ástand sem okkur langar til þess að flýta okkur í.

Ætlum að sjá til á morgun hvað við gerum. Kannski látum við reyna á gestrisni Berglindar og Benna í eina nótt enn. Þau henda okkur þá bara út þegar þau verða orðin geðveik á þessum flóttamönnum... ;) En þegar við förum héðan er planið að koma við í Savanah í Georgíu og gista þar í eina til tvær nætur. Það ku vera ægifögur borg sem gaman er að skoða.......

Áttum frábæran dag í gær, ég og Benni fórum í tennis í rúman klukkutíma en það er tennisvöllur hér beint fyrir framan íbúðina. Fórum svo í kajakferð, ég, Erna og Benni. Benni er að passa hús konu sem er prófessor hér við háskólann en Berglind er hjá henni. Hún á glæsilega eign með aðgang að fenjasvæði sem gaman er að sigla um. Svo heppilega vill til að hún á akkúrat þrjá kajaka sem við fengum lánaða. Frábært veður og fullkomin ferð í alla staði. Póstum myndum frá allri heimsókninni síðar.

kk.,
Sigfús og Erna


Erna og Benni á kajak í gær, frábært veður og fagurt umhverfi....

Monday, October 24, 2005

Gott að vera í Charleston, ansi fegin að hafa drifið okkur

Ég tók mig til og lærði í dag á bókasafninu hér í Charleston, Erna lærði heima. Vorum nefnilega svo samviskusöm að taka bækurnar með. Ég reyndar átti ekki annara kosta völ þar sem það verða tvö próf á fimmtudag ef búið verður að opna skólann þá. Auk þess á ég að skila tveimur 7 blaðsíðna ritgerðum og beinagrind af tveimur lokaritgerðum. Það er því meira en nóg að gera auk þess sem við þurfum að skoða Charleston víst maður er kominn hingað ;)

Höfum verið fastagestir á vefsíðu Miami Herald www.miamiherald.com og www.weather.com og satt best að segja líst okkur ekki á ástandið heima í Miami. Á Miami Herald er vitnað í einn íbúann sem segir að ástandið sé um 20 sinnum verra í Miami núna en það var eftir Katrínu (þ.e. í Miami). Það er allt rafmagnslaust á svæðinu, um 2 milljónir heimila án rafmagns og ekki útlit fyrir að það komist aftur á í bráð.

Þessi ákvörðun okkar var því heldur betur rétt, vægast sagt. Ef þið hafið áhuga þá getið þið séð myndir frá ástandinu í Miami á vef Miami Herald, nákvæm slóð hér:
Hahahahahaha, það má ekki skrifa slóð í textann, þá fokkast öll síðan upp

Planið var upphaflega að fara heim aftur á morgun en nú erum við orðin tvístígandi vegna ástandsins í Miami. Ætlum að bíða og sjá hvað skólayfirvöld segja um opnun skólans. Það er lokað á morgun en tilkynning varðandi miðvikudaginn kemur ekki fyrr en á morgun kl. 14. Þá verður tekin ákvörðun um framhaldið. Það kæmi t.d. til greina að koma við í Savanah í Georgíu á leiðinni heim, kannski gista þar í eina nótt. Sú borg ku vera ægifögur.

Hér eru nokkrar myndir af ástandinu í S-Florida þessa dagana, tekið af annari heimasíðu, tek fram að þær eru ekki allar frá Miami:

























Sunday, October 23, 2005

Komin til Charleston

Erum komin hingad til Charleston i S-Karolinu til theirra Berglindar og Benna. Thau bua i ansi skemmtilegri, storri og hlylegri ibud og thad fer mjog vel um okkur. Hofdinglegar mottokur theirra hjona, brunch og laeti nuna a eftir.

Ferdin gekk mjog vel, vorum 10 klukkutima a leidinni. Mjog godir vegir her i Amerikunni.

Charleston er sogufraegur stadur en hun var ein af stjornstodum sudurrikjanna i thraelastridinu. Aetlum ad fara undir styrkri leidsogn theirra hjona nu a eftir og skoda thessar soguslodir en midbaerinn er vist mjog vel vardveittur og litur naestum thvi ut eins og a timum thraelastridsins.

Her er ein sida um charleston:
http://www.charlestoncvb.com/

Saturday, October 22, 2005

Keyrum norður....

Skólinn var rétt í þessu að tilkynna að það verði lokað á mánudag og við keyrum því norður á bóginn. Berglind og Benni búa í Charleston í S-Karólínu og er förinni heitið þangað. Þetta ferðalag á að taka um 10 klukkutíma samkvæmt mapquest.

Reiknað er með að nokkuð dragi úr Wilmu þegar hún kemur hingað á Flórídaskagann og að hún verði líklega komin niður í stig 1 á fellibyljakvarðanum. Það er sami styrkur og Katrín var þegar hún kom hér yfir og við urðum rafmagnslaus í þrjá daga. Okkur langar ekki til að vera í rafmagnslausri borg í marga daga auk þess sem það getur vel verið að styrkurinn verði meiri þegar hún fer hér yfir, það veit í raun enginn nákvæmlega.

Hér að ofan er kort af fyrirhuguðu ferðalagi.

kk.,
Sigfús og Erna

Friday, October 21, 2005

Bíðum átekta

Skólinn gaf út tilkynningu í dag þar sem kom fram að ekki verði tilkynnt fyrr en á morgun hvort skólahaldi verði aflýst á mánudag. Við neyðumst því til þess að vera hér áfram a.m.k. til morguns. Hefðum drifið okkur af stað í dag ef ég ætti ekki að fara í tvö próf á mánudag. Mjög óþægilegt að vita ekki hvort skólinn verði opinn eða ekki á mánudag því ef prófin verða get ég ekki verið að flakka mikið, nóg að lesa.......

En svona eru þessir blessuðu fellibylir, eintóm óvissa um hvar þeir lenda og hversu sterkir þeir verða þegar þeir koma.

Neyðarplanið okkar er að keyra til Charleston í S-Karolínu (um 10 klst keyrsla) en þar búa Berglind og Benni vinir okkar. Væri gott að geta slegið tvær flugur í einu höggi, heimsótt þau og forðast jafnframt Wilmu og afleiðingar hennar s..s rafmagnsleysi og annað sem svona löguðu fylgir. Einnig kemur til greina að gista einhversstaðar í norður Flórída eða í Savanah í Georgíu.

Hér er hægt að sjá gervihnattamyndir af Wilmu sem eru uppfærðar reglulega:
http://storm1.herald.com/auto/miamiherald/global/Region/g1/2xpxIRSatellite.html

Og hér er spáin fyrir næstu daga, s.s. Wilma á að koma einhversstaðar á þessu gula svæði á mánudag eða aðfararnótt þriðjudags:
http://storm1.herald.com/auto/miamiherald/tropical/tracking/at200524_5day.html

Kveðja frá ríki sólar og fellibylja,
Sigfús og Erna

Thursday, October 20, 2005

Wilma á leiðinni - Hvar er Fred?

Búinn að vera ansi upptekinn í skólanum í vikunni og gaf mér ekki tíma í að spá í nýjasta fellibylnum sem kláraði víst stafrófið, nefnilega hana Wilmu. Las það einhversstaðar hér í blaði að þetta væri í fyrsta skiptið síðan nítjánhundruð og þrjátíu og eitthvað sem hitabeltisstomsstafrófið kláraðist. Það þarf því að grípa til einhvers vara stafrófs.....

Fór á háskólapöbbinn í gærkveldi og spjallaði við bekkjarfléaga Ernu og reyndust þeir ansi áhyggjufullir. Flestir að spá í að keyra eitthvert norður, eins langt og hægt væri. Hef aldrei heyrt þessa krakka tala um að forða sér vegna storms áður. Það var fyrst þarna sem ég áttaði mig á því að málið væri kannski alvarlegra en ég hafði haldið þar sem þessir krakkar eru nú ekki vanir að gera mikið úr hlutunum. Hingað til hefur aldrei neitt annað komið til greina en að vera hér í Miami og standa stormana/fellibylana af sér hér. En nú er s.s. komið eitthvert hljóð í liðið að yfirgefa svæðið.

Erna hringdi svo í mig og vildi að við ræddum hvað við ættum að gera, hvort við ættum að keyra norður o.s.sfrv. Erum að íhuga það þessar stundirnar. Það er flólkið mál að taka svona ákvörðun því maður gæti t..d lent í umferðarteppu ef seint yrði lagt af stað og þá værum við í raun ver stödd en að vera hér heima. Svo á ég víst að fara í tvö próf á mánudaginn og ef lítið verður úr fellibylnum væri sá kennari alveg vís til þess að halda prófin sama hvað.

Vandamálið snýst samt aðallega um það að það veit í raun enginn hversu sterk Wilma verður þegar hún kemur hingað eða hvar hún lendir. Svæðið sem spárnar ná yfir er ansi víðfemt en helst er talið að hún komi inn hér aðeins norðar á Flórídaskaganum nærri Palm-beach. Ef Wilma lendir þar mun Miami samt verða fyrir barðinu á henni en ekki eins alvarlega og ef hún kæmi hér beint á okkur. Veðurfræðingar virðast ekki geta verið mjög nákvæmir með þetta og því er eintóm óvissa í gangi.

Búist er við að Wilma komi yfir Flórídaskagann á laugardag eða sunnudag þannig að ef við förum héðan þá förum við sennilegast af stað á föstudaginn.

En vonum bara að Wilma róist aðeins áður en hún kemur hingað og enginn þurfi að fara neitt.

Monday, October 17, 2005

Tíðindarlítið á vesturvígstöðvunum.....

Erum bæði með einhverja "déskotans" flensu þessa dagana, Erna fékk hana fyrir viku og er enn með einhvern ávinning af henni en ég veiktist á föstudaginn og er nokkuð slappur. Við hörkuðum þetta þó af okkur til þess að taka þátt í enn einu partýinu hjá bekknum hennar Ernu á föstudaginn. Tilefnið var það að vinur eins ítalsks bekkjarfélaga Ernu átti afmæli. Hann heitir Christiano (eða svona sirkabát) og er hér staddur í fríi hjá honum Max sem er einnig Ítali og er í bekk með Ernu. Christiano þessi reyndist létt bilaður en það gæti hafa stafað af því að hann var vel drukkinn þegar við mættum á staðinn. Hann reyndi við flestar stelpurnar og lét almennt eins og einhver glaumgosi... Ég gat hlegið að honum en held að stelpurnar hafi ekki þótt hann mjög geðþekkur, en svona getur nú áfengið farið með mann.....

Ágætis partý eins og vaninn er þegar kemur að slíkum uppákomum í bekknum hennar Ernu.

Á laugardaginn fórum við Davíð í fótbolta niður á South-Beach. Davíð hafði komist í samband við Íslending hér sem ku vera í fiskibransanum (þó ekki að flytja inn fisk frá Íslandi)) og heitir hann Pálmi. Pálmi spilar s.s. fótbolta með liði sem hittist tvisvar í viku niður á South-Beach og við fengum að kíkja með honum. Þessi hópur er mjög fjölbreyttur, strákar frá S-Ameríku, Mexíco, Hollandi o.sfrv.. Mjög gaman að komast loksins í bolta þó að úthaldið mætti vera töluvert betra. Skrýtið að spila í svona hita en þó voru skilyrðin nokkuð góð fyrir okkur Frónbúa, regnúði og skýjað. Ætlum að mæta aftur í þetta spilerí og erum einnig að vinna í því að koma á föstum tímum í UM með strákunum úr bekknum hennar Ernu. Ætlum meira að segja að taka þátt í móti núna á næstunni.

Annars fór helgin í almenn rólegheit og heimanám. Held nefnilega að það sé einhver misskilningur í gangi hjá skólayfirvöldum í UM því við erum látin læra og læra alla daga, meira að segja um helgar. Þessi skóli slítur algjörlega í sundur fríið og sólböðin hjá manni.... ;)

Í morgun fór ég með bílinn í "tékk"en við fengum tveggja mánaða ábyrgð á honum og viljum láta athuga hvort ekki sé allt í lagi með hann áður en ábyrðartíminn rennur út. Á heimleiðinni tók ég nokkrar myndir sem hægt er að sjá hér á myndasíðunni. Gekk í gegnum hverfi sem liggur hér nærri okkur og maður uppgötvar alltaf eitthvað nýtt í slíkum göngum. Nú er ég búinn að koma mér upp nýju "nördamyndaverkefni" en það felst í því að taka myndir af póstkössum. Það er nefnilega skemmtilega ameríkst þetta með póstkassana út við götu. Margir skemmtilegir og allir hafa sinn karakter. Veit að Selma í VUF á eftir að hlæja að þessu því hún hefur svo gaman að nördaskapnum í mér...hahhahaha

En sem sagt róleg helgi með smá partý-ívafi. Skoðið endilega myndirnar á myndasíðunni......

Monday, October 10, 2005

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag....trallallalaaa

Hún Erna á afmæli í dag, mánudaginn 10. október, og af því tilefni stóðu hátíðahöld yfir alla helgina. Það dugar nefnilega ekkert minna í hennar tilfelli og svo er mánudagur jú bara venjulegur vinnudagur hjá óbreyttum stúdentum.....

Af þessu tilefni kom ég henni á óvart á föstudaginn, keypti hjól og stillti því upp í íbúðinni. Náði svo í hana í skólann og sendi hana upp á undan ;). Hugmyndin er að fara sem oftast saman í hjólreiðatúra hér í kring en það er mjög fallegt svæði í hjólafjarlægð hér niður við ströndina. Fórum svo í okkar fyrsta hjólreiðatúr á sunnudaginn þar sem við fórum m.a. í "Pine-Crest gardens" sem er hér í 10 mínútna hjólafjarlægð og er einskonar almenningsgarður með eðlum og ýmsu skemmtilegu dóti.

Á laugardaginn ákváðum við að gerast "túrhestar" í okkar eigin hverfi, fórum í brunch á kúbönsku kaffihúsi/veitingahúsi sem er hér í göngufjarlægð og er mjög skemmtilegt þar sem það er kúbönsk fjölskylda sem rekur hann. Ákaflega góður brunch og kaffið frábært. Reiknum með að líta oft þarna í vetur. "Járnvörusalinn" í hverfinu var svo með útimarkað þar sem við keyptum ýmsa smáhluti sem okkur vantaði á 1 dollar stykkið. Fórum svo í Barnes and Nobles að skoða bækur og ýmislegt fleira og enduðum ferðina í mollinu þar sem Erna fann nokkrar afmælisgjafir til viðbótar. Ótrúlegt hvað hægt er að finna til kaups ef einbeittur brotavilji er fyrir hendi.... Þessi ferð var eiginlega farin með innblástri frá vinkonu okkar henni Önnu Maríu en hún sýndi okkur hverfið sitt í NY með svo skemmtilegum hætti að við ákváðum að kynnast okkar hverfi eins vel og hún er búin að gera.

Fórum svo í laugina okkar í tvo tíma til að slaka á fyrir kvöldið sem var hlaðið dagskrá. Vorum boðin í mat til Davíðs og Ólafar þar sem gómsætir hamborgarar grillaðir og matreiddir að hætti heimilisföðursins. Þau búa í mjög fínni byggingu hér rétt hjá okkur. Þar er öll aðstaða til fyrirmyndar og í raun eins og að koma á gott hótel. Allt glænýtt, sundlaugagarður með grillaðstöðu og flottar íbúðir. Við fórum svo öll saman í enn eitt partýið hjá bekknum hennar Ernu en þar var verið að kveðja Gonzalo hinn Argentínska en hann er að hætta í LLM prógramminu. Fékk atvinnutilboð sem hann gat ekki hafnað, yfirmaður útibús fyrirtækis síns í Mexíco. Við sjáum á eftir honum þar sem hann er mjög fínn strákur.

Svo fór sunnudagurinn sem sagt í að prufukeyra nýja hjólið sem virkaði með hreinum ágætum.
Hér er enn mikill hiti, um 30 á celcius og mikill raki. En það kólnar víst eitthvað í vetur og fer þá hitinn niður í 21-26 stig, held að það muni eiga betur við okkur þó við séum vissulega ekkert að kvarta yfir þessu.

Set inn fleiri myndir frá helgina á myndasíðuna seinna í dag (er að fara í skólann... ;) )

Friday, October 07, 2005

Go Hurricaaaaaaaaaneeeees.......


Fórum í fyrsta skiptið á leik í amerískum fótbolta um síðustu helgi. Háskólinn okkar var að keppa í háskóladeildinni og vann náttúrulega með yfirburðum. Það kemur á óvart hvað þetta eru umfangsmiklir viðburðir. Okkur er sagt að stór hluti tekna UM sé frá öllu í kringum liðið, miðasölu, sjónvarpsauglýsingum og minjagripasölu. Þegar talað er um háskóladeild heldur maður ósjálfrátt að slíkir leikir séu ekki miklir viðburðir. En hér í Miami og væntanlega annarsstaðar í US er þetta virkilega stórt dæmi. Háskóladeildirnar eru álíka vinsælar ef ekki vinsælli en NFL og aðrar deildir.

Leikurinn fór fram á aðalleikvanginum hér í Miami, The Orange bowl (sem útleggst á íslenskunni Hin Appelsínugula skál...múhahhahahaaaa). Á þennan leik mættu um 58.000 manns hvorki meira né minna. Fyrir leikina eru haldin svokölluð "tailgate parties" sem minna all svakalega á útihátíðir á Íslandi um verslunarmannahelgina og þá helst þjóðhátið í eyjum. Hver deild er með sitt talgete partý og þarna eru heilu fjölskyldurnar með dúkuð borð, grill og almenn skemmtilegheit. Þvílík stemmning og ekki bjóst maður við þessu. Þessi partý hefjast yfirleitt um 3 klukkutímum fyrir leik og fólk hellir í sig ýmsum göróttum drykkjum. Partýin dreifast allt í kringum leikvanginn á flötunum sem þar eru.

Lagadeildin var með sitt eigið "tailgate" partý þar sem boðið var uppá frían bjór, hamborgara og snakk. Sumir koma bara í þessi partý og sleppa því að fara á leikinn sjálfann, skiljanlegt þar sem leikurinn tekur 3-4 klukkutíma og partýið 3. Ef ég ætti að velja á milli fengi ég svo sannarlega engan valkvíða ;)

Fyrir leikinn bauð Raul hinn Venesúelíaski okkur í forpartý heim til sín. Við mættum að sjálfsögðu í það, buðum Ólöfu og Davíð með okkur og fórum svo öll saman á leikinn.

Í stuttu máli þá var þetta mögnuð upplifun og eigum við eftir að fara á fleiri leiki í vetur en það er ókeypis fyrir nemendur í UM að fara á þessa leiki. Á myndasíðunni er hægt að sjá fleiri myndir frá leiknum.......